Fréttablaðið - 19.08.2009, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2009
Auglýsingasími
– Mest lesið
Líkamsræktarstöðina Hress er
nú að finna á tveimur stöðum
í Hafnarfirði. Önnur er í Dals-
hrauni og hin er nýopnað útibú í
sundmiðstöð Hafnarfjarðar að Ás-
völlum. Þar fá gestir Hress að nýta
sér sundaðstöðu sem er skemmti-
lega útbúin fyrir börn, til dæmis
er rennibraut innandyra. Þá er æf-
ingaaðstaða og þolfimisalur Hress
á Ásvöllum vel búinn.
Í Hress verður ýmislegt á boð-
stólum í vetur. Boðið verður upp
á námskeið í þolfimi fyrir tíu til
tólf ára stúlkur annars vegar og
þrettán til sextán ára stúlkur hins
vegar. Einnig verða sér námskeið
fyrir drengi þrettán til sextán
ára.
Nýtt námskeið í Hress sem kall-
ast Hjól og stöðvar er sjö vikna
námskeið fyrir karla og konur.
Pilates Klassik eru sjö vikna
námskeið sem Petra Baumruck
kennir. BodyVives eru nýir opnir
tímar frá Les Mills-keðjunni.
Árlegir Hressleikar 2009 verða
haldnir í haust. Þar skipuleggja
þjálfarar Hress æfingadag þar
sem viðskiptavinir upplifa hlátur,
svita, gleði og baráttuanda í öllum
sölum.
Nýtt Hress á Ásvöllum
Hress er i í Dalshrauni og á Ásvöllum.
Líkamsrækt þarf ekki að vera
háð heilsuræktarstöðvum
og tilbúnu umhverfi. Það veit
Sverrir Jónsson en hann hjólar
oft og gengur í vinnuna.
„Ég hjóla og geng mikið en mér
finnst langbest að hreyfa mig úti.
Það hentar mér betur en tækja-
salurinn,“ segir Sverrir Jóns-
son hagfræðingur. „Þó að maður
brenni ekki jafnmiklu við þetta og
að púla í leikfimitíma finnst mér
þetta skemmtilegt og það skilar
mér betri árangri til lengri tíma
litið þar sem ég geng eða hjóla á
hverjum degi en fer kannski bara
í leikfimitíma tvisvar í viku.“
Sverrir hefur stundað göngur
og hjólreiðar í þó nokkurn tíma
og hefur að eigin sögn aukið við
síðastliðin ár. „Þetta er orðið jafn-
ara og reglubundnara hjá mér og
geng ég eða hjóla í hverri viku.
Mér líður vel af útiverunni og
síðan hentar mér að hjóla eða
ganga í vinnuna sem er skammt
undan. Ég er svona 25 mínútur
að ganga hvora leið og helmingi
fljótari að hjóla,“ útskýrir hann en
viðurkennir að veðrið hafi áhrif.
„Ég hjóla meira í góða veðrinu á
sumrin en á veturna geng ég frek-
ar. Annars má alltaf klæða sig í
hlífðarfatnað ef veðrið er ekki því
verra. Þegar ég áttaði mig á að
þetta væri ekkert flókið fór ég að
gera þetta oftar. Svona hreyfing er
eiginlega bara eins flókin eða ein-
föld og maður vill hafa hana.“
Auk þess að þjálfa líkamann
hefur útivistin góð áhrif á hug-
ann. „Ég mæti í vinnuna fersk-
ur og vakandi og á leiðinni heim
tæmi ég hugann og losna við vinn-
una úr kollinum. Ef ég hef komið
mér fótgangandi eða hjólandi í
vinnuna er heldur ekki um neitt
annað að ræða en að fara á sama
hátt til baka og þá drífur maður
sig af stað þó að maður sé kannski
þreyttur og latur. Ég spara líka
tíma og eldsneytispeninga á þessu
en mér finnst mikilvægt að koma
inn einhverri hreyfingu á hverjum
degi sem er þá að lágmarki hálf-
tími eða fjörutíu mínútur,“ segir
Sverrir, sem skreppur þó stund-
um í ræktina líka og fer í lengri
göngur á sumrin.
- hs
Hjólar og gengur
Sverrir Jónsson kýs að ganga eða hjóla í vinnuna fremur en að fara í leikfimitíma.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON