Samvinnan - 01.01.1944, Side 12
SAMVINNAN
1. HEFTI
TILBÚIN HÚS
Eftir ÞÓRI ICA I, II V l\SSO \
Mörg ár eru liðin síðan farið var að gera tilraunir
með tilbúin hús. Fyrsta kynning okkar af þeim, voru
„tilhöggnu" húsin, sem flutt voru hingað til lands
frá Noregi. Hús þessi voru gerð úr hlöðnum timbur-
stokkum, en borðaklæðing að utan og innan. Timbur
í þessi hús hafði allt verið sagað og höggvið til réttrar
lengdar og lögunar í verksmiðjum úti í Noregi, og
var hverri fjöl og hverjum stokk ætlaður ákveðinn
staður, og allt tölusett eða merkt eins og við átti.
Með þannig efnivið í höndum áttu hefill og sög að
vera óþörf tæki á byggingastaðnum. Hamar og halla-
mælir voru þau vopn, sem áttu að duga.
Oft virtust þessi hús ódýr, þegar þau voru athug-
uð á síðum verðlistanna. Jafnan fór þó svo, að þegar
til framkvæmda kom og farið var að reisa þau og
búa til íbúðar, að margt vildi tínast til, bæði efni til
viðbótar því, sem verksmiðjan lét af höndum, og vinna,
er jafnan reyndist meiri en í fyrstu var hugað. Kom
svo að lokum, að hús þessi, sem í fyrstu virtust kjara-
kaup, reyndust fullbyggð engu ódýrari eða betri en
önnur hús.
Ekki er ólíklegt, að nokkru hafi valdið óvani og
kunnáttuleysi þeirra manna, sem að bygging þessara
húsa stóðu. Þau voru sett saman úr furðulegum fjölda
margvíslega lagaðra timburstykkja, sem oft voru ó-
glöggt merkt og reyndust þá næsta torfundin. Sam-
setningar bjálka og bita voru oft frábrugðnar því,
sem hérlendir smiðir áttu að venjast, en skýringar
og leiðbeiningar, sem fylgdu, á erlendu máli. Loks var
sjaldnast sett upp meira en eitt hús í einu á sama
stað, og varð því hvert einstakt hús að bera fullan
skerf af mistökum og vankunnáttu, en það sem lærzt
hafði og áunnizt fór forgörðum, þar sem ekki var
haldið áfram.
Fyrir riimu ári síðan flutti Kaupfélag Reykjavíkur
inn tilbúið hús frá Ameríku. Hús þetta vakti þá mikla
eftirtekt og umtal og gerðu menn sér vonir um, að
hér væri um að ræða umbætur í byggingamálum, er
kynnu að hafa mikla þýðingu. Reynslan varð þó
mjög á annan veg. Orsakaðist það meðfram af hinum
geysidýra flutningskostnaði, sem að vísu var vitað að
mundi verða mjög mikill. Óhætt mun einnig að full-
yrða, að óheppilega hafi tekizt með val þessa húss.
Það var ekki ólíkt hinum norsku stokkahúsum að því
8