Samvinnan - 01.01.1944, Blaðsíða 23
1. HEFTI
SAMVINNAN
8. Hof á Ítalíu.
Pýramíöinn, hofrústir í Egyftalandi og hofið á Ítalíu
líta nú út eins myndirnar sýna. Höll í Mesapótamíu
og musteri Salomons er löngu horfin, og myndirnar
gerðar eftir fornum lýsingum. Hofið í Egyftalandi,
háborg Aþenumanna og gríska hofið er sýnt hér eins
og þessar byggingar hafa litið út, ef dæmt er eftir
þeim leyfum, sem enn eru til af þeim.
6. Akrópolis, háborg Aþenumanna.
Pýramídarnir eru sumir taldir vera 6000 ára gamlir.
Þeir eru elztu, rammgerðustu og endingarbeztu stór-
byggingar, sem til eru í heiminum. Pýramídarnir voru
byggðir til að geyma lík konunga og stórhöfðingja.
Innst í hverjum pýramída er lítið grafhýsi, og liggur
þangað þröngur, krókóttur gangur með torfundnum
dyrum, til varnar gegn grafræningjum. Pýramídarn-
ir eru byggðir úr höggnu grjóti. Tönn tímans vinnur
ekki á þessum stórhýsum, þó að aldir líði. Hof Egyfta
voru voldugar stórbyggingar. Standa súlurnar víða
enn, því að efnið er hart og seigt.
7. Hof í Grikklandi.
Hallir fornkonunganna í Mesapótamíu voru mikil
mannvirki, en féllu brátt í rústir, því að þær voru
byggðar úr þurrkuðum leir. Gamla testamentið lýsir
greinilega hinu fræga musteri Salomons, en sú fræga
bygging var eydd með eldi og járnum erlendra her-
þjóða. Á tímum Períklesar, nokkrum öldum fyrir
Krists burð, reistu Grikkir úr hvítum marmara súlna-
göng og hof á klettahæð utan við Aþenuborg. Er það
mál manna, að þær byggingar hafi verið fegurstar og
bezt gerðar í húsbyggingum allra þjóða og alda. Á
fullkomnustu hofum var einföld súlnaröð meðfram
hliðveggjum, en tvöföld röð fyrir hverjum gafli. Flest-
öll grísku hofin eru nú að miklu leyti í rústum eftir
hermdarverk og styrjaldir fyrri alda. En á Suður-
Ítalíu, skammt fyrir sunnan Róm, í Paestum, er grískt
hof frá fornöld, svo lítið skemmt, að það gefur fulla
hugmynd um hofgerð Grikkja, þó að ekki væru til
aðrar heimildir. J. J.
19