Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 18

Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 18
SAMVINNAN 1. HEFTI ars völ en kasta sér í faðm Hitlers. Aðeins fáir minn- ast þess, að skaðabótagreiðslur voru afnumdar ári áður en Hitler komst til valda. Vitrustu heilar Þjóðverja höfðu gert sér ljóst, að þeir gætu vakið áhuga fjölda margra amerískra fjár- málamanna fyrir örlögum Þýzkalands, ef þeir gætu fengið nógu stórkostleg lán í Bandaríkjunum, og mundu þeir að lokum gangazt fyrir því, að skaða- bótagreiðslum yrði hætt, til þess að bjarga sínum eigin maurum. Sum fyrstu lánin voru veitt hinum miklu þýzku vopnaverksmiðj um, — fékk Krupp 10 miljónir og Thyssen 12 milljónir dollara. Þessir ágætu Þjóðverjar höföu sem sé ekki drepið nógu marga dugandi drengi hér í álfu, svo að þeim voru fengnar fleiri morðvélar tii uppörvunar. Næsta skrefið var svo stigið með því herópi, að því aðeins væri hægt að standa í skilum með „verzlun- arskuldirnar", að hætt væri skaðabótagreiðslum, en þær snertu á engan hátt hagsmuni Ameríkumanna. Öll dómgreind hafði viðrast burtu í moldviðri því, er þýzki áróðurinn hafði þyrlað upp um þessi mál. Sjálfir voru Þjóðverjar næsta höggdofa yfir árangri iðju sinnar. Svikamyllan mikla hafði heppnazt. í stað þess að reitast til reiði, vildi umheimurinn láta blekkjast ennþá meira. Þjóðverjar voru ekki seinir á sér að beita hina „verzlunarlegu“ lánardrottna sína undanbrögðum og stungu enn 1000 milljónum punda í vasann ofan á það, sem fyrir var. Þannig voru þeir hervæddir á nýjan leik til næstu herferðar sinnar. Þessi lýgilega saga verður ekki fullsögð, nema þess sé getið, að f j ársvikaríkið hefur í þessari styrjöld lagt á þjóðir þær, sem það hefur undirokað, árlegan skatt, er nemur 1000 miljónum punda í reiðu fé. Þetta er ferföld upphæð móts við það, sem Þýzkaland greiddi alls á 12 árum í reiðufé, að lokinni síðustu styrjöld. Hér við bætist hið stórfelda opinbera ránsfé og her- fang einstakra hermanna í herteknu löndunum, lang- ar lestir bifreiða og járnbrautarvagna, er flytja full- fermi af vörum og öðrum ránsfeng. Getum við séð svo um, að Þjóðverjar leiki ekki sama leikinn aftur? Okkur mun ekki takast það, ef við Ijáum eyra hinum margtuggða þvættingi um „hina góðu Þjóðverja“. — „Góðir Þjóðverjar“ fóru með völdin eftir síðasta stríð, en þeir lögðu þegar lag sitt við hernaðarsinna og stóriðjuhölda, sem höfðu það verk með höndum að undirbúa hervæðingu og næstu styrjöld. Mitt á meðal vor er fjöldi fólks, sem nú þegar er farið að undirbúa samúð með Þýzkalandi eftir stríð- ið. Eitt af vígorðum þeirra er, að „nú megi engar skaðabætur heyrast nefndar". Innan skamms munum „Söngur af himnum“ Rftir Hertha Panli Þegar jólasálmurinn „Heims um ból‘r hljómar um jólaleytið, er gott að minn- ast þess, hvernig hann kom inn í heim- inn fyrir 125 árum, og hvernig hann breiddist um gjörvalla jörðina. Það er 24. desembermánaðar 1818. f hinu ævaforna þorpi Hallein í Austurrísku ölpunum situr faðir Jos- ef Mohr aleinn í stofu sinni og les í biblíunni. Öll börnin í dalnum eru full eftirvæntingar, því að nú er aðfangadagur, þá fá þau að vera á fótum til mið- nættis og hlýða messu. Á leið sinni niður eftir hinum eyðilega, harðfrosna þjóðvegi báru þau nú logandi kyndla, svo að frá þorpinu var dalurinn allur til að sjá sem geysistórt jólatré með hundruðum kerta á hreyfingu. Hinn ungi prestur gaf engan gaum að ljósadýrð- inni í dalnum. Hann sat við eikarborðið í skrifstofu sinni með opna biblíu fyrir framan sig og var að undirbúa ræðuna til miðnæturmessunnar. Hann las ennþá einu sinni söguna um fjárhirðana úti í hag- anum, sem engillinn birtist og talaði til: „í dag er yður frelsari fæddur-—“. í sama bili og faðir Mohr las þessi orð, var barið að dyrum. Er hann svaraði, kom inn í stofuna bónda- kona með grófgert sjal um herðarnar. Hún kom til að segja honum, að kona kolagerðarmanns, er átti heima á efsta bænum í sókninni, hefði eignast barn úm morguninn. Foreldrarnir höfðu beðið hana að spyrja prestinn, hvort hann gæti komið til að leggja blessun sína yfir barnið, svo að það mætti lifa og dafna. við verða fræddir á því, að engin endurheimt megi eiga sér stað. Þjóðverjar og Þjóðverjasinnar munu róa að því öllum árum, að Þýzkaland fái að halda einhverju af bráð sinni og herfangi að minnsta kosti. Ef slíkar skoðanir fá að ryðja sér til rúms, er það sama sem sigur Þýzkalands í stríðinu. Ég staðhæfi ekki aðeins, að árásarríkið eigi ekki að borga, — eins og síðast, — heldur verði það að hljóta maklega borg- un. Það á að hernema Þýzkaland út í æsar jafnframt því, að það er afvopnað. Síðast voru þrengingar þess að mestu leyti yfirvarp og ekkert sambærilegar við það, sem aðrar þjóðir urðu að þola. Látum ekki blekkjast í annað sinn. 14

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.