Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1953, Síða 13

Samvinnan - 01.03.1953, Síða 13
Tekst vísindunum brátt að sigrast á inflúensunni? Læknar spáðu inflúensu- faraldri á þessum vetri. Þegar inflúensa gerði vart við sig á meginlandi Evrópu í vetur, höfðu heilbrigðisyfirvöldin hér á landi þegar samband við „Inflúensumiðstöð sam- einuðu þjóðanna“ skammt utan við London. Þar fengu þau þær upplýsingar, að það væri svokall- aður A-sýkilI, sem nú væri kominn á kreik, og sendi stöðin nokkuð af efni til bólusetningar gegn veikinni hingað til lands, svo og til annara landa. Sérfræðingarnir í London létu sér ekki bregða við þann inflúensufaraldur, sem nú hefur gengið yfir allan heiminn. Þeir höfðu meira að segja spáð þvi, að svona mundl fara, Og gatu buið Slg undir Hér scst sérfrœðingur að starfi i rannsóknarslofu inflúensumiðstöðvarinnar allmikla framleiðslu á hinu nýja bóh Þetta merka samstarf í baráttunni við inflúensuna er þáttur í starfi al- þjóða heilbrigðisstofnunarinnar (sem getið var í síðasta hefti Samvinnunn- ar) og eitt dæmi um hið gagnmerka starf sameinuðu þjóðanna í heilbrigð- ismálum. Þessi starfsemi hefur þegar gefið von um, að innan skamms geti mann- kynið rekið inflúensuna á algeran flótta, og mikil huggun er það, að ekki hefur þessi vágestur að þessu sinni gert teljandi mannskaða. Er mörgum þeð í fersku minni, hversu hættuleg inflúensa getur verið, og þarf ekki að nefna annað dæmi en faraldurinn 1918—19, þegar að minnsta kosti 15 milljónir manna lét- ust úr veikinni. Það er enn ekki vitað, hvaða inflú- ensusýkill olli hinum hættulega far- aldri í lok fyrri heimsstyrjaldarinnar. Þó hafa vísindamenn rannsakað fros- in lík eskimóa, sem vitað er að létust úr veikinni þá, í þeirri von að finna sýkilinn, en það hefur ekki tekizt. Það var brezkur vísindamaður, dr. C. H. Andrews, sem fyrstur einangr- aði inflúensusýkilinn 1933, og er þessi sami læknir nú forstöðumaður stöðv- arinnar í London. Starfar hann nú í náinni samvinnu við lækna og rann- sóknarstofnanir á 55 stöðum í 44 lönd- um. Hefur komið í ljós, að inflúensu- sýklarnir skiptast í margar tegundir, og eru þær helztu nefndar A, B og C, og er þó hver og ein margskipt. Vet- urinn 1950—51 var allmikið um in- flúensu og reyndist það vera af völd- um A-sýkiIsins. Töldu læknarnir þá ekki ólíklegt, að hann ætti eftir að Faðirinn leit í peningaveski sitt, er hann klæddi sig, og sagði svo: „Drengurinn hefur tekið peninga úr veskinu!“ „Af hverju ásakar þú drenginn,“ svaraði konan, „þegar það hefði eins getað verið ég, sem tók peningana?“ „Það varst ekki þú,“ svaraði mað- urinn, „af því að það var skilinn eft- ir tíkall!“ * Maður nokkur barði að dyrum og skammt frá London. gera vart við sig aftur og bjuggu sig undir framleiðslu á mótefni gegn þess- um sýkli. Eru nú efni þessi framleidd með því að sprauta sýklum inn í egg og er það tímafrek aðferð, sem gerir stórframleiðslu á efninu erfiða. Læknarnir eru þeirrar skoðunar, að einangrun muni hvergi reynast ein- hly't aðferð til þess að verjast inflú- ensu, enda er ekki vitað með vissu, hvernig sýkillinn getur borizt milli byggða. bað húsmóðurina að gefa til styrkt- ar fátækri ekkju, sem bjó í nágrenn- inu. Hann lýsti svo högum hennar, að hana skorti bæði föt og mat, en auk þess mundi hún bráðlega verða rekin á götuna, af því að hún skuld- aði fjögurra mánaða leigu. „Hún var heppin að eiga yður að til að hjálpa henni!“ sagði húsmóðirin. „Það er nú svo,“ svaraði maður- inn. „Ég er húseigandinn, sem hún leigir hjá.“ 13

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.