Fréttablaðið - 19.08.2009, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2009
Mörgum finnst baunir hrein-
lega vera vesen, fallast hendur
yfir að þurfa að leggja þær í
bleyti eða hvað á hreinlega
að gera við þær. Sem er synd,
því jafnódýr en um leið hollur
matur er vandfundinn. Þar
gætu linsubaunir verið svarið
fyrir byrjandann.
Linsubaunir eru þessar litlu og
flötu baunir og eru þær ýmist
grænar, rauðar, gular, brúnar,
svartar, grængráar eða gráar.
Baunirnar eru mjög ríkar af
B-vítamíni og járni, prótíni og
trefjum. Þrátt fyrir að þær hafi
verið ein af uppistöðunum í fæðu
Araba, Asíubúa og ýmissa fleiri
þjóða um langt skeið hafa þær
einhverra hluta vegna átt mun
erfiðara uppdráttar í Evrópu.
Augu Evrópubúa eru hins vegar
smám saman að opnast fyrir
þessari snilldarfæðu.
RAUÐAR LINSUBAUNIR
Þær rauðu þykja sérstaklega holl-
ar með allri sinni fólínsýru en
allar linsubaunir lækka kólester-
ól í blóði, eru ríkar af magnesíum
og fitusnauðar. Suðutími rauðra
linsubauna er um fimmtán mínút-
ur. Það er frábært að drýgja alla
pottrétti, kjötkássur og súpur með
linsubaunum eða setja þær alveg í
stað kjötsins. Þær fara yfirleitt í
mauk við suðu og eru því bestar í
áðurnefnda rétti en síður í salöt.
GRÆNAR LINSUBAUNIR
Eins og þær rauðu fara grænar
linsubaunir svolítið í mauk en
þær eru mjög góðar með fisk-
og kjúklingaréttum. Það er mjög
gott að krydda grænu linsurn-
ar duglega, sem og allar linsu-
baunir, og setja jafnvel ferskar
kryddjurtir saman við. Túrme-
rik, karrý, laukur, hvítlaukur,
kóríander og hvaða krydd sem
þér dettur í hug.
PUYLINSUBAUNIR
Baunirnar þykja einar ljúffeng-
ustu linsubaunir sem völ er á.
PUY er í dag orðið verndað vöru-
heiti þar sem margir hafa reynt
að selja venjulegar linsubaunir
undir PUY-nafninu og þess ber
því að gæta að PUY-baunirnar séu
merktar með AOC-merkingunni á
umbúðunum. Annað er ekki ekta
PUY. PUY-linsubaunir eru eins og
aðrar linsubaunir með um fimmt-
án mínútna suðutíma. Setjið baun-
irnar í sigti að lokinni suðu og þá
má nota þær í hvað sem er, svo sem
út í salöt, súpur, pasta- og kartöflu-
rétti. Þar sem PUY-baunirnar eru
svo bragðgóðar eru þær frábærar í
salöt, maríneraðar í salatdressingu
og kryddaðar með salti og pipar.
BRÚNAR OG GRÁAR BAUNIR
Þessi litur bauna heldur betur
lögun sinni en þær grænu og rauðu
og eru þær því upplagðar í salöt
og kartöflurétti. Þær eru mjög
góðar með svínakjöti, kryddpyls-
um, beikoni í eldföstu móti og svo
sem meðlæti, til að mynda blandað
saman við hrísgrjón. - jma
Linsubaunir fyrir
baunabyrjendur
Gamla góða linsubaunasúpan er eitt það hollasta sem völ er á. Linsubaunir geymast
vel en við matreiðslu skal skola þær vel og henda þeim sem fljóta. Baunarétti á aldrei
að bullsjóða.
Til að byrja með, meðan verið er að
venja sig á baunirnar og læra að elda
úr þeim, er sniðugt að bæta þeim við
pastaréttinn sem fjölskyldan er vön að
gera. Einn bolli af þurrkuðum baunum
verður að tveimur til þremur bollum við
suðu. NORDICPHOTOS/GETTY
Nánari upplýsingar veitir
Berglind Grétarsdóttir skólastjóri
í síma 563-7730.
Rafrænar umsóknir er hægt að
leggja inn á www.skolar.is