Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 30

Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 30
SAMVINNAN 1. HEFTI Auðjöfrarnir amerísku Verða þeir enn auðugri af stríðinu? (Upplýsingarnar í grein þessari eru aðallega fengnar úr tímaritinu Kooperatören). Fyrir skömmu kom út bók eftir sænska hagfræðinginn Gunnar Myrdal, sem síðustu árin hefur dvalið í Ameríku, er hann nefnir „Ameríka í miðdepli heimsins.“ í bók þessari ræðir höfundurinn um iðnað og atvinnulíf í Ameríku, og hver áhrif stríðið hefur á þróun iðnaðarins og auðsöfnun. Af eðlilegum ástæðum leitar rík- isstjórnin fyrst og fremst til stór- fyrirtækjanna um kaup á vörum til hersins. Það er í sjálfu sér eðli- legt, að ríkisstjórnin leiti til stór- fyrirtækjanna, það er hagkvæmara að semja við fáa um mikil kaup, en að vera að kaupa hjá fjölda- mörgum fyrirtækjum og mörgum þeirra óþekktum. En af þessu leiðir að þessi stórfyrirtæki verða ennþá risavaxnari en áður og auðæfin, sem safnast í einstakra menn hend- ur, ennþá gífurlegri. Fjárhagsleg aðstaða stórfyrirtækjanna verður við þetta ennþá öflugri heldur en hún var fyrir stríðið, og valdaað- staða þeirra sterkari. í skýrslum, er fréttaritari blaðs- ins „Economist“ í London, sendi blaði sínu frá Ameríku fyrir nokkru síðan, segir hann, að hernaðartæki hafi þá verið keypt fyrir 50 mill- jarða dollara síðan í júlí 1940, og af þessu hafi um 70% verið keypt hjá um 100 stórfyrirtækjum. Þar af hefur verið keypt hjá General Motors fyrir 7 milljarð $, Curtiss Wright fyrir 4y2 milljarð og Beth- lehem Steel Corporation fyrir 3 milljarða. Þá hafa helstu forvígis- menn þessara risafyrirtækja verið settir í nefnd þá, er sér um innkaup á hernaðarvörum til ameríska hersins, til þess að þeir séu með- ábyrgir fyrir framkvæmd áætlun- arinnar um hergagnaframleiðsluna. Að sjálfsögðu eykur þetta enn vald auðjöfranna í hinu ameríska þjóð- félagi. Útgjöld ríkisins til hernaðarþarfa voru síðasta ár um 7% milljarða $ á mánuði, svo það er ekkert smáræð- is vald, sem hergagnaframleiðslu- nefndin hefur, þar sem hún hefur umráð yfir pöntunum fyrir slíkar risaupphæðir. Vegna þess að öll á- herzla er lögð á það, að efla her- gagnaframleiðsluna og afla nægi- legra hráefna til hennar, hefur framleiðsla annarra iðnvara til al- menningsþarfa verið látin sitja á hakanum. Slíkar vörur eru yfirleitt mest framleiddar af minni fyrir- tækjunum, og hafa þau því af þeim orsökum orðið afskipt. Þau hafa því orðið að gerast nokkurs konar undirfyrirtæki hjá stórfyrirtækj- unum, til þess að geta, gegnum þau, fengið einhver hráefni til iðn- aðar síns. Þannig hafa þau orðið algjörlega háð auðhringunum. Þessi þróun er svo áberandi, að stjórnin hefur sett á laggirnar nefnd til þess að athuga um á hvern hátt sé hægt að varðveita sjálfstæði smáfyrirtækj anna. Ríkið hefur að vísu hjálpað til að koma upp nokkrum iðnfyrir- tækjum vegna hergagnaframleiðsl- unnar og lagt fram hlutafé á móti einstaklingum. Aðallega hefur þetta hlutafé verið lagt í flugvélaverk- smiðjur, stálverksmiðjur, námur og skipasmíðastöðvar. Ef öll þessi fyrirtæki lenda í höndum einstakl- inga eftir stríðið, eykur það enn á auðsöfnunina og völdin í fárra manna hendur. En ef ríkið heldur áfram að eiga í þessum fyrirtækj- um og ef til vill meirihluta hluta- fjárins, verður stjórn þeirra í höndum ríkisvaldsins og getur þá vegið eitthvað á móti hringunum. Ekki er ólíklegt, að þetta geti orðið allgott fyrirkomulag eftir stríðið, að stórfyrirtæki séu sameign ein- staklinga og ríkis, og ábyrgðin og gróðinn skiptist á milli þessara að- ilja. Þetta fyrirkomulag er orðið all- algengt í Svíþjóð, að stærri fyrir- tæki, sem krefjast mikils fjár og jafnframt eru undirstaða undir at- vinnulífi og öryggi þjóðarinnar, séu sameign ríkis og einstaklinga. Hver veit nema þetta verði framtíðarfyrirkomulagið í mörgum löndum, þegar um stóriðnað, á hvaða sviði sem er, er að ræða. Með því skapast öryggi fyrir ríkis- valdið og almenning, því að þar með ætti að vera fyrir það byggt, að fáeinir menn geti þannig rakað saman stórfé á kostnað annarra, en hins vegar öryggi fyrir því að fyrirtækin leggist ekki niður, þótt eitthvað ábjátaði í svip, ef þau á annað borð eiga tilverurétt í þjóð- félaginu. Gl. R. Stökur. Alkunn er hin ágæta vísa um hinar heitu umræður á vetrarþing- inu 1932 um frumvarp til laga um virkjun Sogsins: Fellur mælskufoss að ós, freyðir á hverjum stalli. Ég held þó meir sé hiti en ljós að hafa úr þessu falli. Hnittin er einnig þessi vísa um hina nýju skattalöggjöf, er fram var borin á þinginu 1939: Stríður er fyrir stjórnarhatta stormur sá, er fólkið vekur, þegar hrammur þungra skatta þjóðinni fyrir kverkar tekur. 26

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.