Fréttablaðið - 19.08.2009, Side 14
19. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR2
NÁMSSMIÐJA um jarðferða-
mennsku verður haldin á Hótel
Gíg í Mývatnssveit dagana 2. til 4.
september. www.ferdamalastofa.is
Sigrún er á leið í gönguferð með
barnabörnunum austur í Vopna-
firði þegar hún er ónáðuð og spurð
frétta af ferðamannastraumnum í
Seli í sumar. „Það er búið að vera
mjög margt um manninn,“ svarar
hún glaðlega og segir Sel meðal
annars viðkomustað ferðahópa af
skemmtiferðaskipum. „Bæði koma
hóparnir mikið í mat og kaffi til
okkar og svo erum við með þekkt-
ustu gervigíga Evrópu steinsnar
frá okkur sem mjög margir skoða.
Ég fullyrði að flestir útlendingar
stoppi þar sem eiga leið um.“
Fuglalíf við Mývatn er víðfrægt
og þar er að finna náttúruperl-
ur eins og gervigígana og Kálfa-
strandarvoga, Dimmuborgir,
Höfða og Hverfjall. „Svo er mjög
fallegt norðan við vatnið líka og
sjálf hef ég mjög gaman af því að
keyra hringinn kringum Mývatn á
góðum degi,“ segir Sigrún. „And-
stæðurnar í náttúrunni eru svo
miklar.“
Sigrún hefur búið á Skútustöðum
í fjörutíu ár og opnaði Sel ásamt
manni sínum, Kristjáni Yngva-
syni, 16. júní 1973 sem skyndibita-
stað og verslun. Það var í 200 fer-
metra húsnæði og síðan hefur ansi
oft verið byggt við. Nú er þar hótel
með 35 herbergjum, stórum veit-
ingasal og öðru sem til þarf, auk
minjagripaverslunar í öðru húsi og
kaffiteríu. Sigrún hefur fermetra-
fjöldann í dag ekki á hraðbergi.
„Ég hef bara ekki hugsað um það,“
segir hún. Ekki hefur hún heldur
tölur yfir gestafjöldann í sumar en
segir nýtingu á hótelinu hafa verið
góða strax í maí og mikið sé bókað
fram yfir 20. september.
Ferðamannatíminn er að sögn
Sigrúnar að lengjast í báða enda
og töluvert er líka að gera yfir vet-
urinn. „Febrúar og mars eru góðir
mánuðir hjá okkur,“ segir hún. „Við
fáum hingað meðal annars fólk frá
Bretlandi og Hollandi sem er að
koma til að njóta náttúrufegurðar
og friðsældar. Við höfum líka ýmis-
legt upp á að bjóða þá, erum með
snjósleðaferðir og líka jeppaferðir
að Dettifossi. Við förum með fólk á
skíði, í jarðböðin og jafnvel á hest-
bak. Svo fær það auðvitað að njóta
náttúrunnar á eigin forsendum því
Mývatnssveit er ekki síður falleg
að vetri en sumri. Þó skara haust-
in fram úr. Þá er sveitin fegurst að
mínu mati.“ gun@frettabladid.is
Sveitin fegurst á haustin
Ein af þekktum persónum við þjóðveginn er Sigrún Jóhannsdóttir, sem hefur rekið verslun og veitinga-
sölu í Seli í Mývatnssveit í meira en þrjá áratugi. Hún var í eins dags sumarfríi þegar hringt var í hana.
Hótelið er með 35 herbergi og stóran
veitingasal enda oft búið að byggja við.
Sigrún sinnir nú ekki síst minjagripaverslunninni og kaffiteríunni að Seli en sonur hennar og tengdadóttir hótelinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GUN
Ferðafélagið Útivist
stendur fyrir göngu á
sunnudaginn kemur.
Gengið verður upp
með Soginu, með-
fram Álftavatni og upp
að Ljósafossvirkjun.
Mikið er af fallegum
fossum í Soginu: Ljósi-
foss, Írafoss og Kistu-
foss. Berjaland er víða
mikið á leiðinni og því
hægt að tína upp ber
á leiðinni en göngu-
tími er sex klukku-
stundir og mest á jafn-
sléttu. Lagt verður af
stað klukk-
an 9.30.
www.utivist.is
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Steinlagna- og umhirðutækni
Innritun stendur yfir
Nám í steinlagna– og umhirðutækni er mótað og uppbyggt af Félagi
skrúðgarðyrkjumeistara og Horticum menntafélagi ehf. í samstarfi við
Tækniskólann - skóla atvinnulífsins.
Kynningarfundur um námið verður haldinn fimmtudaginn 27. ágúst kl.18:00
Skeljanesi 9, 101 Reykjavík (í Skerjafirði).
Einnig má nálgast ítarlegar upplýsingar um
námið á heimasíðu skólans www.tskoli.is
Steinlagnatækni
Uppbygging og viðhald steinlagna
Umhirðutækni
Uppbygging og umhirða grænna svæða