Fréttablaðið - 19.08.2009, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 19. ágúst 2009 3
„Við erum nýbúnir að opna búð
á Skólavörðustígnum sem heit-
ir Lundinn,“ segir Elmar Freyr
Vernharðsson, annar eigenda
Geysis Shops. „Okkur vantaði
sérhæfingu í minjagripaverslun.
Þetta er gramsbúð fyrir ferða-
mennina og fer rosalega vel af
stað.“
Elmar rekur ásamt félaga
sínum Jóhanni Guðlaugssyni
tvær ferðamannaverslanir í
Reykjavík, áðurnefndan Lunda
og Geysi í Hafnarstræti og sam-
nefnda verslun í Haukadal við
Geysi. Segir Elmar að mikið hafi
verið að gera í sumar hjá þeim
félögum. „Við höfum fundið fyrir
mikilli aukningu undanfarin ár,“
segir Elmar en þeir hafa rekið
ferðamannaverslanir síðustliðin
fjögur ár. „Síðasti vetur var allur
mjög góður og það hefur í raun-
inni haldið áfram í sumar.“
Elmar segir að mismunandi
áherslur séu innan búðanna
þriggja. „Geysir í Hafnarstræti
sérhæfir sig í íslenskum vörum
og hönnun. Þar er til dæmis mikið
úrval af ullarfatnaði. Geysir í
Haukadal hefur alla flóruna, það
er að segja íslenskar vörur ásamt
úrvali af minjagripum, bolum og
fatnaði, og Lundinn er bola- og
minjagripaverslun með Lunda-
þema,“ segir Elmar og bætir við
að það virki vel að hafa skýrar
áherslur í vöruúrvali. „Svo erum
við líka að þróa vörur.“
Aðspurður segir Elmar að bæði
Íslendingar og erlendir ferðamenn
stundi viðskipti við hann. „Það
hefur komið okkur skemmtilega
á óvart hvað Íslendingar versla
mikið líka. Það er eins og vakn-
ing hafi orðið í að kaupa íslenskar
vörur,“ útskýrir Elmar.
Elmar segir að þegar hann horfi
til framtíðar finnist honum helst
að öflug markaðssókn erlendis
skipti máli fyrir ferðamannaiðnað-
inn á Íslandi. „Ísland hefur feng-
ið mikið umtal og kynningu eftir
bankahrunið. Eins og margir hafa
sagt í gegnum tíðina er allt umtal
betra en ekkert,“ segir Elmar og
heldur áfram: „Við höfum áhyggj-
ur af því hvernig framboð á ferð-
um verður til landsins. Markaðs-
sókn skiptir gríðarlega miklu máli
og þar má ekki skera niður.“
martaf@frettabladid.is
Verslun við ferðamenn
hefur gengið mjög vel
Mikil gróska hefur verið í verslun við ferðamenn í sumar. Elmar Freyr Vernharðsson og Jóhann Guðlaugs-
son ákváðu að nýta sér það og bæta einni verslun við flóruna í Reykjavík en fyrir ráku þeir tvær aðrar.
Elmari finnst mikilvægt að stunda öfluga
markaðssókn erlendis og kynna Ísland.
Jóhann og Elmar reka þrjár ferðamannaverslanir á Íslandi og segja þær ganga mjög
vel. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Geysir í Hafnarstræti sérhæfir sig í
íslenskum vörum og hönnun.
Það hefur komið Elmari á óvart hvað
Íslendingar versla mikið.
Elmar hefur fundið fyrir
mikilli söluaukningu.
D
a
n
s
li
s
ta
rs
k
ó
li
J
S
B
Kennslustaðir:
● Danslistarskóli JSB í Kópavogi, Íþróttahúsi Digraness.
Almenn braut.
● Danslistarskóli JSB í Reykjavík, Lágmúla 9 og Laugardalshöll.
Almenn braut og listdansbraut.
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Innritun fyrir haustönn 2009 stendur yfir!
Almenn braut – jazzballett
• Skemmtilegt og fjölbreytt dansnám fyrir stelpur og stráka frá 7 ára aldri
• Góð og uppbyggileg líkamsþjálfun sem veitir mikið frelsi til tjáningar
• Dansbikarinn - Árleg danskeppni í skólanum fyrir þá sem vilja spreyta sig
• Skólaárinu lýkur með glæsilegri nemendasýningu í Borgarleikhúsinu
Eigum laus pláss fyrir nýnema!
FRAMHALDSNEMENDUR OG NÝNEMAR
Rafræn skráning er á www.jsb.is, upplýsingar í síma 5813730.
Stundaskrá birtist á vefnum 20. ágúst. Kennsla hefst mánudaginn 31. ágúst.
Nám og kennsla
Danslistarskóli JSB er viðurkenndur af menntamálaráðuneytinu sem listdansskóli
á grunn- og framhaldsskólastigi. Nánari upplýsingar um nám við skólann er að finna
á www.jsb.is undir Danslistarskóli JSB.
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • www.jsb.is
Danslistarskóli JSB
er samstarfsaðili að
Frístundakorti
Reykjavíkurborgar