Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 29

Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 29
1. HEFTI SAMVINNAN Leiklist Vopn guðanna. Á annan jóladag í vetur var sýnt í Reykjavík nýtt leikrit eftir Davið Stefánsson. Það heitir Vopn guð- anna. Skáldið sýnir í þessu leik- riti hin eilífu átök milli frelsis og kúgunar. Þar er grimmur einræð- ishöfðingi, nokkurs konar Hitler eða Stalin. Hann hefir lagt undir sig fjölmörg lönd, með vægðar- lausri grimmd. Hann álítur her- sveitir sínar ósigrandi og óstöðv- andi. Hvergi er skeytt um rétt eða tilveru einstaklingsins, jafnvel einkasonur og tilvonandi erfingi einvaldans er alinn upp í nokkurs konar fangelsi. En í þessari myrkvastofu brjótast fram andleg öfl, máttur siðmenningarinnar. Og að lokum hrynur veldi harð- stjórans og hann fellur óhelgur á sínum verkum. Ljósið hefir sigrað myrkrið og frelsishugsjónin kúg- unina. Þetta er hressandi skáldverk. Og það verður enn dýrmætara af því, að mikið af bókaflóði og skáld- verkagerð yfirstandandi tíma, er gersamlega annars eðlis. Öll bók- menntastarfsemi sú, sem fram fer á vegum kommúnista hér á landi, er túlkun á yfirdrottnun rang- lætis og harðstjórnar. Síðasta verk langfærasta mannsins í þeirri sveit, Halldórs Kiljan Laxness, er ömurleg myndagerð frá hörmung- aröldum íslendinga, þar sem mannverurnar lifa eins og slæm dýr, án nokkurs glampa frá lampa fegurðarinnar. Vopn guðanna er skáldinu og þjóðinni til sæmdar, skáldrit, sem er þrungið af frelsisþrá og mann- dómi. Málaralist Síðustu vikurnar hafa fimm málarar haft sýningar á verkum sínum í Reykjavík. Fyrst riðu á vaðið hin enska frú Barbara Árna- son og Magnús Árnason. Ferðast þau víða um land á sumrin, búa í tjaldi með ungan son, og mála menn og landslag. Frú Barbara er prýðilegur vatnslitamálari. Hefur enginn málari farið jafn fallega með íslenzkt landslag í vatnslit- um eins og hún, síðan Ásgrímur, en hann var mikill snilldarmaður á þeim vegi. Magnúsi vex ásmegin með aldri og reynslu, bæði sem landlags- og mannamyndamálara. Er þessi sýning hans bezta. Frey- móður Jóhannsson var hinn þriðji í röðinni. Þverhandarmenn bera þungan hug til Freymóðs, jafnt fyrir kosti hans og galla. Þeim þykir hann gera viðfangsefni sín, hvort heldur eru menn eða lands- lag, of smáfrítt og litfrítt. Auk þess selur hann að jafnaði allmik- ið á sýningum. Freymóður hefur skarpa náttúrugáfu á vissan hátt og nær oft einkennilega mikilli líkingu. En hann er að öllum jafn- aði fljótvirkur um of, og stundar ekki hægan einfaldleika. Á þess- ari sýningu voru vorir fyrstu for- eldrar með frumburð sinn sýndir á þann hátt, sem andstæðingar þessa málara gætu frekast kosið. Eru það þarflaus vinnubrögð hjá Freymóði. Finnur Jónsson er einna at- hafnamestur allra íslenzkra mál- ara. Hafði hann mikinn fjölda mynda á sýningunni. Gat þar að líta fjöll og jökla, djúpa dali, haf í öllum myndum, skip og báta og margháttaðar manneskjur. Finn- ur lærði málaralist í Þýzkalandi, þegar þungt var yfir þjóðinni, eft- ir Versalasamningana. Hann ber þess merki, glímir af kröftum og fellir alla, eins og Þórhallur bisk- up sagði um rithöfund. Finnur er gæddur góðum hæfileikum, hefur mikla tækni og elju. Hann býr á mótum tveggja heima. Stundum, og raunar oftast, leitar hann að fegurð, en þess á milli sezt hann á neðsta bekk hjá sonum myrk- ursins, hjá Þorvaldi Skúlasyni og öðrum slíkum. Engin hætta er á, að Finnur verði þar landfast- ur. Til þess er hann gæddur of miklum mætti og sköpunarþrá. Jón Engilberts er einn af hinum fáu Reykvíkingum, sem stunda málaralist með nokkrum árangri. Það er honum æviólán að hafa fæðst tuttugu árum of seint, þegar það fór að verða tízka að segja, að það sem er ljótt sé fallegt, eins og eitt af yngri skáldum landsins komst að orði eftir að hafa séð sýningu Þorvaldar Skúlasonar í haust. Á þessari sýningu Jóns Engilberts voru allmargar teikn- ingar, sumar að vísu mjög klúrar og lítt smekklegar, en þær báru vott um talsverða meðfædda hæfi- leika og góða tækni, Hins vegar voru flest málverkin með þeim hætti, að hvei húsamálari myndi hafa getað gert þau jafngóð með sínum litum og áhöldum. Sem betur fór seldu allir þessir málarar töluvert af myndum sín- um og sumir mikið. Frú Barbara mun hafa selt sama og öll málverk þau, er hún sýndi. Smekkur manna er misjafn, og þessar sýn- ingar og salan, sem gerist þar, ber vott um breytilegar kröfur höfuð- staðarbúa, og löngun margra manna til að fá í heimili sín 'ist, eða það, sem þeir halda að sé list. Stríðsgróðanum er oft varið lakar hér á landi, heldur en til að kaupa myndir og bækur. Misjafnlega þroskuð dómgreind í þessum efn- um sýnir hneigð hjá mörgum mönnum að sinna andlegri við- leitni samtíðarinnar. J. J. 25

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.