Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1953, Síða 5

Samvinnan - 01.03.1953, Síða 5
lendið eggjar líka. Bóndinn verður að vera brattgengur og léttvigur frá æsku til elli. Sauðféð sækir til hinna efstu hagateiga, bóndinn verður að fylgja dæmi þess, upp úr kreppu dal- anna í víðsýni fjallanna, um land og sjó. Bóndinn þarf að vera læknir og lífeðlisfræðingur sinnar hjarðar, persónulegur vinur, sem skilur sálarlíf einstaklinganna og kann skil á skaps- munum þeirra og séreðli. Hann verð- ur, svo sem Heimdallur, að heyra hvernig grasið grær, skilja hvers völl- urinn þarfnast, matjurtagarðurinn og trjálundurinn. En til þessa þarf hann að vera efna- og eðlisfræðingur með nokkrum hætti. Ef til vill á jörðin veiðirétt í á eða stöðuvatni eða liggur að sjó. Þar verður hann að Iæra veiði með frum- stæðum hætti, sem þó veitir mest yndi. Stöngin, netstúfurinn eða færið veitir ekki aðeins nýmeti í búið, held- ur einnig marga ánægjustund ungum og gömlum. Allan þennan forna lærdóm verður bóndinn að nema, það er erfðamenn- ing. En hann verður einnig að nema nýja tækni. Hann byggir hús sín sjálfur, og smíðar oft húsmuni. Hann verður að vera sinn verkfræðingur og vélamaður, kunna skil á raftækjum og hreyflum véla. Ekki verður sóttur „fagmaður“ til hvers eins. Enn verður góður bóndi að vera vel skriftlærður. Mörg er skriffinnsk- an, þörf eða óþörf, sem heimtuð er af bændum. III. Borgamenningin stefnir í allt aðra átt. Þar á allt að vera unnið af „fag- mönnum“, einhæfum og einhliða mönnum, sem eru hjól í margbrotn- um skipulagsvélræðum, sem hljóta að drepa fjölhæfni og víðsýni. Þar er það í senn glópska og goðgá, og stund- um glæpur, sern varðar við lög, að vinna verk, sem er fjarri sérgreininni. Þar eru fáir, sem bera ábyrgð verk- anna, þar eru daglaun alheimt að kveldi. Þar á launamennskan alveldi og einræði, allt er metið í krónum og vinnu stundum, sem greiða verður, jafnt hjá kolakarli sem biskup og ráð- herra. Og „Iaunamenn“ hafa öll ráð- in í landinu. Embættismenn, á laun- um, mynda félög, er gera kaupskrúfur á sjálft ríkið og bæjarfélög. Þingmenn- Tceknin við búskapinn stefnir að þvi að létta erfiðið, auha öryggið og margfalda afkösttn. irnir, á margföldum . launum, og stjórnin eiga að halda í hemilinn á erfismönnum, sem einnig eru laun- þegar, en reyndin verður, að félög launamanna fara í kapphlaup hvert við annað, en sættast að lokum á það, að allir fái hærri laun og launa- stöðum verði fjölgað. ÖIl þessi launavinna á sammerkt Sjávaraflinn getur enn um langan alclur verið gullnáma, en honum má ekki treysta sem einka- stoð viðskipta okkar. um það, að greitt er fyrir vinnustund en ekki afköst. Öll er hún ófrjáls og þvinguð og horfir eigi, svo sem vinna bóndans, einvörðungu að raunhæfum árangri. Bóndinn greiðir sjálfum sér „í fríðu“, þ. e. lifandi árangri síns fjölhæfa starfs. Verður ekki öll önn- ur sú þjóð, sem vex upp við einhæfa fagmennsku og daglaun að kveldi, en hin, sem í þúsund ár hefur þróazt og þroskað sérkenni íslenzks þjóðernis við hin margbreyttu sjálfsmennsku- störf í víðáttu sveitanna? IV. „Hámenning“ íslendinga, sem svo er nefnd, er borin uppi af þeim, sem tapa í happdrætti. Höll rís við höll á háskólalóðinni, háar allar og glæst- ar, víðar um velli. Allt féð er fengið með sölu happdrættismiða. Það virð- ist vera ríkt í þjóðareðlinu að treysta á vogun, sem oftar tapar en vinnur. Sjö eru þau sögð, að mig minnir, síldarleysisárin. Ennþá er þó að heyra að búist sé við síld í sumar. Síldveið- in virðist hreint happdrætti og lík- urnar til vinnings fara nú ekki að 5

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.