Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1944, Page 24

Samvinnan - 01.01.1944, Page 24
SAMVINNAN 1. HEFTI U M HEIMA O G GEIMA EFTIR JÓN EYÞÓRSSON SAMVINNAN er stefnubundið tímarit, en óháð stjórnmálaflokkum. Hún er málgagn samvinuufélag- anna í landinu, tekur svari þeirra, ef á þau er hallað, og mun beita sjer með fullri einurð gegn þeim öflum, er leitast við að rjúfa samvinnufélögin eða hnekkja skipulagi þeirra, hvort heldur er til sjávar eða sveita. Samvinnumenn vilja vinna að því að skapa heil- brigðan félagsþroska á öllum sviðum þjóðfélagsins, stuðla að andlegu sem efnalegu sjálfstæði hvers ein- staks þegns í þjóðfélaginu og samvinnu þeirra allra. Samvinnumenn telja sér því ekkert óviðkomandi, sem miðar að framförum þjóðarinnar: húsakost og húsbúnað, bókmenntir og listir, bjargræðisvegi til sjós og lands, félagsmál og félagsþroska. // // // SAMVINNAN mun því engan veginn einskorða sig við verzlunarmál, þótt á því sviði hafi samvinnu- félögin lyft stærstu Grettistaki hingað til. Samvinn- an mun vera útbreiddasta og fjöllesnasta tímarit, sem gefið er út hér á landi. Með stækkun þeirri, sem nú er gerð á henni, fær hún aukið bolmagn til að sinna fjölþættari verkefnum og áhugamálum en áð- ur. Mun verða leitazt við að hafa efni svo fjölbreytt til gagns og skemmtunar, að allir lesendur, ungir sem gamlir, finna þar nokkuð, er þeim þyki fengur í að kynna sér. Ritið mun koma út mánaðarlega, nema í júlí og ágúst, alls 10 hefti á ári. Verður ár- gangurinn allt að 400 bls. Vegna stækunarinnar hefur orðið að hækka áskriftagjaldið, en Samvinnan mun þó eftir sem áður verða langódýrasta tímarit lands- ins, miðað við stærð. // // // SAMVINNAN kemur nú einnig í nýjum ytri bún- ingi til lesenda sinna. Hefur Tryggvi Magnússon málari gert hina nýju kápu af mikilli vandvirkni og smekkvísi sem hans var von og vísa. í reitnum ofan til verða að jafnaði birtar myndir af forustumönn- um og aíreksmönnum samvinnufélaganna, innlend- um sem erlendum. Hefst myndasafn þetta með mynd hins nýlátna brautryðjanda í samvinnumálum sunn- lenzkra bænda, Hannesar Thorarensens, en hann veitti Sláturfélagi Suðurlands forstöðu um langt skeið. Á neðra reit kápunnar verður prentað efnisyfirlit hvers heftis í aðalatriðum. Ýmsar fleiri breytingar og nýj- ungar munu smám saman koma til greina í Sam- vinnunnj en við varð komið í þessu hefti. ÁRAMÓT. Þessi áramót eru hin 5. síðan ófriður- inn hófst, en þrjú og hálft ár var þá liðið síðan brezk- ur her settist að á landi hér. Það virðist nú vera al- mennt gert ráð fyrir því, að stríðinu verði lokið á þessu ári í Norðurálfu, en búast má við, að Kyrra- hafsstyrjöldin vari talsvert lengur. Montgomery, hinn harðsnúni foringi 8. hersins brezka, sagði nýlega í ávarpi til hermanna sinna: „Við verðum að leggja hart að okkur til að útkljá styrjöldina á þessu ári. Við ætlum okkur það og við getum það.“ Þegar þetta er ritað eru Rússar komnir inn í Pólland, hafa frels- að Leningrad algerlega úr umsátri og nálgast landa- mæri Eistlands. Her Þjóðverja hopar á hæli, en veitir þó snarpa mótspyrnu. Flugherir Breta og Bandaríkja- manna hamra látlaust á stórborgum Þjóðverja dag og nótt. Á Ítalíu gengur framsókn Bandamanna hægt en jafnt. Nálgast þeir nú Rómaborg sunnan frá. Á Kyrrahafsvígstöðvunum ná Bandaríkjamenn hverri fótfestunni af anarri í útjöðrum hins gífurlega stóra svæðis, sem Japanar hafa lagt undir sig, en yfirráða- svæði þeirra er að heita má óskert ennþá.Munu þar mikil tíðindi gerast, áður en hið gula ormabæli verð- ur unnið. // // // VIÐ íSLENDINGAR byrjum þetta ár með þeim fasta ásetningi, að taka formlega í okkar hendur yfirstjórn allra okkar mála. í raun og veru höfum við þegar haft hana síðan í apríl 1940, er sambandsþjóð okkar var lögð undir ok Þjóðverja og öll tengsl rofin milli landanna fyrirvaralaust. Allir munu harma það, að viðskilnaður okkar við dönsku þjóðina skyldi ger- azt með svo sviplegum hætti og öðru vísi en til var stofnað með sambandssáttmálanum frá 1918. En þar hafa skorizt í leikinn öfl, sem eru ofjarlar Dana, engu síður en okkar. ísland á ekki og hefur aldrei átt land- fræðilega né fjárhagslega samleið með Danmörku. Sambandið hefur skapazt fyrir tilviljun. Það hefur rofnað tvisvar í raun og veru — fyrir tilviljun — á 25 árum. Þegar á reynir, erum við sem jafnan fyrr Einbúi Atlantshafsins meðal þjóðanna. Landið okkar liggur þar, sem rastir mætast og allir vindar gnauða, — ekki aðeins á legi og í lofti, — heldur og í sam- skiptum stórþjóðanna. Á þessum „lífsins ólgusjó“, verðum við að halda þjóðarskútu okkar í horfinu af eigin rammleik og réttlætiskennd hinna voldugu ná- 20

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.