Fréttablaðið - 15.07.2009, Qupperneq 13
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Kristín er stödd á Hnappavöllum
í Öræfum þegar í hana næst og er
þar við sína uppáhaldsiðju að vega
sig upp voldugt hamrastál. Kveðst
hafa nýlokið við að taka þátt í
maraþonklifri. „Við vorum hér 90
saman og þar af kepptu 25 manns
á aldrinum 10 til 45 ára. Þetta var
bæði einstaklings - og liðakeppni
og notað forgjafarkerfi svipað og
í golfi. Því áttu allir þátttakendur
möguleika á að vinna,“ lýsir hún.
Þegar Kristín er innt eftir eigin
frammistöðu kemur í ljós að hún
vann einstaklingskeppnina. „Ég
endaði með að vera stigahæst og
var mjög ánægð, enda lagði ég
mig alla fram,“ segir hún glað-
lega. „Liðið sem sigraði kallaði sig
1993 og þar var vísað í fæðingar-
ár allra þátttakendanna. Þeir klifr-
uðu allar leiðir sem voru boltaðar
1993 og luku við þá síðustu klukk-
an þrjú um nóttina. Þetta var sem
sagt sólarhringskeppni sem byrj-
aði klukkan hálftíu um morgun og
þeir sem voru lengst að klifruðu
til þrjú. Aðrir vöknuðu snemma og
klifruðu frá sex til hálftíu. Einn
lagði að baki samtals 435 lengdar-
metra,“ lýsir hún.
Kristín segir hópinn hafa tjald-
að í svokölluðu Miðskjóli. Þar hafi
verið skellt upp sameiginlegum
máltíðum, morgunmat, hressingu
um miðjan dag og kvöldkakói.
„Miðskjól er útisamkomusvæði
Öræfinga þannig að auk þeirra
90 sem voru í kringum klifrið
þá var þar líka sveitaball en það
spillti ekkert fyrir því allt fór svo
vel fram. Það hefur greinilega
verið líflegt undir Hnappavalla-
hömrunum þessa helgi og Kristín
var ánægð með veðrið. „Það kom
sólar-glæta þegar við buðum upp
á ís, annars var skýjað og smá gola
en þetta var fullkominn hiti fyrir
klifrið, ekki of mikil sól því þá
hættir manni frekar til að skrika.“
gun@frettabladid.is
Maraþonklifur og ball
undir háum hömrum
Áherslur fólks eru ólíkar á ferðalögum um Ísland. Sumir róa á kajökum og aðrir komast í beina snertingu
við náttúruna með því að klifra í klettum. Kristín Martha Hákonardóttir er ein þeirra síðastnefndu.
Kristín vann einstaklingskeppni í maraþonklifri um síðustu helgi í Hnappavallahömrum enda er hún eins og fluga utan í klettun-
um.“ MYND/SIGURÐUR MAGNI
KÓNGSBRÚ yfir Brúará hefur verið endur-
byggð af Ferðafélagi Íslands. Nýja brúin er
hin veglegasta og er göngubrú yfir Brúará þar sem
Kóngsvegurinn liggur í landi Efstadals og Syðri Reykja, um
10 kílómetrum neðan við Brúarárskörð. Fjölmargar skemmti-
legar gönguleiðir eru á svæðinu. www.fi.is
Dúnmjúkar
BRÚÐARGJAFIR
Laugavegi 176
Sími 533 2220
www.lindesign.is
Við hjá Lín Design erum í essinu þegar kemur
að brúðkaupsgjöfum. Vörulína okkar er hönnuð
á Íslandi þar sem íslensk náttúra spilar stórt
hlutverk. Allt okkar efni er sérvalið svo úr verð-
ur vara sem gefur mýkt og hlýju.
Brúðhjón sem eru með gjafalista hjá
Lín Design fá gjöf frá versluninni
ef keypt er af listanum.
Hlý og persónuleg þjónusta
Nýkomin blómaker og
garðvörur
Opið: má-fö. 12-18, lokað á laugardögum í sumar
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki