Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 11

Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 11
1. HEFTI SAMVINNAN an þjóðin átti ekki kost á vatnsheldu efni í þök. En smábæirnir fóru vel í landslaginu, og voru tiltölulega hlýir og heilsusamlegir. Baðstofan var margt í senn. Hún var miðstöð heimilanna. Þar var starfað, hvílzt neytt matar og sinnt andlegum störfum. Þar dafnaði frjálsmannlegt fjölskyldu- og heimilislíf. Þar fékk móðurmálið brynju sína móti úrkynjun og málspill- ingu, sem hefur þróazt hraðfara, síðan heimilisfólk dreifðist um mörg herbergi, og börn urðu ekki nema að litlu leyti í sambúð við fullorðið fólk. í sambandi við ræktun og eflingu heimilanna koma mörg vanda- mál, sem þarf að leysa með heppilegu samstarfi margra manna. Fólk í þéttbýli, sem vinnur í búðum, skrifstofum, við kennslu eða önnur þvílík störf, hefur eftir föngum ieitazt við að taka til fyrirmyndar búnað karla og kvenna borgafólks í næstu löndum. En sveitafólk, sjómenn og verkamenn hafa á litlu að byggja í þessu efni. Hin aðfengnu borgaraklæði eiga ekki sérlega vel við aðstöðuna í sveit, í smáskipum við ströndina eða margháttuð dagleg störf. Þegar menn koma frá orfi eða ár í skrifstofu bæjarmanna til að reka erindi sín, þá hallast á um aðstöðuna. Borgarbúinn hygg- ur sig standa á viðurkenndum grundvelli fólks í stærri löndum um húsakynni, húsbúnað og fatnað. Þó að ekki sé um það talað, veit aðkomumaðurinn með sjálfum sér, að fatnaður hans er hálfgerður samtín- ingur, og hvergi byggt á föstu. Þetta gerir leikinn ó- jafnan. Maðurinn, sem hyggur sig standa á föstum grundvelli vestrænnar menningar, beitir sér ósjálf- rátt með meiri harðneskju, heldur en málefni standa til við mann, sem sýnist á vegum viðurkenndra tákna standa neðar í brekkunni. Úr þessu verður ekki bætt nema með því að rannsaka búningsmálin, og finna smátt og smátt heppilegar fyrirmyndir um hvers kon- ar fatnað við alls konar vinnu, karla og kvenna, á heimilum, á sjó og landi, við ferðalög, skemmtun og dvalir í þéttbýli. Takmarkið, sem hér er stefnt að, er að leitast við að finna mismunandi fyrirmyndir að húsum, húsbúnaði og fatnað, þar sem byggt er á mismunandi staðhátt- um, en allar fyrirmyndirnar raunverulega jafn góðar, jafn fullkomnar þannig, að þær njóta sömu viður- kenningar. Bóndinn og sjómaðurinn hafa þá á hverjum stað og tíma jafn örugga fótfestu í samstarfi stétt- anna eins og þeir, sem byggja á erlendri tízku. Mataræði er sannarlega svo mikill þáttur í lífi manna, að ástæða væri til að gefa því meiri gaum heldur en gert er. Matur og drykkur þjóðarinnar hef- ur tekið stórkostlegum breytingum síðan vélaöldin náði til íslands. Hin fábreytta, en að mörgu leyti þróttmikla þjóðlega fæða, varö að þoka úr sessi fyrir meira og minna viðvaningslegri matargerð eftir sið suðlægari þjóða. Bæði til sjávar og sveita varð það siður að selja beztu matvælin burtu, helzt úr landi, og nota úrganginn heima. Þessi vanræksla gekk svo langt, að í Reykjavík, sem lifði af því að framleiða saltfisk til neyzlu suður við Miðjarðarhaf, hefur venjulega verið ókleift að fá keyptan til neyzlu í bæn- um bezta útflutningsfiskinn. Sú vara fór til Suður- landa, en úrgangsfiskurinn var til sölu handa lands- mönnum sjálfum. Sama varð siðvenjan allt of víða í sveitum. Lélegasta kjötið var haft til heimaneyzlu. Smjör er að jafnaði lítt fáanlegt í landinu. Allur þorri manna verður að neyta smjörlíkis. Það er í einu dýrt og lélegt úrræði. í Kanada er bannað að búa til og selja smjörlíki. Það eru talin vörusvik. Allir nota smjör. Sú þjóð, sem leggur sér til munns úrgang þeirrar fæðu, sem hún framleiðir handa öðrum, sýnir sjálfri sér fyrirlitningu með þeirri framkomu, auk þess sem hún spillir heilsu sinni. Hér á landi á að vera hægt að afnema þennan ósið. Landið er ríkt að skilyrðum til góðrar matvælaframleiðslu. Hér eru ágæt skilyrði til að hafa í landinu sjálfu nóg af mjólk, smjöri, osti, skyri, eggjum, kjöti, fiski, síld og lýsi. Með vaxandi notkun jarðhitans og með meiri tækni í jarðrækt, má hafa heimaræktað grænmeti og garðmat í mörgum myndum. Þjóðin þarf ekki að flytja inn nema nokkuð af kornvöru, sykri og aldinum. Vandinn fyrir þjóðina er sá einn í þesum efnum að skapa nýtt viðhorf. í stað þess að sætta sig við að eta daglega óhollan, dýran og óheppilegan mat úr lélegum innlendum fæðuefnum og miður heppilegu viðbiti frá öðrum löndum, þarf ekki annað en að segja: Við leggjum stund á að framleiða góða íslenzka matvöru. Við not- um sjálfir það bezta, sem við framleiðum, með nauð- synlegri viðbót af góðri erlendri matvöru. Jafnframt þessu þarf að breyta matarhæfinu og skipuleggja ís- lenzka matreiðslu og halda í heiðri íslenzkum þjóð- réttum. Samhliða því þarf að hafa á gistihúsum og veitingastöðum venjulegan ensk-amerískan mat handa útlendingum, sem kunna að sætta sig betur við matargerð þessara tveggja stórlanda, heldur en okkar eigin matargerð, sem þjóðin verður þó að virða sjálf og koma á svo hátt stig, að ekki verði lengra komizt, þegar tekið er tillit til náttúrugæða landsins og þjóðhátta. Hér hefur verið vikið að hinni stórfelldu upplausn þjóðlífsins, sem leiðir af hinum miklu breyting- um, sem fylgja tilkomu vélanna. Sveitafólkið, sem byggt hefur kaupstaðina og kauptúnin, er mótað af dreifbýli og kann ekki að lifa í þéttbýli fyrr en kaup- Pramh. á 21. síðu 7

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.