Fréttablaðið - 19.08.2009, Qupperneq 4
4 19. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR
LÖGREGLA Morð var framið í Dals-
hrauni í Hafnarfirði seint á mánu-
dagskvöld. Einn maður liggur
undir grun, Bjarki Freyr Sigur-
geirsson. Bjarki átti heima í íbúð-
inni og var í annarlegu ástandi
þegar lögregla kom á vettvang rétt
fyrir miðnætti.
Sá látni, sem er íslenskur karl-
maður um þrítugt, var með höf-
uðáverka við komuna á vettvang,
sem taldir eru hafa leitt til dauða
hans. Blóð var á fötum Bjarka en
talið er að hann hafi notað barefli
til verksins, mögulega straujárn,
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins. Var Bjarki úrskurðaður
í tveggja vikna gæsluvarðhald í
gær og var yfirheyrður fram eftir
kvöldi.
Bjarki bankaði upp á hjá
nágranna sínum og sagði honum að
vinur sinn hefði meitt sig í Spider-
man-leik. Nágranninn, sem ekki vill
láta nafns síns getið, segir Bjarka
hafa verið alblóðugann. Hann hafi
því hringt beint á Neyðarlínuna og
farið með Bjarka í íbúðina þar sem
verknaðurinn var framinn.
Nágranninn segir aðkomuna
hafa verið eins og í sláturhúsi, og
blóðslettur út um allt. Hann segir
að strax hafi verið ljóst að fórnar-
lambið hafi verið látið, enda höfuð
hans afar illa farið eftir barsmíðar.
Nágranninn segir Bjarka hafa verið
mjög rólegan, en hann hafi fljótlega
áttað sig á því að hann hafi verið
undir áhrifum fíkniefna.
Talið er að Bjarki og fórnarlamb-
ið hafi þekkst, að sögn Friðriks
Smára Björgvins sonar, yfirlög-
regluþjóns lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu. Ekki liggja fleiri
undir grun að svo stöddu. Morðið
átti sér stað í Dalshrauni 15 en þar
eru íbúðir til leigu. Eigandi gisti-
heimilisins segir að herbergið verði
mögulega rifið þar sem verið er að
fara í breytingar á gistiheimilinu.
Bjarki er fæddur árið 1978 og á
langan sakaferil að baki. Síðast var
hann dæmdur í sjö mánaða fang-
elsi árið 2006 fyrir þjófnað, inn-
brot og fíkniefnalagabrot. Meðal
annars stal hann ketamíni, svæf-
ingarlyfi sem dæmi eru um að hafi
verið misnotað sem vímugjafi, á
Landspítalanum Fossvogi.
Samkvæmt sakavottorði hefur
Bjarki fimm sinnum gengist undir
sátt vegna fíkniefnabrota á árunum
1996 til 2005. Í febrúar 2005 var
hann dæmdur til tíu mánaða fang-
elsisvistar, og sviptur ökurétti í eitt
ár, fyrir ýmis þjófnaðarbrot. Hefur
hann margoft frá árinu 1998 verið
dæmdur fyrir fíkniefna-, umferðar-
og þjófnaðarbrot. Þá kom fram í til-
kynningu frá lögreglunni að hann
hefði komið við sögu lögreglu vegna
ofbeldisbrota. vidir@frettabladid.is
brjann@frettabladid.is
Nýtt leikár kynnt á morgun
1
GRINDAVÍK Bæjarstjórinn í Grinda-
vík, Jóna Kristín Þorvaldsdóttir,
hefur sótt um embætti sóknar-
prests í Kolfreyjustaðarpresta-
kalli í Austfjarðaprófastsdæmi.
Jóna Kristín var ráðin bæjar-
stjóri Grindavíkur í júlí í fyrra.
Hvers vegna er hún strax farin
að líta í kringum sig?
„Þetta er sérstakt brauð í
mínum huga. Ég er Fáskrúðs-
firðingur, fædd og uppalin þarna.
Auðvitað er þetta ekki heppileg-
asti tíminn, ég hefði viljað að
brauðið yrði laust síðar, en ég ræð
því ekki. Þetta er í þriðja skipti
sem þetta prestakall er laust
síðan ég var vígð fyrir tuttugu
árum og í hin tvö skiptin lét ég
það framhjá mér fara. Nú ætla ég
að láta á það reyna hvort leiðin
liggur aftur austur eða ekki.“
Hún tekur ekki undir að miklir
erfiðleikar hafi verið í pólitíkinni
í Grindavík.
„Nei, meirihlutasamstarfið
hefur gengið vel og ég tel flest stór
mál vera að falla í góðan jarðveg.
Veturinn lofar góðu í Grindavík og
við erum eitt best setta sveitarfé-
lagið,“ segir hún. Ástæðan sé frek-
ar sú að Kolfreyjustaðarpresta-
kall sé „hinn staðurinn á Íslandi
sem er mér kær“.
Aðrir umsækjendur um brauð-
ið eru Hólmgrímur Elís Braga-
son og Þóra Ragnheiður Björns-
dóttir.
Biskup Íslands skipar í emb-
ættið til fimm ára, að fenginni
umsögn valnefndar. - kóþ
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir í Grindavík sækir um Kolfreyjustaðarprestakall:
Bæjarstjóra langar í brauð
JÓNA KRISTÍN ÞORVALDSDÓTTIR Jónu
langar að snúa aftur á æskuslóðir, og
ætlar að láta á það reyna núna hvort
hún fái að vera prestur í Kolfreyjustaðar-
prestakalli. MYND/ÚR SAFNI
Margdæmdur brotamaður
er grunaður um morð
Bjarki Freyr Sigurgeirsson er grunaður um morð í Dalshrauni í Hafnarfirði á mánudagskvöld. Blóð var á
fötum Bjarka þegar lögreglan kom á staðinn. Talið er að hann hafi myrt fórnarlambið með barefli.
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
30°
28°
32°
29°
23°
29°
31°
32°
22°
24°
28°
27°
32°
32°
19°
35°
37°
21°
14
13
12
14
11
12
14
12
14
12
10
1
5
10
8 5
8
6
7
1
3
2
15
11
8
10
16
14
Á MORGUN
8-18 m/s vestan til, annars
mun hægari vindur.
FÖSTUDAGUR
5-10 M/S
10 12
8
1011
VATNSVEÐUR
Núna með morgnin-
um eru úrkomuskil
yfi r norðan- og austan-
verðu landinu með
töluverðri vætu. Sunn-
an og vestan lands
þróast úrkoman hvað
og hverju yfi r í skúrir
og úrkomumagnið er
mun minna. Nokkuð
er um liðið síðan svo
vatnsmikil lægð kom
að landinu en henni
fylgja ágæt hlýindi.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
RÚSSLAND, AP Óttast er að 64
starfsmenn vatnsaflsvirkjunar í
Rússlandi, sem saknað er síðan
slys varð þar á mánudag, séu
látnir. Samtals hefur því slysið
kostað 76 manns lífið, því þegar
hefur verið staðfest að tólf starfs-
menn séu látnir.
Slysið varð þegar öflug spreng-
ing varð í vélasal með þeim
afleiðingum að vatn flæddi inn í
salinn.
Jensei-virkjunin í sunnanverðri
Síberíu er ein sú stærsta í Rúss-
landi. Slysið olli rafmagnsleysi í
borgum og bæjum héraðsins og
starfsemi nokkurra stórra fyrir-
tækja stöðvaðist. - gb
Sprenging í vatnsaflsvirkjun:
Tugir manna
taldir látnir
VLADIMÍR PÚTÍN Á NEYÐARFUNDI
Forseti Rússlands á fundi um slysið í
virkjuninni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Sjóðsstjóri hjá Lands-
vaka, sjóði Landsbankans, fylgdi
í einu og öllu eftir þeim reglum
og verklagi sem bankinn krefst
af starfsfólki sínu þegar hann
lánaði Sigurjóni Þ. Árnasyni,
þáverandi bankastjóra bankans,
fé með veði í lífeyrissparnaði
Sigurjóns hjá bankanum.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Landsvaka. Sjóðsstjórinn
hefur nú hafið störf hjá sjóðnum
aftur, en honum var vikið tíma-
bundið frá störfum meðan málið
var rannsakað. Málið var rann-
sakað bæði hjá Fjármálaeftirlit-
inu og innan bankans, að því er
segir í tilkynningu Landsvaka. - bj
Veitti lán út á lífeyrissjóð:
Fylgdi reglum
í einu og öllu
1996-2005 - Bjarki gerir fimm sinnum
sátt vegna fíkniefnabrota.
14. sept. 1998 - Dæmdur til tveggja
mánaða fangelsisvistar, skilorðsbundið
í tvö ár, fyrir þjófnað og fíkniefnabrot.
22. júní 2004 - Dæmdur til greiðslu
100 þúsund króna sektar og sviptur
ökurétti í fjóra mánuði fyrir umferðar-
og fíkniefnabrot.
10. nóvember 2004 - Dæmdur til
greiðslu 31 þúsund króna sektar vegna
fíkniefnabrots.
30. desember 2004 - Dæmdur til
greiðslu 65.000 króna sektar fyrir
fíkniefnabrot.
15. febrúar 2005 - Dæmdur til tíu
mánaða fangelsisvistar, og sviptur
ökurétti í eitt ár, fyrir þjófnaðabrot,
fjársvik, skjalafals og umferðar- og
fíkniefnabrot.
14. apríl 2005 - Sakfelldur fyrir
fíkniefnabrot. Um hegningarauka við
dóminn frá 15. febrúar var að ræða og
Bjarka ekki gerð sérstök refsing.
11. janúar 2006 - Ákærði dæmdur
til greiðslu 100 þúsund króna sektar
vegna aksturs sviptur ökurétti.
14. september 2008 - Dæmdur í sjö
mánaða fangelsi fyrir þjófnað, innbrot
og fíkniefnalagabrot og rauf þar með
skilorð reynslulausnar.
SAKAFERILL
BJARKA FREYS
DALSHRAUN 15 Morðið átti sér stað í þessu húsi á mánudagskvöldið. Sá grunaði
hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GENGIÐ 18.08.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
235,745
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,22 128,84
211,15 212,17
181,01 182,03
24,316 24,458
20,867 20,989
17,696 17,8
1,3475 1,3553
199,05 200,23
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Skólastjóra Landakotsskóla hefur
verið sagt upp störfum. Í frétt um
málið í gær misritaðist nafn skólans á
sumum stöðum í fréttinni.
LEIÐRÉTTING
Segir sig úr ríkjasamtökum
Georgía hefur sagt sig úr Samveldi
sjálfstæðra ríkja, ríkjasamtökum fyrr-
verandi lýðvelda Sovétríkjanna. Þing
landsins samþykkti úrsögnina fyrir ári
í framhaldi af stríði við Rússlands, en
úrsögnin tók svo gildi í gær.
GEORGÍA