Fréttablaðið - 15.07.2009, Side 16
15. JÚLÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR2 ● fréttablaðið ● beint frá býli
Gæðamerki félagsins Beint frá býli
verður tekið upp með haustinu en
Árni Snæbjörnsson, verkefnastjóri
Beint frá býli, ferðast nú um sveit-
ir landsins og heimsækir meðlimi,
skráir upplýsingar um þá, kynn-
ir gæðamerkið og heyrir í þeim
hljóðið.
„Beint frá býli á gæðamerkið
og eingöngu félagsmenn fá að nota
það. Merkið er bundið því að félags-
menn sæki um, greiði fyrir og hafi
öll tilskilin starfsleyfi samkvæmt
gildandi lögum ásamt því að ásýnd
og aðkoma að býlinu sé góð,“
segir Árni, sem heimsótt
hefur mörg þeirra 71 býlis
sem aðild á að Beint frá
býli.
Aðspurður segir Árni
að merkið hindri ekki
aðra í að selja vörur beint
frá býli sínu. „Það er engin
skylda að nota gæðamerkið en
það er góður valkostur fyrir fé-
lagsmenn til að vekja athygli á
sérstöðu sinni. Merkið á að vera
þannig að þegar fólk sér það veit
það að varan er framleidd á býli
og að Beint frá býli
hefur samþykkt þá sem
það nota og er einkennismerki fyrir
þær vörur.“
Árni segir að með tíð og tíma sé
ætlunin að merkið vinni sig í sessi.
„Framleiðandinn og neytandinn
munu sjá ávinning af því að gæða-
merkið sé til staðar. Merkið verður
tákn um uppruna, tengsl við nátt-
úru og búskap, matarhefðir og oft
á tíðum öðruvísi vörur.“ - mmf
Gæðamerki tekið upp
Árni Snæbjörnsson segir að gæðamerkið hafi fengið góðar
viðtökur á þeim bæjum sem hann hefur heimsótt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Rakel og Arnar með börnin sín þrjú við hinn væntanlega bændamarkað Frú Laugu sem verður opnaður í byrjun ágúst. Börnin
heita Halldór Egill, Áslaug Birna og Gréta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Frú Lauga er nafn á markaði
með íslenskar matvörur sem
Rakel Halldórsdóttir og Arnar
Bjarnason opna bráðlega á
Laugalæk 8 í Reykjavík.
„Okkur finnst mikilvægt að nýta
hinar góðu afurðir landsins sem
gnægð er af,“ segir Rakel. Þó þau
hjón séu Reykvíkingar eiga þau
rætur á landsbyggðinni og Rakel
segir hugmyndina um bænda-
markað nokkurra ára gamla.
„Við bjuggum erlendis um tíma,
fyrst í Boston og svo á Ítalíu og
á báðum stöðum kynntumst við
skemmtilegum matarmörkuðum.
Eftir að við fluttum heim vorum
við alltaf að spekúlera í hvort
grundvöllur væri fyrir svoleið-
is hér en fundum ekki flöt á því.
Eftir hrunið eru aðstæður orðn-
ar aðrar og við fáum hvarvetna
góð viðbrögð við hugmyndinni,
enda ætlum við að leggja áherslu
á upplýsingar um hvaðan matvæl-
in eru og hvernig þau eru unnin.
Við kaupum vörurnar og bændur
þurfa ekki að koma sjálfir á stað-
inn nema öðru hverju með kynn-
ingar. Svo verður árstíðabundin
vara á boðstólum, egg á vorin, ber
á haustin, broddmjólk á veturna.
Það eykur á spennuna kringum
búðina.“
Rakel og Arnar eru nýkom-
in úr hringferð um landið. Þar
hittu þau bændur og fleiri fram-
leiðendur matvæla og eru hrif-
in af mörgu því sem fyrir augu
og bragðlauka bar. Þau nefna ís
á Erpsstöðum í Dölum og Árbæ
í Hornafirði, bláskel í Hrísey og
bleikju á Hala í Suðursveit. „Það
er gróska í matvælaframleiðslu
á landsbyggðinni enda möguleik-
arnir óþrjótandi. Margir bænd-
ur eru með miklar hugsjónir og
eru búnir að byggja upp spenn-
andi hluti. Þeir eru líka ánægð-
ir að koma vörum sínum á fram-
færi í Reykjavík.“
- gun
Góðar afurðir af gnægta-
borði landsbyggðarinnar
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08
Vilt þú...
• Læra að hlaupa á léttari máta?
• Hlaupa með minna álagi á fætur,
liðamót og mjóbak?
• Hlaupastíl með minni líkum á meiðslum?
• Bæta hlaupatíma þína án meira álags?
• Hlaupa þig í þína kjörþyngd og halda
kjörþyngdinni með hlaupum
• Hlaupa og bæta heilsu þína,
þol og þrek?
Hlaupastíls námskeið
Skráning á
www.smartmotion.org
og hjá Smára í síma
896 2300
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki