Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 19

Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 19
1. HEFTI SAMVINNAN Faðir Mohr varð undarlega snortinn, er hann kom í kotið, þar sem hin unga móðir lá með barnið sofandi við brjóst sér, en gleðibros lék um andlit hennar. Umhverfið minnti að vísu ekki mikið á jötuna í borg Davíðs, en síðustu orðin, sem presturinn hafði lesið í biblíunni, bergmáluðu nú samt allt í einu í huga hans. Er hann hélt aftur ofan í dalinn, sá hann að hlíðarnar voru uppljómaðar af blysum fjallabúanna, er voru að þyrpast til kirkjunnar, og klukknahljóm- ur ómaði frá öllum þorpum nær og fjær. Faðir Mohr varð gagntekinn undursamlegum jóla- fögnuði. Er hann kom heim í stofu sína að lokinni messu, reyndi hann að skrifa á blað það, sem hafði borið fyrir hann. Orðin runnu saman í ljóðlínur, og þegar dagur rann, hafði faðir Mohr lokið kvæðinu. Og á jóladaginn setti vinur hans, Franz Gruber, söng- kennari við barnaskólanum, lag við tekstann. Börnin í þorpinu heyrðu, að presturinn og kennar- inn voru að syngja. Orgelið í kirkjunni var bilað, svo að þeir höfðu ekki annað hljóðfæri en gítar, sem Gruber spilaði á. „Guð hlýtur annars að geta heyrt til okkar, þó að við höfum ekki orgel“, sagði hann. Þeir vissu ekki, að á þessari jólahátíð hafði orðið til jólasálmur, sem átti eftir að breiðast um alla heimsbyggðina, þar sem jól eru haldin. í Zillerdalnum í Týról voru engin börn, sem höfðu eins fagra söngrödd og Strasersystkinin fjögur, Karó- lína, Jósef, Andrés og Amalía litla, sem var kölluð Malý og var svo lítil, að hún gat ekki borið orðin skýrt fram. Fólkið frá borginni sögðu oft um Straser- systkinin, að þau syngju eins og næturgalar. Þau fóru líka, eins og næturgalarnir, á hverju vori norður í Leipzig, sem er höfuðborgin í Saxlandi. Þar er árlega haldin mikil kaupstefna eða markaður. For- eldrarnir bjuggu til glófa úr geitarskinni, og börnin voru send með þá á markaðinn. Það var mikið um að vera í Leipzig í kauptíðinni, og börnunum frá Zillerdal þótti nóg um. En þau héldu sama sið og heima fyrir, ef eitthvað blés á móti: þau sungu öll saman. Og oftast sungu þau lagið, sem þeim þótti vænzt um, en það var „sönglagið af himn- um“. Börnin höfðu lært lagið af Karli Mauracher, nafn- toguðum orgelsmið í Zillerdalnum. Eitt sinn, er hann var að gera við orgel í þorpi einu, bað hann organist- ann að reyna hljóðfærið, að verkinu loknu. Þessi org- anisti var Franz Gruber, og af tilviljun datt hann of- an á að spila lagið, sem hann samdi við ljóð séra Mohrs. „Þetta lag hefi ég aldrei heyrt fyrr“, sagði orgel- smiðurinn. „Væri þér sama, þótt ég hefði það um hönd? Fólkinu heima hjá mér mundi geðjast að því.“ Gruber hafði ekkert á móti því og bauðzt til að skrifa það upp. En það kærði orgelsmiöurinn sig ekki um. Hann kunni lög í hundraðatali utan að og munaði ekkert um að bæta einu við. Lagið varð brátt mjög vinælt í heimabyggð hans og gekk undir nafninu: „Lofsöngurinn af himnum.“ Org- elsmiðurinn vissi ekki ,að hann hafði fengið í vega- nesti dýrlega gjöf til allrar veraldarinnar frá tveim ókunnum höfundum. Börnin urðu þess vör, að töframáttur sönglagsins hafði áhrif á fólkið í borginni, þrátt fyrir ösina og annríkið. Vegfarendur námu staðar og hlýddu á söng þeirra. Einn daginn kom til þeirra roskinn maður, er kvaðst vera hirðsöngstjóri í Saxlandi, og gaf þeim aðgöngumiða að hljómleikum, sem hann stjórnaði á ákveðnum tímum í gildaskála einum miklum í borg- inni. Urðu börnin næsta glöð við. Er þau komu inn í hinn mikla og skraulega sal, þéttskipaðan prúðbúnu fólki, urðu þau næsta feimin og því allshugar fegin, er þau voru leidd til sætis á lítt áberandi stað rétt hjá hljómsveitarpallinum. Þau sátu ennþá frá sér numin og gagntekin hrifningu að loknum hljómleikunum, er reiðarslagið kom: Söngstjórinn gekk fram og tilkynnti, að hér væru stödd fjögur börn, er hefðu hinar fegurstu raddir, sem hann hefði heyrt um langt skeið. Það væri hugs- anlegt, að þau fengjust til að skemmta konunginum og drottningunni í Saxlandi og öðrum viðstöddum með fáeinum hinna gullfögru Týrólsöngva sinna. Þessi tilkynning kom eins og þruma úr heiðskíru lofti yfir börnin. Þau eldroðnuðu því meir, er fólk tók að klappa. „Við skulum loka augunum og láta sem við séum að syngja heima hjá okkur“, hvíslaði Maly að systkinum sínum. Fyrsta lagið, sem þau sungu, var „lofsöngurinn af himnum“. Er þau höfðu lokið söngnum, varð sem snöggvast lotningarfull þögn, áður en fólkið lét fögn- uð sinn í ljós með lófataki. Börnin sungu alla söngva, er þau kunnu, og er þeir voru þrotnir, sungu þau lof- sönginn af himnum aftur. Fagnaðarlæti áheyrenda stóðu sem hæst, er ein- kennisbúinn maður gekk fram á sviðið og tilkynnti, að hans hátign, konungurinn, vildi fá að tala við söngvarana. „Þetta er sannarlega fagurt," sagði kóngurinn, er hann hafði heilsað börnunum, hverju fyrir sig. „Vér höfum aldrei heyrt þennan jólasálm fyrr. Hvaðan er hann?“ „Það er alþýðulag frá Týról, yðar hátign,“ sagði Jósef. „Viljið þið ekki koma til hallarinnar og syngja 15

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.