Fréttablaðið - 19.08.2009, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 19.08.2009, Blaðsíða 34
18 19. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is 1. deild karla: Haukar-KA 3-1 0-1 David Dizstl (27.), 1-1 Hilmar Trausti Arnars- son, víti (33.), 2-1 Pétur Ásbjörn Sæmundsson (39.), 3-1 Ásgeir Þór Ingólfsson (53.)þ Fjarðabyggð-Víkingur R. 3-2 0-1 Egill Atlason, 0-2 Jakob Spangsberg, 1-2 Grétar Ómarsson, 2-2 Fannar Árnason, 3-2 Grétar Ómarsson. Þór-Selfoss 1-0 1-0 Hreinn Hringsson, víti (24.). ÍA-Víkingur Ó. 0-0 Leiknir-HK 0-1 0-1 Gunnar Einarsson, sjm. Afturelding-ÍR 3-3 1-0 Rannver Sigurjónsson (24.), 2-0 Paul Clapson (27.), 3-0 Rannver Sigurjónsson (34.), 3-1 Árni Freyr Guðnason (77.), 3-2 Erlingur Jack Guð- mundsson (88.), 3-3 Erlingur Jack Guðmundsson (89.). *markaskorarar frá fótbolti.net STAÐAN: Selfoss 17 11 2 4 34-19 35 Haukar 17 10 4 3 34-19 34 HK 17 10 2 5 31-21 32 Fjarðabyggð 17 9 2 6 29-27 29 KA 17 7 5 5 24-18 26 Leiknir 17 6 6 5 22-21 24 Þór Ak. 17 8 0 9 22-25 24 Víkingur R. 17 6 3 8 29-27 21 ÍR 17 6 2 9 30-38 20 ÍA 17 4 6 7 20-23 18 Afturelding 17 3 6 8 20-29 15 Víkingur Ó. 17 2 2 13 16-44 8 ÚRSLIT Enska úrvalsdeildin: Sunderland-Chelsea 1-3 1-0 Darren Bent (18.), 1-1 Michael Ballack (52.), 1-2 Frank Lampard, víti (61.), 1-3 Deco (70.) Wigan-Wolves 0-1 0-1 Andrew Keogh (6.). Meistaradeild Evrópu: Celtic-Arsenal 0-2 0-1 William Gallas (43.), 0-2 Gary Caldwell, sjm (71.). FCK-APOEL Nicosia 1-0 1-0 Zdenek Pospech (51.). FC Sheriff-Olympiakos 0-2 - Alexandre Dudu, Kostas Mitroglu (81). FC Timisoara-Stuttgart 0-2 0-1 Timo Gebhart, víti (27.), 0-2 Alexander Hleb (30.). Sporting Lisbon-Fiorentina 2-2 0-1 Juan Vargas (6.), 1-1 Simon Vukcevic (58.), 2- 1 Miguel Veloso (66.), 2-2 Alberto Gilardino (79.). ÚRSLIT > Lið 17. umferðar Pepsi-deildar Fréttablaðið hefur valið lið 17. umferðar Pepsi- deildar karla. Markvörður: Kjartan Sturluson (Val). Varnarmenn: Andrés Már Jóhannesson (Fylki), Einar Pétursson (Fylki), Freyr Bjarnason (FH), Viktor Örn Guðmundsson (FH). Miðjumenn: Ingimundur Níels Óskarsson (Fylki), Ólafur Ingi Stígsson (Fylki), Guð- mundur Kristjánsson (Breiða- bliki), Jón Gunnar Eysteinsson (Keflavík). Framherjar: Guðmundur Benediktsson (KR), Atli Viðar Björnsson (FH). NÝ SALATLÍNA FRÁ SÓMA SEM BYGGÐ ER Á LANGRI REYNSLU AF SAMLOKUGERÐ Miðjumaðurinn Guðmundur Kristjánsson gerði sér lítið fyrir og skoraði fyrstu þrennu sumarsins í kaflaskiptum 3-3 jafnteflisleik gegn Fram í Pepsi-deildinni á Kópavogsvelli á sunnudag og er fyrir vikið leikmaður 17. umferðar hjá Fréttablaðinu. „Mér leið bara mjög vel inni á vellinum í fyrri hálfleik og það gekk svona flest upp það sem maður var að reyna,“ segir Guðmundur sem fullkomnaði þrennu sína í lok fyrri hálfleiks og staðan var 3-0 fyrir Blikum í hálfleik. „Við vorum að spila vel og mér fannst Framarar í rauninni ekki vera að gera neitt af ráði. Við vorum hins vegar alltof passívir í síðari hálfleik og þegar þeir fá vítið þá kveikti það eitthvað í þeim og því fór sem fór,“ segir Guðmundur. Leikurinn var annars skrautlegur og mikið um umdeilanleg atvik innan vallar sem utan. „Atvikið með Arnar Grétars og Auðun Helga í fyrri hálfleik hleypti miklum látum í leikinn og mér fannst dómarinn missa tökin á leiknum þá,“ segir Guðmundur sem vill ekki gera mikið úr atviki sem átti sér stað eftir leikinn þegar Þorvaldur Örlygsson þjálfari Fram kom upp að honum og hreitti einhverjum orðum í hann. „Það var nú ekki neitt neitt. Við vorum bara að ræða um leikinn og ekkert óeðlilegt við það að menn séu ósáttir og skiptist á orðum eftir svona hamagang,“ segir Guðmundur. Guðmundur segir mikilvægt fyrir Blika að ein- blína á jákvæðu hlutina í stað þess að dvelja við það að hafa misst niður unnin leik gegn Fram. „Það er náttúrulega jákvætt að við erum ekki búnir að tapa þremur leikjum í röð í deildinni. Spilamennskan og baráttan er búin að vera í lagi í síðustu leikjum og þetta liggur allt upp á við núna. Við vorum svekktir á síðustu leiktíð hvað við enduðum sumarið illa og féllum niður í áttunda sæti. Nú er tækifæri til þess að snúa þessu við og við erum staðráðnir í að klára deildarkeppnina af krafti. Við eigum góða möguleika á að enda í fínu sæti og mætum grimmir í leikinn á móti Val.“ BLIKINN GUÐMUNDUR KRISTJÁNSSON: ER LEIKMAÐUR 17. UMFERÐAR PEPSI-DEILDARINNAR HJÁ FRÉTTABLAÐINU Staðráðnir í að klára deildarkeppnina af krafti FÓTBOLTI Heil umferð fór fram í 1. deild karla í gærkvöld. Þar bar hæst til tíðinda að topplið Selfoss missteig sig á Akureyri þar sem Hreinn Hringsson tryggði Þór sigur á toppliðinu. Selfoss er þó enn á toppnum. Haukar eru aftur á móti aðeins stigi á eftir Selfyssingum eftir sterkan 3-1 sigur á KA. Möguleik- ar KA á að komast upp fóru um leið væntanlega út um gluggann. HK er enn í baráttunni um að komast upp og er aðeins tveimur stigum á eftir Haukum og þrem- ur á eftir Selfossi. HK vann útisig- ur á Leikni í gær þar sem gamla kempan Gunnar Einarsson skoraði sjálfsmark. Skagamenn eru enn í bullandi fallhættu en ÍA varð í gær að sætta sig við markalaust jafntefli gegn langneðsta liði deildarinnar, Víkingi frá Ólafsvík. ÍA var þess utan á heimavelli en nákvæmlega ekkert hefur gengið hjá liðinu í sumar. Erlingur Jack Guðmundsson tryggði ÍR síðan mikilvægt stig gegn Aftureldingu með tveimur mörkum á lokamínútunum eftir að Afturelding hafði komist í 3-0. - hbg Baráttan harðnar í 1. deild karla í knattspyrnu: Selfoss missteig sig HAUKASIGUR Haukar lögðu KA í Hafnar- firði í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Arsenal þarf að misstíga sig illilega eigi liðið ekki að komast í riðlakeppni Meistaradeildarinn- ar. Liðið vann góðan 0-2 útisigur á Celtic í gær og þarf að tapa 0-3 á heimavelli til að falla úr keppni. William Gallas skoraði fyrra mark Arsenal í gær með bakinu. Fabregas skaut þá að marki, bolt- inn fór í Gallas, breytti um stefnu og í netið. Síðara markið var sjálfs- mark hjá fyrirliða Celtic, Gary Caldwell. Þrátt fyrir þessi heppnismörk var Arsene Wenger, stjóri Arsen- al, á því að sigurinn hefði verið sanngjarn og hafði hann talsvert til síns máls enda Arsenal betra liðið. „Þetta var mikil barátta. Við réðum algjörlega ferðinni í þess- um leik en Celtic gafst ekki upp og hélt áfram að berjast. Liðið beitti skyndisóknum og þó svo við hefð- um stýrt leiknum voru þetta vissu- lega heppnismörk hjá okkur. Við bjuggum samt til þessa heppni,“ sagði Wenger eftir leikinn. „Við fengum fjölda færa á fyrstu 15 mínútum síðari hálfleiks. Það þurfti samt góðan leik og sterkt Arsenal-lið til þess að ná þess- um úrslitum. Leikmenn sem og áhorfendur voru til í slaginn. Ef við hefðum ekki átt góðan leik þá hefðum við ekki unnið. Það var annars mögnuð stemning á vell- inum og betri en í ensku úrvals- deildinni.“ Eins og áður segir er staða Ars- enal sterk en Wenger lítur ekki á síðari leikinn sem formsatriði. „Þessi rimma er 180 mínútur en ekki 90. Við ætlum okkur að spila vel í 180 mínútur í þessari rimmu. Við verðum að taka síðari leik- inn alvarlega og vinna hann líka,“ sagði Wenger. Hann var ekki alveg nógu sáttur við hversu gróft leik- menn Celtic fengu að spila. Tony Mowbray, þjálfari Celtic, neitaði að gefast upp eftir leikinn. „Það var vissulega mjög svekkj- andi að fá á sig tvö svona mörk. Arsenal var samt gríðarlega sterkt í kvöld, frábært með boltann og enn betri án hans. Það var mjög pirrandi. Eitt mark frá okkur í seinni leiknum opnar rimmuna upp á gátt og við munum gefa allt sem við eigum í hann,“ sagði Mowbray. henry@frettabladid.is Celtic engin fyrirstaða Arsenal er komið með annan fótinn í riðlakeppni Meistaradeildarinnar eftir 0-2 sigur á Celtic í fyrri leik liðanna. Heppnisstimpill var yfir báðum mörkum Arsenal í leiknum en Arsene Wenger sagði sigurinn samt vera sanngjarnan. FAGNAÐ Leikmenn Arsenal fagna hér sjálfsmarki Gary Caldwell í gær. NORDIC PHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.