Samvinnan


Samvinnan - 01.06.1948, Blaðsíða 29

Samvinnan - 01.06.1948, Blaðsíða 29
skyldi hætta sínu eigin fé, e£ hann girtist að spila áfram, en fiandari^jamaðurinn lét sem hann heyrði það ekki og hróp- aði enn til hans: j „Einn pening enn út á kaupið!“ . En nú var Sölva nóg boðið. Allt kvöldið hafði hann setið innikróaður á bekk, er stóð upp við vegg, með borð fyrir framan sig og fyrirferðarmikla náunga til beggja handa, svo að hann hafði naumast getað hrært legg eða lið. Nú þreif hann skyndilega í axlir sessunauta sinna, vó sig upp á herðum þeirra og snaraðist þvert yfir borðið. Hann brann í skinninu að losna úr öllum þeim þrengslum, flækjum og stappi, sem hann hafði lent í upp á síðkastið, og þráði at- hafnir og frelsi, eins og hann hafði lengstum átt að venjast fram að þessu. Og nú ætlaði hann að byrja á því að taka í lurginn á Bandaríkjamanninum. En í sama bili heyrðist hróp utan úr fremri sölunum: „Lögreglan!“ var kallað, og Ijósin voru slökkt þar frammi. í sömu andrá að kalla slokknuðu þau einnig í innsta herberginu, þar sem Sölvi stóð í vígahug andspænis hinum nýja félaga sínum, er yirti hann undrandi fyrir sér. En nú gafst ekkert tóm til þess að jafna sakirnar þeirra í milli, enda breyttist andúðin í einu vetfangi í samúð og félagskennd. Um leið og ljósin slokkn- uðu, hafði Sölvi séð veitingamanninn Iiraða sér í áttina til hans. Og í myrkrinu og ringulreiðinni fann hann allt í einu, að sterkar hendur gxipu hann og drógu hann inn um bakdyr á herberginu, þvert úr leið mannljöldans, sem ruddist í átt til aðaldyranna. Honum tjóaði ekki að stimp- ast á móti, því að margir samhentir menn voru hér að verki. „Hjálp, félagi!“ æpti hann á ensku um leið og liann var dreginn út úr herberginu. — „Þeir hafa veitt m.ig í gildru! Litlu dyrnar til hægri!" Meira gat hann ekki sagt, því að árásarmennirnir snöruðu handklæði fyrir vit honum og bundu það fast. Þeir skelltu honum flötum og fjötruðu liendur hans og fætur ramlega. Síðan skutu þeir honum inn í dimman klefa eða skáp í veggnum og læstu hurðinni. Hann lá þarna kyrr um stund, varpaði mæðinni og hugs- aði sitt ráð. Honum fannst hann hafa heyrt rödd sennorít- unnar, kunningjakonu sinnar, hvísla skipunarorð í stimp- ingunum og hávaðanum. Og hafi hann verið í einhverjum vafa um hlutdeild hennar í þessum verknaði, \ar hann það ekki lengur, er skápurinn var allt í einu opnaður og hann sá ungfrúna sjálfa standa þar fyrir framar sig með olíu- lampa í hendi. Hún lant með illgirnislegu glotti niður að honum, og lýsti framan í hann, svo að olían draup úr lamp- anurn í andlit hans. Svipur hennar minnti á hefnigjarnt kventígrisdýr, sem verður að lresta því í bili að rífa bráð sína í sig, en á þó hefndina vísa. Svo hraðaði hún sér brott og skellti hurðinni í lás á eftir sér. Sölvi lá þarna með hendurnar ranrlega bundnar á bak aftur. En það vildi honum til láns, að hann var gæddur óvenjulegu afli og mýkt, svo að ekki leið á löngu, unz hon- uin tókst að láta rýting sinn renna úr brjóstvasa sínnm og núa böndunum við eggjar hans, unz þau skárust í sundur. Skipti það þá engum togum, að hann gæti losað sig til fulls úr tjóðrinu. Þreif hann þá hnífinn í hönd sér og stóð nú og beið átekta innan við skáphurðina. Eftir drykklanga stund heyrði hann rödd Bandaríkjamannsins frammi í salnum, þar sem hann átti í viðræðum við lögregluliðið og aðstoð- aði það við Ieitina. Þá fór Sölvi að hrópa til þess að vekja eftirtekt á sér, og leið þá ekki á löngu, unz hann var slopp- inn úr prísundinni. „Þetta er einn af hásetunum okkar — af „Star and Stri- pes,“ sagði Bandaríkjamaðurinn og tók þar með Sölva und- ir verndarvæng sinn, en hann lét það gott heita, því að nú vildi liann allt til vinna að losna sem fyrst og rækilegast úr öllum tengslum við þessa borg og íbúa hennar. „Nú — Jreir hafa klórað þér duglega, drengur minn,“ sagði Bandaríkjamaðurinn dálítið háðslega, Jregar hann sá framan í Sölva. — „Það er víst bezt að við hypjum okkur sem fyrst unr borð.“ „Eg vildi þó gjarnan líta aðeins framan í gestgjafann, áð- ur en eg fer,“ sagði Sölvi kuldalega. Hann brann í skinn- inu af hefndarþorsta. „Já, en til þess langar okkur ekki hót,“ sagði Bandaríkja- maðurinn þurrlega. — „Við kærum okkur ekkert um að hafa nánari mök við lögregluna en orðið er. — Og auk Jress er eg víst þegar búinn að vinna al' mér skuld mína við þig! “ Skipsfélagar Bandaríkjamannsins slógu nú hring um Sölva, svo að honum var nauðugur einn kostur að fylgja Jreim. En Jrað var auðséð á augnaráði hans, þegar hann leit á Bandaríkjamanninn, að hann ætlaði sér að ræða skulda- skil Jreirra nánar við hann, Jægar færi gæfist, enda væru Jreir ekki skildir að skiptum að öðru leyti, þegar komið væri um borð í hinn nýja farkost. XVI. „Star and Stripes" — ameríska skipið, sem lá á höfninni með sambandsfánann blaktandi á greypiránní — var löng og rennileg fleyta, svartmáluð og með 32 manna áhöfn. Sölvá þótti skútan liarla glæsileg á að líta, þegar hann og lélagar hans lögðu léttibátnum að skipshliðinni. Honuin var vísað til rúms í einbýlisklefa undir þiljum. Honum þótti harla vænt um fábýlið, en ánægja hans tók skjótan enda, þegar hann varð þess var, að klefanum var læst að utan, svo að hann var þar með orðinn fangi. Hann tók að lemja í hurðina að innanverðu og krafðist útgöngu, en þá var honum skýrt frá því, að hann yrði að sætta sig við þessa frelsisskerðingu í bili, meðan skipið væri enn ófarið frá Rio. Forráðamenn skipsins vildu ekki hætta á, að hanrt stryki þar aftur á land. Það var óþolani hiti í herberginu, og þar við bættist, að hann heyrði þrotlaus hróp og kveinstafi úr næsta herbergi,. eins og fárveikir menn lægju þar á sóttarsæng. Sölvi heyrðí ajla nóttina stöðuga háreysti og skarkala á þiljum uppi og í skipslestunum. A£ einhverjum ástæðum, sem Sölva voru enn óknnnar, virtist allt kapp lagt á að hraða afgreiðslu skipsins sem mest, og ekki hafði síðasti vöruflutningabátur- inn fyrr lagt frá skipshliðinni en akkerum var létt og skipið tók að Jrokast út úr höfninni. Þegar Sölva var sleppt úr haldi nokkrum klukkustundum síðar, var skipið þegar komið út á rúmsjó utan við hafnarmynnið. Skipstjórinn, stýrimennirnir þrír og margir aðrir yfir- menn sprönguðu um þiljurnar með gullborðalagðar húfur og klæddir eins konar einkennisbúningum, sem á her- skipi væri, og þegar þeir voru á verði, voru þeir vopnaðir. Óbreyttir hásetar og aðrir skipsmenn voru aftur á móti harla tötralegir. Þetta var undarlegur söfnuður af ýmsum þjóðum og kynkvíslum: Englendingar, írar, Þjóðverjar og 29

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.