Fréttablaðið - 10.08.2009, Síða 12

Fréttablaðið - 10.08.2009, Síða 12
12 10. ágúst 2009 MÁNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Hvað eru slæmar fréttir? Formaður rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið fékk talsverða athygli í fréttum helgarinnar vegna þeirra orða sinna að líklega hefði engin nefnd nokkru sinni þurft að færa þjóð sinni eins slæmar fréttir og hún mun líklega gera í nóvember. Einhverjir klóruðu sér þó í kollinum yfir þessum orðum og þótti innihald þeirra heldur óljóst. Hvort teljast til dæmis verri fréttir; að nefndin reki hrunið til stórfelldrar óráðsíu, glæfra, glæpa og siðleysis íslenskra auðjöfra og stjórn- málamanna, eða frasakennt moð um að engum sé sérstaklega um að kenna, hér hafi bara samspil ýmissa þátta komið okkur í illviðráðanlegar aðstæður? Dæmi hver fyrir sig. Toppa þau Svavar? Miðað við ólguna sem Icesave-málið hefur vakið í samfélaginu er víst að mörgum finnst Páll Hreinsson og félagar eflaust eiga ærið verkefni fyrir höndum, ætli þeir að toppa þær fréttir samninganefndar Svavars Gestssonar að Íslendingar hafi handsalað samkomu- lag við Breta og Hollendinga um að greiða þeim á sjöunda hundrað milljarða króna á næstu árum. Hátíð umburðarlyndisins Gay Pride-hátíðin í ár var með allra glæsilegasta móti og það er sannarlega gleðiefni að metfjöldi hafi ákveðið að fagna fjölbreytileika mannslífsins í miðbænum á laugar- daginn. Það skaut hins vegar óneitan- lega dálítið skökku við að heyra annan kynninn á sviðinu við Arnarhól lýsa eftir týndri stúlku að ósk móður hennar, en brýna jafnframt fyrir barninu að á leið- inni að sviðinu mætti það alls ekki tala við útlendinga. Meðal áhorfenda heyrð- ist hvíslað að það væri kannski þörf á annarri umburðarlyndishátíð. stigur@frettabladid.is Það er ekki aðeins á Íslandi sem umræður um Evrópusamband- ið taka iðulega á sig sérkennilega óskýrar myndir. Ein ástæðan fyrir þessu er vafalítið sú að ekki er óalgengt að menn hafi mjög mót- sagnakennda afstöðu til fyrirbær- isins. Þannig er furðu algengt að einn og sami maður sé sannfærð- ur um að ESB sé að verða risaveldi sem ógnar því litla sjálfstæði sem ríki álfunnar njóta og um leið er hann viss um að sambandið virki ekki og sé að hruni komið. Önnur ástæða þess að umræða um mál- efni álfunnar taka iðulega á sig undarlegar myndir er sú að þrátt fyrir áratuga samrunaferli er umræðan um ESB gerólík frá einu landi til annars. Umræðuefnin eru hreinlega ekki þau sömu. Mál sem eru til miðju í einu landi eru tæp- ast nefnd í öðru. Í sumum tilvikum er umræðan gerólík innan svæða í Evrópu, ekki aðeins á milli þeirra. Og svo bætist við að umræðu- hefðin innan stjórnkerfis ESB og á milli aðildarlanda þess er með þeim hætti að gera alla hluti sem flóknasta. Einhver kallaði það „Brusselaðferðina“ við úrlausn deilumála að forðast kjarna máls- ins í lengstu lög, svona rétt eins og á Íslandi. Við gætum slegið í gegn í Brussel. Sjálfur hef ég verið stuðnings- maður aðildar Íslands að Evrópu- sambandinu í 33 ár. Ég skrifaði mína fyrstu blaðagrein um þetta ekki löngu eftir stúdentspróf og þrátt fyrir mörg tilefni og nokk- urt dálæti á því að skipta um skoð- un hefur mér aldrei tekist að losna við þessa sannfæringu. ESB er stór- gallað eins og önnur mannanna verk en það er hins vegar heimssögulegt fyrirbæri sem hefur haft djúpstæð áhrif á samvinnu manna utan þess og innan. Áhrifin eru meiri og víð- tækari en flestir virðast telja en þversögnin er sú að ESB er líka fjær því að vera risaveldi en and- stæðingar þess virðast álíta. Þarna kemur til munurinn á valdi, áhrif- um, viðmiðum og gildum. Frá degi til dags eru fréttirnar oft lítið uppörvandi fyrir einlæga Evr- ópusinna. Nýjasta tilefni velvildar- manna ESB til að örvænta um sam- bandið er umræðan sem nú á sér stað víða um álfuna um sameigin- lega utanríkisstefnu sambandsins og tvö ný embætti sem Lissabon- sáttmálinn gerir ráð fyrir. Þetta eru embætti eins konar utanríkis- ráðherra ESB og eins konar forseta leiðtogaráðs sambandsins. Fram til þessa hefur umræðan öðru fremur snúist um hvort Tony Blair verði fyrsti eins konar forseti ESB. Blair er einhver umdeildasti stjórnmála- maður Evrópu og fráleitur fram- bjóðandi til starfsins nema fyrir tengsl sín í Washington. Þetta er þó ekki það undarlegasta við þessa umræðu. Það sem er öllu alvarlegra við hana er að fátt liggur fyrir um völd og áhrif þessara nýju embætta og nánast ekkert um hvernig koma eigi í veg fyrir að þau séu sífellt að þvælast hvort fyrir öðru. Sáttmál- inn er eins og uppskrift að endalaus- um núningi og átökum á milli emb- ætta sem eiga að vinna að því að samræma stefnu nær þrjátíu ríkja í ólíkustu greinum alþjóðamála. Núverandi kerfi þar sem ríkin skiptast á um forustu hefur marga stóra galla en það hefur líka kosti, sérstaklega fyrir minni ríki sem oftast leggja mikið á sig til að ná árangri og gera það yfirleitt með því að þétta samstarfsnet sín innan og utan Evrópu. Þessi umræða hefur heldur ekki leitt til merkilegra skoðana- skipta um stöðu Evrópu í heimin- um. Sá hluti hennar virðist raunar einna fjarlægastur veruleikanum. Hlutfallslegur herstyrkur Evrópu minnkar ört þessi árin. Í Asíu er hafið vígbúnaðarkapphlaup sem mun, svo dæmi sé tekið, fljótlega gera indverska flotann öflugri en þann breska að ekki sé talað um mun meiri og ört vaxandi her- styrk Kína og viðbrögð Japana við honum. Um leið er Evrópa hins vegar risaveldi þegar kemur að áhrifum á hundrað ólíka hluti sem snerta kjör og aðstæður jarðarbúa og þeir láta sig miklu varða. Um það er minna talað en hernaðarmátt sem er veikari en menn vilja yfir- leitt viðurkenna, gamalt og úrelt atkvæðavægi í alþjóðastofnunum, ýmis konar táknmyndir valds sem eitt sinn var og nýja uppdrætti að heimsskipan sem verða úreltir hraðar en evrópskir stjórnmála- menn ná að ræða þá. Eins konar forseti er ekki aðeins óþarfur held- ur býr slíkt embætti til ímynd þess sem margir óttast í Evrópu, sam- þjöppun valds. Evrópusambandið er valdalítið en áhrifamikið risa- veldi og þannig á það að vera hvort sem menn líta þar inn fyrir dyr eða á stöðu þess í heiminum. Stundum erfið ást JÓN ORMUR HALLDÓRSSON Í DAG | Ísland og ESB Uppgjöf Fréttablaðsins UMRÆÐAN Ögmundur Jónasson skrifar um Icesave-samningana Dauft var yfir leiðarasíðu Fréttablaðsins á laugar- dag. Uppgjafartónn í leiðara, og litlu betri var Þorsteinn Páls- son, fyrrverandi ritstjóri Frétta- blaðsins, sem virðist helst sjá það aðfinnsluvert í íslenskum stjórn- málum að ríkisstjórnin skuli „sitja uppi“ með „andóf og tafleiki“ af hálfu nokk- urra stjórnarþingmanna og ráðherra í Icesave-mál- inu. Þar er m.a. átt við undirritaðan. Steinunn Stefánsdóttir kallar leiðara sinn „Það er búið sem búið er“. Þar er viðkvæðið svipað og hjá Þorsteini, búið sé að semja og síðan er því sleg- ið fram að „hver dagur“ sé dýr sem líði án þess að gengið sé frá ríkisábyrgð á Icesave-samningnum. Hvers vegna skyldi hver dagur vera dýr? Vegna þess að okkur séu ella allar bjargir bannaðar hér innanlands og vegna tafa á gjaldeyrislánum. En hversu mikill á gjaldeyrisforðinn að verða og hve mikils er til kostandi? Eru þau Steinunn og Þor- steinn sammála Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um að þessi þrjú hundruð þúsund manna þjóð þurfi 5,2 milljarða Bandaríkjadala forða, sem kemur til með að kosta okkur upp undir 20 milljarða kr. árlega í nettóvexti? Gæti dugað helmingi minna? Er ef til vill meira um vert í þröngri stöðu að leggja höfuð- áherslu á lækkun vaxta og fara hægara í sakirn- ar með slökun gjaldeyrishafta? Ég sakna þess að fréttaskýrendur reyni að taka þátt í gagnrýninni umræðu og velti vöngum yfir valkostum Íslands. En það krefst úthalds að gefast ekki upp, loka augunum; segja að við séum búin að fyrirgera öllum rétti okkar og verðum að leggja allt traust á AGS. Staðreyndin er sú að enn höfum við ekki gengist í ríkisábyrgðina þótt sumir hafi verið til þess albúnir að undirgangast hana án þess að gera minnstu til- raun til að kynna sér samninginn! Okkur ber skylda til að tryggja okkur eins vel og hægt er inn í fram- tíðina. Ef við leikum af okkur þá þurfum við að hafa styrk til að endurmeta stöðuna – svo lengi sem það er hægt. Í Icesave-samningnum er okkur gert að greiða vexti frá síðustu áramótum af meintri skuld við Breta og Hollendinga enda þótt Evróputilskipun- in kveði ekki á um að slík kvöð vakni fyrr en undir júlílok. Þetta gera 100 milljónir á dag. Það munar um hvern dag Steinunn. Heilsugæslan á höfuðborg- arsvæðinu fékk 500 milljóna skuldabagga í arf út úr þenslutímanum. Það jafngildir vöxtum af Icesave yfir verslunarmannahelgina. Það getur orðið okkur dýrkeypt að búa við fjölmiðla sem hafa ekki hug- rekki og staðfestu til að horfast í augu við vanda okkar og þora aldrei að endurmeta það sem gert er. Ég ætla að vona að menn gangi ekki til viðræðna við Evrópusambandið með þá uppgjöf í farteskinu sem birtist okkur í Fréttablaðinu sl. laugardag. Höfundur er heilbrigðisráðherra. ÖGMUNDUR JÓNASSON Þ eir fáu menn sem héldu um flesta þræði íslensks við- skiptalífs þar til það hrundi með látum haustið 2008 virðast enn standa í þeirri trú að þeir hafi ekki gert neitt rangt. Þvert á móti virðast þeir trúa að þeir hafi gert allt rétt. Einhverju öðru sé um að kenna hvernig fór. Vinsælast er að kenna Seðlabankanum og alþjóðlegri efna- hagslægð um ófarirnar. Til að komast að slíkri niðurstöðu í einlægni hljóta menn að þurfa að búa yfir alveg sérstakri tegund af sjálfsblekkingu. En líklegra er að viðkomandi viti betur en eigi erfitt með að viður- kenna mistök sín fyrir sjálfum sér og öðrum. Ekki stendur steinn yfir steini í banka- og fjármálakerfinu. Þar sem tilteknir menn fóru um er nú sviðin jörð. Samt segja þeir sjálfir að þeim hafi gengið gott eitt til og verið bara alveg ótrúlega flottir og klárir. Á Viðskiptaþingi árið 2000 gagnrýndi Sigurður Gísli Pálmason, sem þá var forstjóri Hagkaupa, nýja siði í viðskiptalífinu. „Í mínu ungdæmi þótti góð búmennska að hafa borð fyrir báru. Ég sef ekki rólegur á nóttunni, ef skuldir hlaðast upp án þess að tekjur og eignir aukist hraðar á móti,“ sagði Sigurður. Hann bjó að ráðdeild föður síns, Pálma Jónssonar. Nýja módelið var öðru vísi. Samkvæmt því var best að skulda sem mest. Allt var keypt fyrir lánsfé. Meira að segja menn sem áttu peninga tóku heldur lán til fjárfestinga en að nota aurinn sinn. Og allt þurfti að stækka. Án sérstakrar innstæðu fyrir vexti voru fyrirtæki belgd út. Þau voru stækkuð stækkunarinnar vegna. Velgengni var mæld í magni en ekki gæðum. Ekkert var látið í friði. Allt var verðmerkt. Hús var ekki lengur hús heldur hagnaðartækifæri. Það mátti kaupa, rífa, byggja nýtt og selja aftur. Vart þarf að taka fram að í gerviheiminum sem þessir menn sköpuðu utan um viðskiptalífið voru þeir sem ekki gengu í sama takti látnir fara. Ekki var þörf fyrir aðferðirnar sem þeir Pálmi og Sigurður Gísli beittu í sínum rekstri og þóttu boðlegar lengi vel. En nú er hugmyndafræði þessara manna gjaldþrota – alveg eins og fyrirtækin sem þeir stýrðu. Eftir situr íslenskur almenningur með ótrúlegar skuldir og í nagandi óvissu um framtíðina. Sökum viðskiptahátta fárra munu lífsgæði heillar þjóðar skerðast. Skóla- starf verður ekki jafn gott og áður, heilbrigðiskerfið verður verra og svo má áfram telja. Þar sem ekki verður stöðnun verður aftur- för. Engin framþróun verður á næstu árum. Það er síðra að þeir sem héldu um stjórntauma í bönkunum og fjárfestingarfélögunum gangist ekki við að eiga sök á þessu ástandi en svo verður bara að vera. Þeim er jú frjálst að hafa sínar skoðanir og þyki þeim gott að benda á Davíð og Bandaríkin þá þeir um það. Jörð er sviðin eftir útþenslustefnu viðskiptanna: Þeir telja sig enn hafa verið klára BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON Allt var keypt fyrir lánsfé. Meira að segja menn sem áttu peninga tóku heldur lán til fjárfestinga en að nota aurinn sinn.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.