Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 10

Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 10
SAMVINNAN 1. HEFTI sem lifir lengi á vörum þjóðarinnar, hefur verið ort hér á landi af mönnum. sem fæðzt hafa upp í þétt- býlinu. Hér er komið að mjög þýðingarmiklu atriði. Hafa þjóðflutningar innanlands og hið nýja atvinnu- líf, dregið í bili úr ljóðgáfu íslendinga og skapandi listagáfu á hærri stigum þróunarinnar? Svo má ekki verða til lengdar. En forráðamenn þjóðfélagsins verða að gæta þess, að um leið og þeir hjálpa til að mynda borgir og bæi í landinu, verða þar að þróast lifsskil- yrði, sem tryggja framhald dýrustu þáttanna í and- legu lífi þjóðarinnar. Viðhorf íslendinga til bókagerðar og bóklesturs er mjög athyglisvert atriði. íslendingar hafa löngum verið taldir brauðlaus bókaþjóð. Það er kunnugt, að hinir bláfátæku vesturfarar, sem fluttu til Ame- ríku, höfðu með sér tiltölulega mikið af hinum þjóð- lega bókakosti. Sá hluti þjóðarinnar, sem hélt við byggðinni í landinu, átti áreiðanlega jafn mikið af bókum í heimilum sínum. Þannig vöndust börn landsins við að umgangast bækur frá því þau komust á legg og líta á þær sem góða vini sína. íslenzk dreif- býlismenning hafði að mjög verulegu leyti verið byggð á þessum bókasöfnum heimilanna. Á þessu varð fyrst breyting í fyrra stríðinu. Bækur urðu þá til- tölulega dýrar, og í kreppunni, sem fylgdi stríðinu, urðu bókakaup almennings mjög lítil. Að Ukindum hafa hin nýja vélamenning og kreppan hjálpazt að því, að þúsund heimili í landinu hafa nú um alllangt skeið verið sama sem bókalaus, ef frá er talið kennslu- bókaslitur og bækur, sem oröið hafa eftir svo að segja af tilviljun á einstökum heimilum. Hin mikla bóka- útgáfa yfirstandandi tíma veldur raunverulega engri breytingu í þessum efnum. Dýru bækurnar eru keypt- ar sem gjafir við hátíöleg tækifæri, auk þess sem þær fylla skápa bókamanna og bókasafnenda. En þjóðin sjálf er nálega jafn bókalaus eins og áður var þrátt fyrir bókaflaum dýrtíðarinnar. Jafnvel lestrarfélögin, sem bæta þó að mörgu leyti úr bókaskorti heimilanna, megna ekki að kaupa nema lítið af hinni miklu fram- leiðslu yfirstandandi tíma. Eina viðleitnin, sem nokk- uð munar um til að endurreisa heimilisbókasöfn, er gerð á vegum menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins. Úrval íslenzku bókmenntanna, fornsögurnar og Heimskringlu, saga þjóðarinnar í mörgum bindum, auk minni verka um nútímaviðfangsefni, eiga að verða traustur hornsteinn undir nýrri heimilismenn- ingu á yfirstandandi vélaöld. Eitt af því, sem þjóðina vantar mjög tilfinnanlega, eru óhlutdrægir dómar um bækur og bókagerð. Meg- inhluti þess, sem sagt er um þessi efni í blöðum og tímaritum, er ekki mjög áreiðanlegur. Oft er það pant- að lof frá höfundum, til framdráttar verkum þeirra. Meðan svo er háttað, getur almenningur ekki stuðst við umsagnir ritdómara. En slíkt ástand er óviðun- andi til lengdar og ósamboðið menntaðri þjóð. Pant- aðir dómar um bækur eða listaverk eru á sínu sviði eins og falskar ávísanir í viðskiptaheiminum. Það er von og tilætlun forráðamanna samvinnufé- laganna og þeirra, sem standa að hinni nýju og stækkuðu Samvinnu, að tímaritið geti átt nokkurn þátt í að sveigja hina nýju menningu landsmanna inn á þroskavænlegar brautir. í því skyni hefur tekizt að fá einn af ritfærustu og bezt menntu mönnum þjóð- arinnar, Jón Eyþórsson veðurfræðing, til að vera einn af aðalritstjórum Samvinnunnar. Auk þess hafa ver- ið gerðar ráðstafanir til að tryggja sér samstarf og aðstoð margra annarra vel ritfærra manna. Eftir því sem samstarf þeirra manna verður fastara og örugg- ara, getur tímaritið með góðum árangri sinnt fleiri og fleiri viðfangsefnum. Hin nýja Samvinna mun jafnan flytja ritgerðir um félagsmál, hagfræði, um samvinnufélögin, þróun þeirra og framkvæmdir. Þá mun verða allmikið um fréttir frá útlöndum, um nýjungar í andlegum og verklegum efnum. Þá mun koma yfirlitsgrein um bókmenntir, listir og uppeldis- mál, ritdómar, myndir og teikningar af skipulagi í þéttbýli og dreifbýli, húsagerð í kaupstöðum, kaup- túnum og sveitum, af umhverfi húsa og sveitabæja, görðum og trjálundum, húsgögnum og húsbúnaði, fyrirmyndir um fatnað, bendingar um matarhæfi, skemmtanir og hollustuhætti. Mjög oft mun verða beint til lesenda spurningum um mörg umræðuefni og beðið um stutt svör til birtingar. Ef Samvinnan á að ná því takmarki, sem nú er stefnt að, þarf til þess margra manna vinnu, ekki að eins ritstjóra og fasta hjálparmenn, heldur aðstoð kaupenda og lesenda ut- an lands og innan, hvar sem íslenzkir menn dveljast. Ég hygg að auðveldast verði að lýsa fyrir lesendum væntanlegu viðhorfi hins nýja tímarits með því að víkja sérstaklega að tveim verkefnum: Húsagerð og fatnaði. Hér á landi er um að gera þrennskonar heim- ili: Hús í kaupstöðum, kauptúnum og sveitum. Sitt á við á hverjum stað . Þar, sem húsgrunnar eru dýrir í kaupstöðum, byggja menn oft há hús og litla garða. í kauptúnum er landrými meira. Þar eiga hús aldrei að vera há, en gróður og tún til gagns og prýði við hvert heimili. í sveitum er landrýmið mest. Þar er hörmulegt að sjá margra hæða hús, sem fara illa í umhverfinu og eru óþarflega erfið til íbúðar. í sveit- inni þarf skipuulag um alla húsagerð, þar með afstöðu íbúðarhúss til peningshúsa. Er það mál allt á frum- stigi enn sem komið er. Gömlu torfbæirnir höfðu náð ótrúlega mikilli fullkomnun, með reynslu margra alda. Þeir láku að vísu, og við því varð ekki gert með- 6

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.