Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 27

Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 27
1. HEFTI SAMVINNAN Jón Sörensen: Friðþjófssaga Nansens, Kristín Ólafsdóttir þýddi. Verð í skinnbandi kr. 76.80. Það er góður búskapur hjá þeim Gunnari Einarssyni og frú Kristínu Ólafsdóttur lækni. Hún hefur í þrjú ár í röð valið og þýtt eina erlenda úrvalsbók á ári, en ísafold gefið út á þann hátt, sem bezt er gert hér á landi, þannig, að allt er vandað frá beggja hálfu, málið á þýðingunni, pappírinn og prentunin. Ævisaga Nansens er góð bók og gagnleg, en ekki tiltakanlega vel rituð frá hálfu hins norska höf- undar. Hann ber á borð mikið efni og gott, en það er ekki brætt saman í listræna heild. Ef til vill er þess ekki heldur þörf. Efni bókarinnar er óvenjulega samfelld heild. Nansen var einn af hinum fjölmörgu köppum norsku þjóð- arinnar frá 19. öld. Engar brota- lamir eru á lífsferli þessa afreks- manns. Hann er vaskur skíðakappi frá bernskuárum, fer á unga aldri hreystilega ferð á skíðum yfir Grænlandsjökla, fer þá vísinda- lega ferð um margra missera skeið yfir Norður-íshafið á galdraskipi, er hann lét smíða eftir sinni fyrirsögn og ekki gat brotnað eða sokkið í baráttunni við heim- skautajakana. Eftir þetta gerðist Nansen mikill rithöfundur, sendi- herra þjóðarinnar í London, þegar mest lá á að hafa þar snjallan mann í átökunum um frelsi Nor- egs 1905. Eftir Versalafriðinn var Nansen áhrifamesti maður frá litlu landi í þjóðabandalaginu og við mannúðarstörf þess. Nansen var mikill giftu- og fremdarmaður með þjóð sinni. Ævisaga hans er vekjandi og hressandi. Hún er holl til lestrar íslenzkum unglingum, því að í henni endurspeglast einn af gagnlegustu kostum norsku þjóðarinnar á þann hátt, sem mjög væri til eftirbreytni hér á landi. Norðmenn beita þeirri skyn- samlegu eigingirni að halda á lofti verkum dugandi manna, sem vaxa upp í landinu, í því skyni, að láta þjóðarheildinni verða sæmd að þeirri framgöngu. Þessi skap- gerðarþáttur Norðmanna virðist ekki hafa borizt með landnáms- mönnum til íslands, en því meira af skáldeðlinu. Einar Ól. Sveinsson: Á Njáls- búð. Ein af ársbókum Bókmennta- félagsins. Þjóðvinafélagið og menntamála- ráð láta félagsmenn sína fá Njálu sem félagsmannabók árið 1943. Þegar Einar Arnórsson ráðherra framdi það ótrúlega glappaskot vorið 1943, að heimila Halldóri Laxness og Ragnari Jónssyni að þýða Njálu á móðurmál þeirra fé- laga og gefa síðan út, gengu um 30 þingmenn úr tveim stærstu fiokkum þingsins fram fyrir skjöldu og kröfðust þess, að þjóð- arútgáfan kæmi Njálu sem félags- mannabók inn á 14 þús. heimili í vandaðri útgáfu. Var horfið að þessu ráði og undirbúningur verksins falinn Magnúsi Finn- bogasyni málfræðingi. Var bókin fullsett um síðustu áramót. Verða í henni allmargar myndir frá sögustöðum og landabréf, til að skýra viðburði sögunnar. Þessi framkvæmd varð til þess, að þeir félagar, Kiljan og Ragnar Jónsson, hættu við Njáluútgáfu sína, því að þeir vissu sem var, að hún mundi lítt þola samkeppni við hina glæsilegu útgáfu, sem nú er lýst. Hafa framannefndir alþingismenn með þessu bjargað þjóðinni frá að horfa á Njálu tötrum klædda og meiðslum marða. Hitt er þó mest virði, að fyrir næsta vor verður þessi mikla bókmenntaperla í fyrsta sinni í sögu landsins svo að segja í höndum fólks á hverju heimili. Bókmenntafélagið hefur árið sem leið gefið út í sérstakri bók nokkra fyrirlestra um Njálu eftir dr. Einar Ólaf Sveinsson. Gerir höfundur þar grein fyrir skoðun- um fræðimanna um það, hvenær og hvernig Njála er til orðin, og leitast síðan við að skýra skap- gerð og lundarfar helztu söguhetj- anna. Þessi bók dr. E. Ó. S. get- ur orðið einkar hentug handbók fyrir þá mörgu menn, sem nú í vetur fá Njálu í fyrsta sinni handa milli. Á Njálsbúð er myndarlegt rit, 180 bls. að stærð. Höfundur ritar hlýlegt og viðfelldið mál. Á ein- staka stað reynir hann að bregða fyrir sig orðabók Kiljans, svo sem í upphafi á skapgerðarlýsingu Hallgerðar: „Sandur, grár, blár, svartur — en einkum grár, óskil- greinilegur, litverpur, breytilegur, ekki stundinni lengur eins. Hann er af ætt grátsins, hins rauða, fasta, en sjálfur er hann upplausn alls sem er fast“ o. s. frv. Annan óþarfan ágalla hefur höf. tamið sér, en það er að flétta inn í bók- menntafræði sína tilvitnunum í 23

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.