Samvinnan - 01.01.1944, Page 28
SAMVINNAN
1. HEFTI
framandi höfunda úr ýmsum mál-
um. Sig. Nordal gerði nokkuð að
þessu áður fyrr, en hætti því brátt.
E. Ó. S. fer bezt, eins og öðrum
mönnum, sem fást í alvöru við
nýtileg, andleg störf, að stunda
einfaldleika í meðferð máls og
efnis.
Brynjólfur Sveinsson: Minning-
ar frá Möðruvöllum. Akureyri:
Prentverk Odds Björnssonar. Árni
Bjarnarson gaf út. Verð 60 kr. í
bandi.
Þetta er ein af merkisbókum
hins liðna árs. Árni Bjarnarson
útgefandi á Akureyri hefur feng-
ið 15 merka Möðruvellinga til að
rita endurminningar um skóla-
veruna þar. Ingimar Eydal rit-
stjóri hefur ritað sögulegt yfirlit
um baráttu Norðlendinga fyrir
endurfæddum Hólaskóla. Bókin
er prýdd myndum frá Möðruvöll-
um, af skólahúsinu, kennurum
skólans og öllum þeim gömlu læri-
sveinum, sem eiga ritgerðir í bók-
inni. Vel er vandað til ritsins, um
pappír og prentun. Er prentverk
Odds Björnssonar enn sem fyrr í
fremstu röð með öll vinnubrögð.
Minningar frá Möðruvöllum eru
saga eins hins merkilegasta og
þýðingarmesta skóla, sem starfað
hefur hér á landi frá því að kennsla
hófst á Möðruvöllum haustið 1880,
og þar til er skólahúsið brann til
kaldra kola rúmlega 20 árum síðar.
Á þessu tímabili stunduðu nám í
þessum skóla fjölmargir af þeim
mönnum, sem síðar urðu braut-
ryðjendur hvers konar framfara í
landinu. Frá Möðruvöllum komu
margir af allrafremstu leiðtogum
samvinnufélaganna, þar á meðal
Hallgrímur og Sigurður Kristins-
synir, fjölmargir áhrifamenn í
stjórn héraða og bæja, skáld, rit-
höfundar, þingmenn og ritstjórar.
Ég hygg, að óhætt sé að fullyrða,
að aldrei endranær í sögu landsins
hafi jafnmargir þýðingarmiklir
umbótamenn komið út í starfslíf-
ið úr jafn fámennum skóla eins
og þeim, sem haldinn var á
Möðruvöllum síðasta fimmtung
19. aldar.
Hinir 15 höfundar skýra þessa
gátu. Húsakynnin voru þröng,
köld og óhentug. í skólanum var
svo að segja alger vöntun allra
þæginda. Matur nemenda var ó-
brotinn en heilsusamlegur, og til-
hald þeirra í búnaði í minnsta
lagi. En sá kynstofn, sem kom í
skólann, var sterkur, þolinmóður
og bjartsýnn. Það var úrval dugn-
aðarmanna úr meira en hálfu
landinu. Höfundarnir minnast
allir kennaranna á Möðruvöllum
og mjög á sömu lund. Eru þar að
vísu endurtekningar, en þær
styrkja meginfrásögn bókarinnar.
Niðurstaða lesandans verður ó-
hjákvæmilega á eina leið: Til
Möðruvalla komu mörg góð
mannsefni. Þar vöndust nemend-
ur hörðu starfi lífs, bæði andlega
og líkamlega. Sumir af kennur-
unum voru óvenjulegir yfirburða-
menn við skólastjórn og kennslu.
Um þetta allt og margt fleira fá
menn glögga vitneskju í Minn-
ingum frá Möðruvöllum.
Dr. Páll E. Ólason og dr. Þcrkell
Jóhannesson: Saga íslendinga frá
1701—1770. Sjötta bindi. Áskrift-
arbók menntamálaráðs og Þjóð-
vinafélagsins. Kostar 40 krónur
óbundin.
Þetta er mikið verk, rúmlega 500
bls. Útgáfan einkar vönduð að öll-
um frágangi. Dr. Páll Eggert lætur
skammt milli stórra högga. í fyrra
ritaði hann einn bindið um 17.
öldina. Nú skipta þeir dr. Þorkell
þessu bindi milli sín, og þegar
þetta er ritað, hefur Páll lokið við
handritið að siðaskiptaöldinni og
verður sú bók fullprentuð næsta
haust. Verða þá komin þrjú af
tíu bindum íslands sögunnar.
í myrkviði 17. aldarinnar áttu
íslendingar nokkra ódauðlega yf-
irburðamenn. Þar var Hallgrímur
Pétursson og Brynjólfur biskup. Og
þar var Arngrímur lærði. íslend-
ingum getur enn hitnað um
hjartarætur, er þeir minnast þess,
að þá situr á Mel í Miðfirði prest-
ur, sem ritar á latínu, heimsmáli
þeirra tíma, hverja fræði- og
varnarbókina af annari um land
sitt og þjóð. Frá íslenzku prests-
setri, mitt í dreifbýli landsins,
talar Arngrímur lærði til allrar Ev-
rópu um þau efni, sem þjóðinni
var mest þörf á að umheimurinn
fengi að vita.
í sjötta bindinu bregða Páll og
Þorkell upp nýjum og glæsilegum
myndum. Fyrstir koma fram á
sjónarsviðið þeir frændur, mesti
mælskuskörungur íslenzkrar kirkju,
Jón biskup Vídalín og einhver
mesti lögmaður landsins, Páll Ví-
dalín. Við hlið þeirra stendur Árni
Magnússon með sitt örlagaríka
lífsstarf í sambandi við handrita-
eign íslendinga. Þegar líður að
miðri 18. öld kemur „faðir Reykja-
víkur“, Skúli Magnússon, norðan
úr landi og byrjar hina verklegu
og fjárhagslegu umbótabaráttu
nýja tímans á íslandi. Mitt í fá-
tækt og erfiðleikum þeirra tíma
lætur vinur Skúla, Magnús amt-
maður Gíslason, byggja á Bessa-
stöðum það hús, sem talið er að
muni nægja um langa framtíð
handa æðsta starfsmanni hins ís-
lenzka þjóðfélags. Með athafna-
mönnum starfa fræðimenn eins og
sr. Jón Halldórsson í Hítardal,
Finnur biskup í Skálholti og Egg-
ert Ólafsson. Yfir miklu af at-
burðunum, sem sagt er frá í sjötta
bindi, er morgunroði nýrra tíma.
Að líkindum verður flestum minn-
isstæðust barátta Skúla fógeta við
danska einokunarvaldið. Bæði Páll
Eggert og Þorkell Jóhannesson
skrifa einfaldan en þróttmikinn
stíl með blæ af fornu máli.
24