Fréttablaðið - 15.07.2009, Síða 12

Fréttablaðið - 15.07.2009, Síða 12
12 15. júlí 2009 MIÐVIKUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 UMRÆÐAN Sigrún Elsa Smáradóttir svarar grein Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. Í ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, seldi ríkið hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja með þeim skilyrð- um að opinberir aðilar eða fyrirtæki í opin- berri eigu mættu ekki kaupa hlutinn. Þannig hófst einkavæðingarferli í orkugeiranum án þess að fyrir væri tryggt eignarhald opinberra aðila á auðlindum. Í kjölfarið fóru sveitarfélög sem áttu hlut í HS að losa hlut sinn í félaginu. Fulltrú- ar Samfylkingar samþykktu kaup Orkuveitunnar á hlutum HS á þeim forsendum að mikilvægt væri að tryggja eignarhald opinberra aðila á orkuauðlindum og tryggja samfélagslega hagsmuni. Fulltrúar Sam- fylkingarinnar hafa sett sömu fyrirvara um sölu á hlut OR í HS og að þessi atriði séu tryggð. Það breyt- ir því ekki þegar verðið sem greitt var fyrir 16,6% hlut í HS er borið saman við verðið sem ríkið greiddi Reykjavíkurborg fyrir 44,5% hlut í Landsvirkjun um svipað leyti, í borgarstjóratíð Vilhjálms Þ. Vil- hjálmssonar, þá er samanburðurinn mjög óhagstæð- ur fyrir borgina. Fyrir hlutinn í HS voru greiddir 8,7 milljarðar og hlutur í Landsvirkjun er aðeins seldur á 26,9 milljarða. Þrátt fyrir að Landsvirkjun sé margfalt stærra fyriræki. Enda var verðið sem fékkst fyrir hlutinn í Landsvirkjun gagn- rýnt harðlega af hálfu fulltrúa Samfylkingar í borgarstjórn auk annarra þátta sölusamn- ingsins, enda greiddu fulltrúar Samfylkingar atkvæði gegn honum. Samkvæmt sölusamn- ingnum er borgin ennþá í ábyrgðum fyrir 44,5% af skuldum Landsvirkjunar sem stofn- að var til fyrir 1.janúar 2007, en stofnað var til meginþorra skuldanna fyrir þann tíma. Andvaraleysi Sjálfstæðismanna fyrir hagsmunum borgarinnar virðist ekki minna nú, en í tíð Vilhjálms sem borgarstjóra, því hlutur Reykjavíkurborgar í því ábyrgðargjaldi sem Lands- virkjun þó greiðir virðist allt of lítill. Samkvæmt ársreikningi Reykjavíkurborgar 2008 fékk borgin greiddar 208 milljónir króna í ábyrgðargjald vegna ábyrgða á lánum Landsvirkjunar. Samkvæmt árs- reikningi Landsvirkjunar greiðir fyrirtækið um 845 milljónir í ábyrgðargjald vegna lána sinna. Þannig virðist hlutur Reykjavíkurborgar í ábyrgðargjalds- greiðslunum vera innan við fjórðungur meðan hlut- fallsleg ábyrgð borgarinnar er mun meiri. Ætlar meirihlutinn að sætta sig við þetta, bæði að láta snuða sig við söluna á hlutnum í Landsvirkjun og nú um eðlilegt ábyrgðargjald á skuldunum sem borgin situr ennþá uppi með ábyrgðir á? Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingar. Lengri útgáfa birtist á vísi.is Kaup og sala á orkufyrirtækjum SIGRÚN ELSA SMÁRADÓTTIR E rfitt getur verið að átta sig á því hver vill hvað í þing- inu. Þetta á svo sannarlega við í umræðum um aðildar- umsókn að Evrópusambandinu. Stefna Samfylkingarinnar í Evrópumálum er ljós og hefur lengi verið. Jafnljóst er að skoðanir eru skiptar í Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og Vinstrihreyfingunni grænu framboði, jafnvel í Borgarahreyfingunni sem virtist sam- stíga í aðdraganda kosninga um að ganga til aðildarviðræðna. Þegar ríkisstjórnin var mynduð var ljóst að ekki ríkti einhugur um Evrópusambandsmálið milli stjórnarflokkanna. Vinstrihreyf- ingin grænt framboð gekk þó til samstarfs við Samfylkinguna um norræna velferðarstjórn og kyngdi þeim bita að stjórnin hefði afdráttarlaust á verkefnaskrá sinni að gengið skyldi til viðræðna um aðild að Evrópusambandinu. Þeir menn sem nú gegna formennsku bæði í Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki lýstu því yfir í vetur sem leið að þeir teldu hagsmunum þjóðarinnar betur borgið innan Evrópusambands- ins en utan þess. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins hefur verið enn skýrari í þeirri afstöðu sinni. Afstaða formanns Sjálfstæðis- flokksins lagaði sig svo að samþykkt landsfundar, þess sama og kaus hann til formanns og þeirri línu hefur hann fylgt síðan. Svo virðist sem skoðun forráðamanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á því hvort Íslendingum sé betur borgið innan eða utan Evrópusambandsins skipti þau minna máli en viðleitnin til þess annars vegar að vera Þrándur í Götu ríkisstjórnarinnar og hins vegar að leitast við að sætta sjónarmið innan flokka sinna. Þarna verður að segjast að heldur minni hagsmunir og lægri hvatir víki fyrir því sem raunverulegu máli skiptir. Breytingartillaga stjórnarandstöðuflokkanna, um þjóðar- atkvæðagreiðslu um hvort farið skuli í aðildarviðræður eða ekki, er vesöl og til þess eins fallin að tefja málið. Vissulega er gott og gilt að leggja stórmál í dóm þjóðarinnar. Hins vegar er erfitt að leggja það sem ekkert er í þann dóm. Ríkisstjórnin lagði upp með það markmið að leggja inn umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Svo virðist sem meirihluti sé fyrir tillögunni í þinginu og ef hver einasti þingmaður greiddi atkvæði um tillögu meirihluta utanríkismálanefndar er einsýnt að meirihlutinn væri verulegur. Vinstri grænum hefur verið legið á hálsi fyrir að beita þing- mann sinn ofríki, ekki síst af forráðamönnum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er formaður Framsóknarflokksins þó ekki par ánægður með að að minnsta kosti þrír úr þingflokki hans ætli að greiða atkvæði gegn flokkslínunni, í samræmi við sannfæringu sína. Formanni Sjálf- stæðisflokks tekst betur með flokksagann því þar verða líklega sýnu færri þingmenn, ef nokkrir, sem fylgja sannfæringu sinni í atkvæðagreiðslunni um aðildarumsóknina. Þar fylgja menn spakir formanni sínum sem leggur línurnar um að hagsmunir þjóðarinnar víki fyrir hagsmunum flokksins. Það liggur sem sagt ljóst fyrir hvar flokksaginn er mestur. Flokksaginn og sannfæring þingmanna: Hver vill hvað í Evrópumálum? STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR SKRIFAR Eftir næstum fimm mánaða verkföll í frönskum háskólum til að mótmæla fyrirætlunum stjórnarinnar í málum þeirra hófst kennsla aftur í byrjun júní; reynd- ar þurfti sums staðar að senda til þess lögreglu á vettvang og láta hana bera verkfallsmenn á braut í fanginu. En þá var ekki eftir nema mánuður af skólaárinu; því var sums staðar ákveðið að láta prófin fara fram síðast í júní – sem er mun seinna en venjulega – en ann- ars staðar sáu menn ekki annan kost en að bíða með þau fram í sept- ember. Þeir sem skrifuðu um þessi mál í blöð og tímarit voru svartsýn- ir mjög og töldu að hætta væri á að prófskírteini sem fengjust við slík- ar aðstæður yrðu ekki mikils virði, og þekktur skopteiknari tók undir með þeim: hann teiknaði stúdenta sem veifuðu mótmælaspjöldum í janúar, febrúar, mars, apríl og maí og svo skírteininu í júní. En þetta er tæpast nein nýlunda, með stanslausu lagahringli í málefnum háskólanna, sem jafnan er kallað „umbætur“, hafa stjórnvöld tor- veldað raunverulegt starf þeirra á marga lund og dregið að sama skapi úr gildi þeirra prófa sem þar eru tekin. Tilgangur þeirra er að hafa háskólana sem ódýra geymslustaði fyrir ungt fólk svo það fari ekki á skrár yfir atvinnu- leysingja, hrúga þangað sem flest- um og sem lengst. Þó eru enn þeir staðir á heims- kringlunni þar sem prófskírteini úr frönskum háskólum eru gulls ígildi, og á öld frjálshyggjunnar hafa menn að sjálfsögðu kunnað að notfæra sér það. Fyrir nokkru var þannig stofnuð deild úr Sorb- onne í Abúdabí þar sem afkvæmi olíufursta gætu stundað nám gegn ærnu gjaldi og var því mjög hælt hve vel væri þar að öllu búið, t.d. var tekið fram að ekki væri nema takmarkaður fjöldi nemenda í hverjum tíma. En ef ekki eru fleiri en það í tíma í hinum upprunalega Sorbonne í París er eins líklegt að sá tími verði lagður niður, segja mér kunnugir menn. Svo fylgdi það með í fréttunum að tekjurnar af Sorbonne olíufurstanna ættu að koma Parísarháskóla til góða, en það segja mér einnig kunnugir, að ekki hafi þar enn sést ein sentíma af þeim peningum, þeir fara sjálf- sagt eitthvað annað. En það er víðar en við Persaflóa að prófskírteini úr frönskum háskólum eru mikils virði; Kín- verjar sækjast mjög eftir þeim. Það hefur að vísu ekki enn komið til tals að stofna einhvern Svarta- skóla við Gula fljótið, en kínversk- ir stúdentar koma gjarnan til Frakklands, og í einum háskóla að minnsta kosti, í Toulon á frönsku Rivierunni, hafa þeir fengið sér- lega góðar viðtökur. Nú er sem sé hafin lögreglurannsókn í málum einnar háskólastofnunar sem ann- ast kennslu í „stjórnun fyrirtækja“ og leikur sterkur grunur á að þar hafi prófgráður verið seldar kín- verskum stúdentum gegn ríflegu gjaldi síðan 2004. Gerð var húsleit í skrifstofum stofnunarinnar í vor og hafði lögregla á brott með sér tíu pappakassa fulla af prófblöðum Kínverjanna. Á nú að rannsaka hvort einkunnagjöfin sé í samræmi við innihaldið. Svo er að sjá að málið sé flókið og háttsettir menn í skólan- um kunni að vera flæktir í það. Stundum virðist svo sem um ein- staklingsframtak að ræða. Þannig sagði einn af heimildarmönnum blaðsins „Le Monde“ að kínversk- ur stúdent hefði selt þrjú hundruð löndum sínum fölsk prófskírteini árið 2008 og hefði hvert skírteini farið á 2700 evrur, en verðið hafi þó verið breytilegt. Það fylgdi með að þessi arðbæra verslun hefði sífellt verið að aukast, en í þessu máli var ekkert getið um hvort einhverjir hefðu verið í vitorði með stúdentinum í stjórn háskól- ans sjálfs, sem verður þó að teljast sennilegt. Í öðrum málum berast böndin hærra. Grunurinn vakn- aði fyrst, þegar einhver tók eftir því að kínverskir stúdentar áttu undarlega auðvelt með að ná próf- um: í meistaraprófi í stjórnunar- fræðum náðu til dæmis allir kín- versku kandídatarnir en meðaltal annarra sem standast slík próf var á milli sextíu og sjötíu af hundraði. Á þessu skólaári tók háskólinn í Toulon á móti hundrað kínverskum stúdentum, og voru þó um það bil 650 Kínverjar fyrir. „Fæstir þeirra geta talað frönsku,“ sagði einn af heimildarmönnum „Le Monde“. Annar sagði að þeir kæmu sjald- an í tíma og létu eins og þeir væru öruggir um að fá sínar prófgráður, - þeir væru því kallaðir „túrhest- arnir“. Til að þessi verslun geti farið fram þurfa einhverjir próf- dómarar að vera með í spilinu og vafalaust enn fleiri. Lögreglurann- sókn heldur áfram, en hætt er við að hún verði torveld, því forseti háskólans er að sögn áberandi í stjórnmálalífi borgarinnar. Og til hvers ættu menn að bregða fæti fyrir frjálsa verslun? Kannske eiga franskir háskólar eftir að bjargast í Abúdabí og Kína. Prófskírteini EINAR MÁR JÓNSSON Í DAG | Háskólar í Frakklandi Óháði sérfræðingurinn Í gær ræddu Freyr Eyjólfsson og Lára Ómarsdóttir við stjórnmálafræðing- inn Baldur Þórhallsson í morgun- þætti sínum. Málefnið hefur Baldur áður tjáð sig um, en rætt var um aðild að Evrópusambandinu. Fókus viðræðnanna var fyrst mismunandi áherslur stjórnarflokkanna um málið og hvaða áhrif þær hefðu á ríkisstjórnarsamstarf; hver þyrfti að gefa hvað eftir. Á einhverjum tímapunkti í viðræðunum hefði mátt koma fram að Baldur er varaþingmaður annars stjórnar-flokksins, en hvorki óháða sérfræðingnum né fréttamönnun- um tveimur þótti ástæða til að draga þá staðreynd fram í dagsljósið. Færði peningana Davíð Oddsson upplýsti á Skjá- Einum á mánudag að hann hefði tapað 3 til 4 milljónum króna í Landsbankanum. Eins og frægt var orðið fór Davíð í Kaupþing í fylgd blaðamanna og tók alla peninga síðan þaðan út og færði í annan banka. Líklegast Landsbankann. Úpps! Í því ljósi er athyglisvert að skoða mismunandi ávöxtun bankanna. Miðað við aldur og fyrri störf er líklegt að Davíð hafi verið í leið 4 hjá Íslenska lífeyrissjóðnum hjá Landsbankanum, sem skilaði 19,8 prósenta neikvæðri ávöxtun - tapi sem sagt. Hefði Davíð hins vegar haft lífeyr- issparnað sinn hjá Kaupþingi hefði það verið vistað hjá Frjálsa lífeyris- sjóðnum. Sambærileg leið þar hefði skilað honum 24 prósenta ávöxtun. Hafi Davíð tapað 4 milljónum má reikna með að hann hafi átt 20 milljónir í ársbyrjun 2008. Hefði hann haldið sig hjá Kaupþingi hefðu 4,8 milljónir bæst í sjóðinn. Andúð hans á Kaupþingi kallaði því á 9 milljóna sveiflu. kolbeinn@frettabladid.is Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Hjólafestingar

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.