Fréttablaðið - 19.08.2009, Side 13
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
VESTNORDEN 2009 verður haldin í Kaupmannahöfn
um miðjan september. Það er árleg ferðakaupstefna sem
Ferðamálastofa, Ferðamálaráð Grænlands og Ferðamálaráð
Færeyja hafa staðið að í rúma tvo áratugi. www.northatlantic-
islands.com
Vala stýrir uppgrefti við alþingis-
reitinn í miðborg Reykjavíkur og
ann sér lítillar hvíldar þar enda
þarf verkið að ganga. „Ég tek ekki
almennilegt frí fyrr en í vetur en
fór með vinnufélögunum hringinn
kringum landið um daginn. Það
var frábær ferð í alla staði, veður-
blíðan einstök og við fengum góðar
viðtökur,“ segir Vala þegar hún er
spurð út í ferðalög sumarsins. Hún
segir hópinn hafa farið á þremur
bílum enda séu í honum tíu manns.
Á Hólum í Hjaltadal hafi verið gist
í nemendaíbúðum staðarins en ann-
ars staðar slegið upp tjöldum.
Fljótsdalur og Skagafjörður voru
helstu áfangastaðir Völu og félaga
því þar var hugað að fornleifaupp-
grefti hjá kollegunum; að Skriðu-
klaustri fyrir austan og Hólum og
í Keldudal í Skagafirði. „Við stopp-
uðum reyndar víðar til að skoða
minjar en mest þar sem verið var
að grafa. Vinnuflokkarnir á Skriðu-
klaustri og í Skagafirði eru álíka
stórir og okkar og þeir tóku rosa-
lega vel á móti okkur.“ segir hún.
Fleira var gert í ferðinni en að
grúska í fornleifum því stoppað
var á völdum stöðum til að njóta
þess sem landið hefur upp á að
bjóða að sögn Völu. „Í okkar hópi
voru útlendingar og við Íslending-
arnir urðum að sjálfsögðu að sýna
þeim það helsta. Við fórum í jarð-
böðin í Mývatnssveit, Vogafjósið
og að Kröflu og komum líka við í
Þorgeirskirkju í Ljósavatnsskarði
á ferð um Norðurland. Svo skoð-
uðum við okkur um á Borgarfirði
eystri og vorum meira að segja á
Bræðslunni, árlegum stórtónleik-
um á staðnum. Þar var feikna stuð.
Eiginlega gerðum við svo margt
skemmtilegt á leiðinni að í minn-
ingunni er þetta líkara hálfsmán-
aðarferð en fimm daga.“
Nú hamast Vala við uppgröftinn
en þó er hún þessa dagana líka að
sverma fyrir víkingaaldarráðstefnu
sem stendur yfir hér á landi og
haldin er af fjölþjóðlegum samtök-
um. „Svona ráðstefnur hafa verið
reglulega frá 1950 en bara einu
sinni áður hér á landi. Það var 1956
svo þetta er talsverður viðburður,“
lýsir Vala og leynir ekki áhugan-
um. „Ég verð að fylgjast með ein-
hverjum fyrirlestrum og langar
mikið að skreppa í Reykholt þar
sem seinni hluti ráðstefnunnar fer
fram.“ gun@frettabladid.is
Skoðaði bæði fornt og
nýtt á ferð um landið
Þó að Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur tæki sér aðeins vikufrí í sumar nýtti hún það vel og upplifði
margt á hringferð sinni um landið með vinnufélögunum, kíkti á fornleifar og fór á Bræðsluna.
„Eiginlega gerðum við svo margt skemmtilegt á leiðinni að í minningunni er þetta líkara hálfsmánaðarferð en fimm daga.“
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
s
g Mjódd
UPPLÝSINGAR O