Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 16

Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 16
SAMVINNAN 1. HEFTI Svikamyllan mikla Lærdómsrík reynsla úr síðustu styrjöld. Eftir Robert Gilbert Vansittart. Höfundurmn sýnir fram á, að Þjóð- verjar hafi í raun og veru aldrei greitt neinar skaðabætur. Þeir fengu jafnharð- an að láni eins mikið og þeir greiddu — en svikust um að borga það. Höfundurinn var aðstoðarráðherra í brezka utanríkisráðuneytinu frá 1930— 1938. Aldrei hefur önnur eins stórfölsun verið framin, síðan sögur hófust, og skaðabótagreiðsla Þjóðverja eftir fyrri heimsstyrjöldina. Það er nú orðið lýðum ljóst, hvernig veröldin lét blekkjast af áróðri Þjóð- verja. Þeir létu sér ekki nægja að telja trúgjörnum þjóðum trú um, að þeir gætu engar bætur greitt fyrir óskundann, heldur gerðu þeir sig að píslarvott- um, er þolað hefðu órétt. Satt er það, að Þýzkaland átti við talsvert þröng kjör að búa fyrstu árin eftir stríðið. En það var ekki vegna skaðabótanna. Það var vegna stríðs, sem var að ástœðulausu hafið og algerlega tapað. Þrenging- artími Þýzkalands varð ekki heldur langvinnur, og áður en skaðabótum var hætt, voru Þjóðverjar vissu- lega ekki verr stæðir en fórnarlömb þeirra, ef ekki betur. Meginatriði þessa kynlega söguþáttar voru þessi: 1) Þýzkaland stofnaði af ráðnum hug til villimennsku í heiminum. 2) Tjónið var óbætanlegt. 3) Þýzkaland gerði enga heiðarlega tilraun til að bæta það. 4) í þess stað hafði það í frammi hin furðulegustu undan- anbrögð. 5)Bragðvísi Þjóðverja leiddi til þess, að svik og prettir fengu frægan sigur. Bandamenn stigu fyrsta víxlsporið. Með því að reyna að þröngva Þjóðverjum til þess að bæta eins mikið af skemmdarverkum sínum og unnt væri, settu úr erlendum og innlenduni greinum um félagsmál og stjórnmál, vísindi og tœkni, atburði og einstaklinga. þeir skaðabótagreiðslu Þjóðverja of hátt. Að vísu var upphæðin ekki óréttlát, — 6600 milljónir sterlings- punda var aðeins fjórðungur af stríðskostnaði banda- manna, — en í framkvæmd var hún óhyggileg. Af- leiðingarnar urðu afdrifaríkar, því að þær gáfu áróðri Þjóðverja byr í seglin. Samt sem áður hefði mátt finna viðunandi lausn og samkomulag í þessu efni, ef þjóðverjar hefðu á nokkurn hátt sýnt vilja eða viðleitni til að bæta fyrir tjón það og hörmungar, er þeir höfðu leitt yfir heim- inn. En því fór fjarri. Þjóðverjar gerðu ekki ann- að en að hyggja á hefndir yfir fórnarlömbum sínum, sem höfðu borið sigurorð af þeim. Þeir voru staðráðnir í að greiða svo lítið sem unnt væri og mótmajla eins kröftuglega og frekast væri fært. Þeir könnuðust við enga sekt, en myrtu hina fáu landa sína, sem reyndu að minna þá á hinar óhugnanlegu og ógeðfelldu stað- reyndir. Fyrsta viðfangsefni Þjóðverja var að reikna út, hvernig þeir gætu bezt villt á sér heimildir. Þeir gengu að verki með mikilli útsjónasemi. Þeir sáu í hendi sér, löngu áður en Hitler kom til skjalanna, að stórlygum er miklu frekar trúað en smáýkjum. Þeir létu sem þeir greiddu miklu meira en þeir gerðu í raun og veru, og þeir kveinuðu hástöfum og án afláts. í þessu efni treystu þeir á takmarkalausa trúgirni þeirra, sem þeir ætluðu að táldraga, eins og vant er, þegar stórsvik eru framin. Heildarupphæðin, sem Þjóðverjar greiddu í skaða- bætur, var metin á 1038 milljónir sterlingspunda af skaðabótanefndinni. Þessar greiðslur dreifðust á mörg ár. Þar af voru aðeins 253 milljónir í reíðu fé. Afgang- 12

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.