Fréttablaðið - 10.08.2009, Blaðsíða 4
4 10. ágúst 2009 MÁNUDAGUR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
28°
26°
27°
21°
21°
26°
21°
20°
20°
24°
20°
30°
35°
34°
20°
26°
25°
23°
Á MORGUN
Hæg breytileg átt.
MIÐVIKUDAGUR
Hæg norðvestlæg átt.
3
2
2
4
2
2
4
1
2
2
3
14
12
13
14
15
12
15
15
16
15
11
13 14
14
15
16 13
11 12
17
14
SMÁSKÚRIR
Veðrið verður
mjög svipað næstu
daga en það mun
einkennast af
hægviðri og lítils
háttar vætu og því
frábært útivistar-
veður. Það mun lík-
lega sjást eitthvað
meira til sólar
næstu daga, en í
dag verður fremur
þungbúið en ætti
að rofa til síðdegis,
einkum syðra.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Menntamálaráðuneytið veitir grunn-
skólum starfsleyfi, ekki menntaráð
eins og sagt var í laugardagsblaði
Fréttablaðsins.
LEIÐRÉTT
BAGDAD, AP Íröksk stjórnvöld
handtóku í gær breskan verktaka
sem grunaður er um að hafa orðið
tveimur samstarfsmönnum sínum
að bana, einum Breta og einum
Ástrala. Verktakinn skaut menn-
ina til bana á græna svæðinu í
Bagdad, sem umlykur höfuðstöðv-
ar Bandaríkjamanna í borginni,
og særði íraskan mann þegar
hann reyndi að flýja svæðið.
Bretinn gæti orðið fyrsti Vest-
urlandabúinn sem dæmdur verð-
ur fyrir morð af íröskum dómstóli
eftir að írösk stjórnvöld tóku við
öryggisgæslu á græna svæðinu 1.
janúar síðastliðinn.
Breti varð tveimur að bana:
Dæmdur fyrir
morð í Írak
HÁTÍÐ „Við höfum ekki tölu á hve marg-
ir mættu, það var svo gríðarlegt mannhaf.
Aðsóknin hefur aldrei verið meiri,“ segir
Júlíus Júlíusson, framkvæmdastjóri Fiski-
dagsins mikla á Dalvík. Dagskráin hófst síð-
astliðinn miðvikudag og segir Júlíus veðrið
hafa leikið við hátíðargesti, en það var nítj-
án stiga hiti og sól á Dalvík þegar blaðamað-
ur náði tali af honum. Markmið hátíðarinnar
er að fólk komi saman, skemmti sér og borði
fjölbreytta fiskrétti sér að kostnaðarlausu,
en Júlíus telur að rúmlega 100.000 matar-
skammtar hafi verið gefnir að þessu sinni.
Matseðillinn breytist ár frá ári en ávallt er
boðið upp á vinsæla rétti svo sem fiskborgara
sem eru grillaðir á átta metra löngu grilli,
lengsta grilli Íslands.
„Fiskborgararnir slógu í gegn og við grill-
uðum um 13.600 borgara, sem er met. Svo
kláraðist nánast úr stærsta súpupotti lands-
ins sem tekur ellefu hundrað lítra, en Bjarni
Óskarsson og félagar í Nings mölluðu þar
austurlenska súpu,“ útskýrir Júlíus. Öllum
réttum fylgdi brauð í boði Myllunnar og
drykkir í boði Vífilfells eins og hver gat í sig
látið. Aðspurður segir hann hátíðarhöldin
hafa gengið vonum framar. „Það er ekki hægt
að lýsa þessu, menn verða að upplifa þetta
sjálfir. Það eru allir saddir og sælir eftir
þetta og þakklætið er gríðarlegt hjá fólkinu
sem kom.“ - ag
Metaðsókn var á Fiskideginum mikla sem haldinn var á Dalvík nú um helgina:
Hundrað þúsund matarskammtar gefnir á Dalvík
BLÍÐVIÐRI Á DALVÍK Veðrið lék við hátíðargesti á Fiski-
deginum mikla á Dalvík þar sem boðið var upp á fjölda
fiskrétta fólki að kostnaðarlausu. MYND/HELGI STEINAR
BANDARÍKIN, AP Tæplega fimmtug-
ur maður í Kansas í Bandaríkj-
unum vann á dögunum í lottói í
annað skiptið á innan við ári.
Edward Williams vann 75 þús-
und dollara, rúmar níu milljónir
króna, á happdrættismiða í sept-
ember. Í síðustu viku vann hann
svo tæplega 900 þúsund dollara,
eða rúmar 110 milljónir íslenskra
króna, í lottói í Kansas.
Williams er fyrrverandi sjóliði
og vinnur nú hjá bílafyrirtæki.
Hann ætlar að leggja peningana
í banka og nota þá þegar hann
fer á eftirlaun, sem hann vonast
til að gera þegar hann verður 55
ára. - þeb
Heppinn Bandaríkjamaður:
Vann tvisvar í
lottói á einu ári
SIGLINGAR Íslandsmeistaramót-
ið í siglingum kjölbáta fór fram
í Skerjafirði um helgina. Sigldar
voru sex umferðir eftir IRC for-
gjafarkerfi, undir stjórn siglinga-
klúbbsins Ýmis í Kópavogi.
Mótið hófst á föstudaginn við
góðar aðstæður og alls tóku átta
áhafnir þátt í því. Íslandsmeistar-
arnir frá því í fyrra, áhöfn Dögun-
ar, náði forystunni á laugardag og
hélt henni til loka mótsins, Harð-
ur slagur var um annað og þriðja
sætið og skiptust áhafnir á þeim
sætum fram á síðustu stundu. Að
lokum var það áhöfnin á Aquari-
us sem hafnaði í öðru sæti, með
söngvarann Björn Jörund Frið-
björnsson innanborðs, en áhöfnin
á Lilju lenti í því þriðja. - ag
Íslandsmeistaramót:
Keppt í sigling-
um kjölbáta
KÍNA, AP Um ein milljón manna
hefur þurft að yfirgefa heimili sín í
Kína vegna mikilla flóða af völdum
fellibylsins Morakot. Áður hafði
fellibylurinn riðið yfir Taívan og
Filippseyjar. Einn hefur látið lífið í
Kína. Tuga manna er saknað í Taí-
van og að minnsta kosti 21 hefur
látið lífið á Filipps eyjum, og sjö til
viðbótar er saknað. Þrír evrópskir
ferðamenn eru á meðal þeirra sem
saknað er.
Gífurleg flóð hafa orðið af völd-
um fellibylsins. Í Taívan eru flóð-
in þau verstu í fimmtíu ár og hefur
úrkoman mælst 2000 millimetr-
ar. Þar hrundi sex hæða hótel út
í á vegna flóðanna, en búið var að
rýma hótelið áður en það gerðist.
300 manns voru á hótelinu, sem
var vinsælt meðal ferðamanna.
Fellibylurinn gekk yfir á föstu-
dag og laugardag. Sextán manns
er saknað eftir að hús hrundi í
flóði, þeirra á meðal voru tveir
lögreglumenn sem voru að hjálpa
fólki að komast út úr húsinu. Alls
er 31 saknað þar í landi og þrjú
dauðsföll hafa verið staðfest.
Skólum hefur verið lokað og öllu
flugi undanfarna daga hefur verið
aflýst.
Fellibylurinn kom á land á aust-
urströnd Kína í gær og bar með
sér gríðarmikla rigningu og vind
sem náði yfir hundrað kílómetra
hraða. Um 500 þúsund manns hafa
verið fluttir frá Zheijiang-héraði
og annar eins fjöldi frá Fujian-hér-
aði. Að minnsta kosti einn er lát-
inn. Lítill drengur lét lífið eftir að
hús sem hann var í hrundi og hann
grófst undir rústum þess. Fjór-
ir aðrir fjölskyldumeðlimir lifðu
af. Rúmlega 300 hús hafa hrun-
ið vegna rigninganna. Lögreglu-
menn hafa farið um og dreift vatni
og núðlum til þeirra íbúa sem eru
fastir í húsum sínum vegna flóð-
anna. 48 þúsund bátar og skip hafa
verið send í land og bæði flugferð-
um og strætóferðum hefur verið
aflýst í héruðunum.
Áhrifa fellibylsins gætir líka
í Japan, en í suðurhluta landsins
hefur verið mikil rigning og sterk-
ur vindur. Eina röskunin sem felli-
bylurinn hefur valdið þar í landi er
að flugi hefur verið aflýst.
Morakot er langsterkasti felli-
bylur sem gengið hefur yfir á
þessu ári á svæðinu, en þar eru
fellibylir algengir.
Fellibylurinn mun fara yfir
Sjanghæ í dag og hefur verið grip-
ið til mikilla varúðarráðstafana
vegna þess. Búist er við því að
fellibylurinn minnki frá og með
deginum í dag.
thorunn@frettabladid.is
Milljón manna þurft
að flýja heimili sín
Gríðarleg flóð hafa orðið af völdum fellibylsins Morakot, sem hefur farið um
nokkur Asíulönd undanfarna daga. Tugir hafa látið lífið og margra er saknað,
auk þess sem tæplega milljón manna þurfti að flýja heimili sín í Kína.
TAÍVAN Sex hæða hótel varð rigningunni að bráð í Taívan um helgina. 300 manns
voru á hótelinu en það var rýmt skömmu áður en það hrundi. Gríðarleg rigning og
vindur var í landinu um helgina á meðan fellibylurinn Morakot reið þar yfir.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hermenn með svínaflensu
Rúmlega fimmtíu bandarískir her-
menn í Írak hafa verið greindir með
svínaflensu. Sjötíu til viðbótar eru í
einangrun vegna gruns um smit. Allir
þeir sem greinst hafa eru á bata-
vegi. Fyrsta dauðsfallið af völdum
flensunnar í Írak var í gær.
ÍRAK
BANDARÍKIN Flest fólk verður
ánægðara eftir því sem það eldist,
ef marka má nýja rannsókn vís-
indamanna við Kaliforníuháskóla
í Bandaríkjunum, sem sagt er frá
á vef BBC. Fjölmargir sjálfboða-
liðar á aldrinum 18 til 85 ára tóku
þátt í ýmiss konar atburðum og
skráðu upplifun sína og tilfinning-
ar í dagbækur.
Þegar farið var yfir dagbækurn-
ar kom í ljós að eldri þátttakend-
ur voru almennt ánægðari, og ólík-
legri til að vera neikvæðir en þeir
yngri. Þá virtust eldri þátttak-
endur taka persónulega gagnrýni
minna inn á sig en þeir sem yngri
voru. - bj
Ný rannsókn á hamingju:
Gleðin eykst
með aldrinum
GENGIÐ 07.08.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
233,4168
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,35 125,95
209,87 210,89
179,69 180,96
24,168 24,31
20,586 20,708
17,459 17,561
1,3147 1,3223
196,08 197,24
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
NOTAÐU
FREKAR VISA
TÖFRASTUNDIR
VISA Í SUMAR
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ Á HVERJUM DEGI!
100 stórglæsilegir ferðavinningar
að verðmæti yfir 4.000.000 kr.