Samvinnan - 01.01.1944, Síða 34
SAMVINNAN
1. HEFTI
Ráðstefna samvinnumanna um
endurreisnar- og hjálparstarf-
semi eftir stríðið.
Innan skamms tíma mun koma saman
alþjóðleg ráðstefna samvinnumanna, þar
sem rætt verður um hlutverk kaupfé-
laga og annarra samvinnufélaga í við-
reisninni eftir styrjöldina. Hefur það
komið mjög til tals, að kaupfélögunum
verði falið að annast ýmsa starfsemi í
hernumdu löndunum fyrst eftir styrjöld-
ina, t. d. dreifingu matvæla til þeirra,
sem bágstaddir eru. Er bent á, að það
sé óþarft að setja upp sérstaka ríkis-
stofnun í þessu skyni, þar sem fyrir sé
öflugur neytendafélagsskapur, er geti ann-
azt þetta verk. Komið hefur til orða, að
samvinnufélögum verði falin fleiri verk-
efni viðkomandi viðreisnar- og hjálpar-
starfseminni.
Á alþjóðaráðstefnu þeirri, sem fyrir-
huguð er að samvinnumenn haldi, verður
þetta málefni rætt sérstaklega, en auk
þess verður rætt um aðstöðu og viðhorf
samvinnufélaga almennt.
Hinn mjög þekkti ameríski blaðamaður,
Marguis Child, sem er frægur fyrir bók
sína um samvinnu- og félagsmál í Svi-
þjóð, (Sweden — the Middle Way),
kemst svo að orði í grein, er hann ritaði
nýlega um þessa fyrirhuguðu ráðstefnu:
— Á ráðstefnu þessari verður rætt um
þátttöku samvinnufélaga í viðreisninni
eftir styrjöldina. Svíar, sem eru ein helzta
forustuþjóð samvinnustefnunnar, halda
því fram, að samvinnumenn í þeim lönd-
um, er sloppið hafa við mestu hörmungar
og ánauð stríðsins, geti lagt mikinn skerf
til viðreisnarinnar i þeim löndum, sem
harðast verða úti, — ekki sízt í Þýzka-
landi. Mun þetta vitanlega sérstaklega
rætt á ráðstefnunni.
Þá verður rætt um stofnun eins konar
lánsstofnunar. Dr. Arne Skoug, birgða-
og viðreisnarmálaráðherra Noregs, hefur
t. d. sagt, að samvinnufélögin i Noregi
þyrftu aðstoðar samvinnufélaga í Banda-
ríkjunum, Bretlandi og Sviþjóð til að fá
matvæli, hráefni, landbúnaðaráhöld, sáð-
vörur, áburð o. fl., sem norsku félögin
þörfnuðust eftir styrjöldina. Þessi við-
skipti yrðu að hvíla á lánsgrundvelli til
að byrja með og yrðu sennilega innan
vébanda Hjálpar- og viðreisnarstofnun-
arinnar.
Á ráðstefnunni mun mjög verða rætt
um milliríkjaverzlunina eftir styrjöldina.
Sambönd kaupfélaganna í Bretlandi og
Svíþjóð hafa unnið öfluglega gegn öllum
lágmarks- og hámarksverðum, sem auð-
hringar hafa reynt að koma á einstakar
vörur. Nýlega lögðu samvinnumenn í
Bandaríkjunum fram tillögur um stofn-
un alþjóðlegra verzlunar- og framleiðslu-
samtaka samvinnumanna, er héldi uppi
millilandaverzlun eftir styrjöldina og
fylgdi fast þeirri grundvallarreglu sam-
vinnustefnunnar, að hafa enga gróðaá-
lagningu.
Þegar er til fyrirmynd að slíkum sam-
xikum. Eitt af 15 heildsölufyrirtækj-
um samvinnumanna í Bandaríkjunum,
samvinnufélagið North Kansas City, flutti
út ýmsar olíuvörur til innlendra sam-
vinnufélaga í Búlgaríu, Svíþjóð, Eistlandi,
Hollandi, Prakklandi, Skotlandi og fimm
öðrum löndum. Samvinnufélagið í North
Kansas City sá sjálft um borun olíubrunna
sinna, byggði olíuleiðslur og á olíuhreins-
unarstöðvar og verksmiðjur til framleiðslu
á smurningsolíum. Forseti þessa félags,
Howard A. Cosdem, mun halda eina af
aðalræðunum á hinni væntanlegu ráð-
stefnu.
Fjársöfnun til viffreisnar.
Alþjóðasamband samvinnumanna hefur
gengist fyrir fjársöfnun til styrktar og
uppbyggingar samvinnufélaganna eftir
stríðið. Á síðasta aðalfundi S.Í.S. var sam-
þykkt, að Sambandið gæfi 26 þús. kr. í
sjóð þennan. Ókunnugt er, hvað einstök
kaupfélög hafa ákveðið að gefa.
SAMVIXNAIV
1. hefti janúar 1944.
Útgefandi:
Samband ísl. samvinnufélaga
Ritstjórn:
Jónas Jónsson. Guðlaugur Rósin-
kranz. Jón Eyþórsson.
Sími: 5099
Afgreiðslustjóri: Konráð Jónsson
Sambandshúsið, Reykjavík.
Sími: 1080
Verð árgangsins, 10. hefti kr. 15,00
Forvígismenn.
Hannes Thorarensen
Samvinnan flytur aff þessu sinni
á forsíffunni mynd af einum elzta
forvígismanni samvinnufélaganna
á Suffurlandi, Hannesi Thoraren-
sen, sem nú er nýlátinn.
Hannes Thorarensen, fyrrver-
andi forstjóri Sláturfélags Suffur-
lands, var fæddur 5. des. 1864 aff
Móeiffarhvoli í Rangárvallasýslu.
Foreldrar hans voru Skúli læknir
Thorarensen og kona hans Ragn-
heiffur Þorsteinsdóttir, prests
Helgasonar í Reykholti. Til Reykja-
víkur flutti H. Th. 1879 og gerffist
síðan verzlunarmaffur viff verzlun
H. Th. S. Thomsen til 1907, er
hann gerffist forstjóri Sláturfélags
Suffurlands, sem stofnaff var þaff
ár. Gegndi hann því starfi til 1924,
er hann tók viff forstöffu áfengis-
útsölu Áfengisverzlunar ríkisins í
Reykjavík og hafði þaff starf á
hendi til ársins 1935. Hann lézt í
Reykjavík 11. jan. 1944.
Kona hans var Louise f. Bartels,
ættuff úr Reykjavík.
30