Samvinnan - 01.03.1953, Blaðsíða 15
Norðri selur bækur
gegn afborgunum
Samvinnutryggingar endurgreiða
hinum tryggðu 2.200.000 krónur
Félagið hefur samtals skilað viðskiptamönnum
sínum og eigendum á fjórðu milljón króna.
Merkileg nýjung í bókasölu hér á landi
Bókaútgáfan NORÐRI tekur um
þessar mundir upp nýjung í bókasölu
hér á landi, er útgáfan gefur lands-
mönnum kost á að kaupa bækur í
flokkum og greiða flokkana með væg-
um afborgunum á 2—5 árum. Hefur
NORÐRI skipt 157 bókum í flokka, og
eru 10—20 bækur í hverjum flokki.
Verða flokkarnir seldir þannig, að
fyrsta greiðsla er aðeins 50 krónur, en
afborganir 50 krónur á ársfjórðungi,
unz þeir eru fullgreiddir.
Þetta nýja kerfi við bókasölu er
mikið notað erlendis, og hefur þótt
gefast sérstaklega vel, til dæmis á
hinum Norðurlöndunum. Gerir þetta
landsmönnum kleift að eignast í einu
lagi allgóðan stofn að bókasafni, án
þess að þurfa að leggja fram nema
litlar upphæðir í einu. Telur NORÐRI,
að hér á landi ætti þetta kerfi einnig
að falla í góðan jarðveg, og slík bóka-
þjóð, sem íslendingar eru, ætti vissu-
lega að fá tækifæri til bókakaupa á
svo hentugan hátt.
Að sjálfsögðu eru kaupendur ekki
bundnir við að kaupa nákvæmlega
þær bækur, sem forlagið hefur skipað
í hvern flokk. En til að hafa kerfi til
að styðjast við, var flokkaskipting
valin, þó þannig að hver maður má
skipta um 3—5 bækur í þeim flokki,
sem hann kaupir.
Bókaflokkar NORÐRA eru ellefu
talsins. Sem dæmi má nefna 1. flokk-
inn, sem í eru 20 innbundnar bækur,
samtals 5212 blaðsíður, og höfundar
eins og Jón Björnsson, Duff Cooper,
Betty MacDonald, Arthur Köstler,
Björn 01. Pálsson, Galsworthy, bæk-
ur um þjóðleg fræði og fleira. Flokk-
urinn kostar 770 krónur, kaupandinn
greiðir aðeins 50 kr. og síðan 50 kr.
þriðja hvern mánuð. Annað dæmi er
9. flokkur, tíu innbundnar bækur,
2596 bls. fyrir 483 kr. Þar eru höf-
undar eins og Páll Árdal, Wilhelm
Moberg, Jón Björnsson, Elinborg Lár-
usdóttir, Þorbjörg Árnadóttir o. fl. og
eru kjörin þau sömu, menn greiða 50
kr. við móttöku bókanna og 50 krón-
ur þriðja hvern mánuð.
NORÐRI hefur gefið út myndar-
legt kynnirit, þar sem fullkomnar
upplýsingar eru um þessa nýjung og
hvernig henni verður hagað, svo og
fullkominn bókalisti. Rit þetta geta
menn fengið í bókabúðum eða á af-
greiðslu forlagsins við Sölvhólsgötu.
Bækurnar verða svo sendar burðar-
gjaldsfrítt hvert sem er á landinu.
Árið 1952 varð lang hagstæðasta
starfsár Samvinnutrygginga, og varð
um 2.200.00 króna ágóði af starfi fé-
lagsins, að því er framkvæmdastjóri
þess, Erlendur Einarsson, skýrir frá.
Hefur stjórn félagsins því ákveðið, að
allri þessari upphæð skuli skilað til
þeirra, er trjrggja hjá félaginu, en þeir
eru samkvæmt reglugerð félagsins
eigendur þess.
Uthlutun arðsins og eftirstöðva af
arði fyrri ára verður að þessu sinni
þannig, að yfir hálf nrilljón verður
greidd beint til hinna tryggðu eða
dregin frá endurnýjunariðgjöldum
þeirra á árinu 1943, en 1.800.000 verða
lagðar í stofnsjóðsreikninga hinna
tryggðu hjá félaginu.
Þetta er fjórða árið í röð, sem Sam-
vinnutryggingar úthluta arði af starf-
semi sinni til hinna tryggðu, en sjötta
árið frá stofnun félagsins. Áður hafði
verið úthlutað samtals 986.142 krón-
um og verður heildarupphæðin að
meðtöldu árinu 1952 því um 3.200.000
kr.
Erlendur Einarsson skýrir svo frá,
að höfuðástæðan fyrir því, hversu vel
starfsemin gekk á árinu 1952, sé sú,
að tjón á eignum, er tryggðar voru
hjá félaginu, voru mjög lítil. Auk þess
fá nefna, að reksturskostnaður félags-
ins er hlutfallslega mjög lágur og end-
urtryggingasamningar þess hafa
reynzt mjög hagkvæmir.
Með þessari arðsúthlutun verður
stofnsjóði Samvinnutrygginga komið
á fót. Hefur verið sett reglugerð um
sjóðinn, um vaxtagreiðslur af inneign-
um hinna tryggðu í honum og hvern-
ig inneignirnar verða endurgreiddar.
Munu þeir, sem lengi tryggja hjá fé-
laginu, fljótlega eignast þar nokkra
inneign, sem þeir fá árlega greidda
vexti af.
Erlendur Einarsson,
framkvremdastjóri Samvinnutrygginga.
Það hefur verið stefna Samvinnu-
trygginga, sagði Erlendur ennfremur,
að efla sjóði félagsins til þess að það
geti tekið á sjálft sig stærri hluta af
áhættum trygginganna og sparað end-
urtryggingar erlendis. Árangur þess-
arar stefnu kemur nú fram í bættum
hag félagsins og betri kjörurn þeirra,
sem hjá því tryggja. Þá hafa Sam-
vinnutryggingar einnig tekið að sér
tryggingar fyrir erlenda aðila í mörg-
um löndum, en það er spor í þá átt
að gera endurtryggingajöfnuðinn hag-
stæðari.
15