Fréttablaðið - 19.08.2009, Blaðsíða 38
22 19. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR
BESTI BITINN Í BÆNUM
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. að lokum, 6. mannþvaga, 8. jarð-
sprunga, 9. gilding, 11. mjöður, 12.
kambur, 14. dans, 16. skóli, 17. fýldur,
18. í viðbót, 20. tveir eins, 21. tútta.
LÓÐRÉTT
1. magi, 3. einnig, 4. verslun, 5. andi,
7. vanhelgun, 10. traust, 13. skilaboð,
15. nabbi, 16. framkoma, 19. mun.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. loks, 6. ös, 8. gjá, 9. mat,
11. öl, 12. burst, 14. rúmba, 16. fg, 17.
súr, 18. auk, 20. ðð, 21. snuð.
LÓÐRÉTT: 1. vömb, 3. og, 4. kjötbúð,
5. sál, 7. saurgun, 10. trú, 13. sms, 15.
arða, 16. fas, 19. ku.
Tveir af þekktustu matreiðslu-
mönnum landsins, þeir Úlfar
Eysteinsson á Þremur frökk-
um og Tómas Tómasson á Ham-
borgarabúllunni, hafa tekið hönd-
um saman og mótmæla nú háum
stýrivöxtum Seðlabankans með
fremur óvenjulegum en frið-
sömum hætti. Þeir hafa tekið þá
ákvörðun að skerða ekki skegg
sitt fyrr en hinir margumtöluðu
vextir eru komnir niður fyrir tíu
prósent. Þeir standa nú í tólf stig-
um en peningastefnunefnd ákvað
að halda þeim óbreyttum á fundi
sínum hinn 13. ágúst.
Tómas segir að Úlfar hafi átt
upptökin að þessu. Hann hafi
verið í viðtali út af hvalkjöti og
verið spurður út í það af hverju
hann væri með ögn meira skegg
en venjulega. „Hann sagðist bara
vera að mótmæla stýrivöxtunum
og ég tók hann bara á orðinu. Nú
er hann búinn að safna í tvo mán-
uði en ég er á fimmtu viku,“ segir
Tómas, sem kann bara ágætlega
við skeggvöxtinn, telur að þetta
fari sér bara ágætlega. „Menn
hafa annaðhvort líkt mér við Ern-
est Hemingway eða Kára Stefáns-
son, það er reyndar alltaf svona
Hemingway-eftirhermukeppni á
Key West í lok júlí á hverju ári og
ég var svona að spá í að fara en
fannst ég ekki alveg kominn með
nógu mikið skegg þá. Kannski
bara á næsta ári, það er að segja
ef stýrivextirnir verða ekki komn-
ir niður í tíu prósent fyrir þann
tíma.“
Úlfari hefur hins vegar ekki
verið líkt við neina jafnfræga og
Hemingway og Kára. „Nei, menn
hafa helst talið mig líkjast tali-
bana frá Afganistan,“ útskýr-
ir kokkurinn og bætir því við að
hann hafi nú fjárfest í sérstök-
um skeggbursta enda sé skegg-
ið orðið umtalsvert. Hann segist
ætla að láta reyna á það hvort þeir
félagarnir haldi það út að raka sig
ekki fyrr en stýrivaxtalækkunin
verði að veruleika. Enn sé engan
bilbug á þeim að finna þrátt fyrir
að vöxturinn sé mikill. „Það skal
hins vegar alveg viðurkennast
að þetta hefur verið óþægilegt
núna í sumarhitanum, sérstak-
lega á næturnar. Þetta hefur verið
svona svipað og að sofa með tvær
lopapeysur í framan.“
freyrgigja@frettabladid.is
TÓMAS TÓMASSON: ÞYKIR LÍKUR HEMINGWAY OG KÁRA STEFÁNS
Kokkar mótmæla stýri-
vöxtum með skeggvexti
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
SKEGGJAÐIR KOKKAR Úlfar og Tómas
þykja ansi skeggjaðir en vöxturinn held-
ur áfram þar til stýrivextir Seðlabankans
verða komnir niður fyrir tíu prósent.
„Ég held að við séum með á
bilinu þrjátíu til fimmtíu
umsóknir,“ segir Þóra Björg
Clausen, aðstoðardagskrár-
stjóri Skjásins, um þáttinn
Skemmtigarðinn sem fer í
loftið á Skjáeinum 18. sept-
ember. Umsóknarfrest-
ur rann út í fyrradag og
munu tökur hefjast í næstu
viku, en í þáttunum etja
átta fimma manna
fjölskyldur kappi
í leikjum og þrautum í Skemmti-
garðinum í Grafarvogi.
„Eftir að búið er að fara
yfir umsóknirnar verða
fjölskyldur boðaðar í
prufur og viðtöl fyrir
lokaval. Við hittum fólk-
ið og leiðum það í gegnum
nokkrar auðveldar þrautir
til að velja þá sem okkur
þykja hæfastir til
að takast á við
þessi verkefni
og leysa þau
fyrir framan
myndavélar.
Margir vilja
nefnilega
breytast
um leið og
myndavélin er komin,“ útskýrir
Þóra Björg. „Þættirnir verða átta
talsins og í hverjum þætti keppa
tvær fjölskyldur. Eftir fjóra þætti
verða svo undanúrslit og við ljúk-
um þessu á úrslitaþætti þar sem
tvær fjölskyldur keppa. Í fyrstu
verðlaun er skipulögð ævintýra-
ferð til Kaupmannahafnar fyrir
fjölskylduna sem sigrar, en það
verður ekki týpísk ferð til Köben
heldur verður ýmislegt skemmti-
legt skipulagt sem bíður þeirra,“
segir hún.
„Þetta er frábært tækifæri til
að styrkja fjölskylduböndin því
fyrir utan þennan leik og þrautir
er þetta í leiðinni hópefli og ýmis
fræðsla sem fólk fær úr þessu,“
bætir hún við. - ag
Velja átta fjölskyldur í raunveruleikaþátt
PRUFUR OG VIÐTÖL FRAM UNDAN Að
sögn Þóru Bjargar verða átta fjölskyld-
ur valdar úr innsendum umsóknum
til að taka þátt í Skemmtigarðinum á
Skjáeinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KYNNIR SKEMMTI-
GARÐINN Eyþór
Guðjónsson verður
kynnir Skemmti-
garðsins á Skjá-
einum í haust.
Atli Fannar Bjarkason hættir sem ritstjóri
Monitor nú um mánaðamótin. „Monitor held-
ur áfram í núverandi mynd. Það stendur núna
yfir leit að nýjum ritstjóra. Blaðið breytist
bara eins og það gerir alltaf með nýjum rit-
stjóra, það er ekkert verið að leggja árar í
bát,“ segir Atli.
„Ég er bara að breyta til. Mér bauðst annað
og ákvað að stökkva á það, prófa eitthvað nýtt.
Ég er búinn að vera með Monitor í eitt og hálft
ár, það er búið að vera rosalega gaman og
ganga mjög vel. Svo er bara gaman að halda
áfram að prófa hluti.“
Auk þess að ritstýra blaðinu hefur Atli sést
á Skjánum í þættinum Monitor, en hann lauk
göngu sinni í síðustu viku. „Hann styrkti stöðu
miðilsins mjög mikið að mínu mati. Við vorum
að halda merkjum Monitor á lofti yfir sumarið
þegar útgáfan er kannski ekki jafn sterk og
hefur verið. Það heldur þessu vel á floti þótt
árferðið sé ömurlegt.“ Stefnt er á útgáfu
tveggja blaða það sem eftir er af árinu; annars
í höndum Atla og hins í höndum nýs ritstjóra.
Útgáfustjóri Media sem sér um Monitor,
Hrefna Björk Sverrisdóttir, er einnig að
hætta. „Hún er að flytja út eins og svo marg-
ir, þannig að það verður alveg ný stjórn. Það
verður spennandi að sjá hvernig það kemur
út. Það eru allir að hætta út af því að eitthvað
annað býðst og svolítið fyndið að það skuli
allt gerast á sama tíma. Það kemur svolítið
furðulega út, eins og einhver hallarbylting
hafi orðið, en því fer fjarri. Ég vona bara að
fólk fylgist með hver taki við keflinu. Þetta er
elskulegt blað í hugum margra, þannig að það
er bara spenna.“ - kbs
Atli Fannar hættir sem ritstjóri Monitor
KVEÐUR AÐ SINNI Atli Fannar snýr sér að nýjum
hlutum og kveður Monitor. Hér er hann með Herði
Sveinssyni ljósmyndara.
Tónlistarmaðurinn
Barði Jóhanns-
son verður við
stjórnvölinn hjá
nýju plötufyrir-
tæki sem Sena
hefur sett á
laggirnar. Honum
til halds og trausts
verður Þorkell Máni
Pétursson, útvarps-
maður á X-inu.
Stefnan hefur verið
sett á útgáfu tveggja platna fyrir
jólin með hljómsveitunum Dikta og
Ourlives. Hljómsveit Barða, Bang
Gang, verður einnig á mála hjá
útgáfunni. Samningaviðræður við
hljómsveitirnar hafa staðið yfir að
undanförnu og mun þeim ljúka í
næstu viku.
Egill Helgason er í ansi snörpu og
skemmtilegu viðtali við netútgáfu
Iceland Review. Þar upplýsir Egill
meðal annars að honum hafi
staðið til boða að bjóða sig fram til
Alþingis í síðastliðnum kosningum
en honum hafi þótt hann gera
meira gagn með því að standa
utan þings. Þá segist Egill vera
ákaflega stoltur af
þættinum sínum
Silfur Egils en
ekki síður
bloggsíðu
sinni, sem
hann telur jafn
áhrifa-
mikla og
Morgun-
blaðið.
Og tökum er lokið á kvikmynd
Sverris Þórs Sverrissonar, Algjör
Sveppi: Leitin að Villa. Sverrir
hyggst sýna nokkrum útvöldum
myndina í þessari viku og er að
leggja lokahönd á lista yfir frum-
sýningargesti. Sú hugmynd ku hafa
kviknað að bjóða þekktum barna-
hetjum á borð við Benedikt Búálf,
Línu Langsokk og ræningjana þrjá
úr Kardimommubænum í veisluna,
sem ætti að mælast vel fyrir hjá
ungviðinu. - fb, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Ég borða mjög mikið á Bæjar-
ins bestu en ætli veitingastaður-
inn Santa Maria sé ekki í mestu
uppáhaldi. Maður fær aldrei
nóg af mexíkóskum mat.“
Rebecca Moran, formaður Kino Klúbbs.
250
ÓKEYPIS
KROSSGÁTUR
NÝ GÁTA
Í HVERRI VIKU
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r