Samvinnan - 01.03.1953, Síða 17
háloftanna
kun og vinsældir helikopterflugvéla,
jiugmynd Leonardo da Vinci frá 1483
I
hreyfillinn áfram að snúast og flug-
vélin lækkar flugið smám saman
hættulítið.
Hugmyndin um það að fljúga á
þann hátt, sem helikoptervélar gera,
er einföld og gömul. Leonardo da
Vinci teiknaði slíkan hreyfil til að
lyfta byrði beint upp. Arið 1784 gerðu
tveir Frakkar eftirlíkingu af slíkri
flugvél og notuðu fjaðrir fyrir hreyfla.
En þróun slíkra flugvéla tafðist sök-
um þess, að ekki var til nægilega létt
vél. Það varð því ekki fyrr en 1937,
að þetta og önnur vandamál voru
leyst og Þjóðverjinn Heinrich Focke
smíðaði fyrstu helikoptervélina.
Tveim árum síðar setti Igor Sikorsky
met í slíku flugi í Bandaríkjunum
með fyrstu helikoptervélinni, sem
hafði aðeins einfaldan hreyfil.
Enda þótt helikoptervélarnar kom-
ist ekki eins hratt og venjulegar flug-
vélar, eru þær til margra hluta hent-
ugri. Síðustu fimm ár hafa þær ver-
ið notaðar með góðum árangri til að
úða kaffiekrur Brazilíu og berjast við
engisprettur í Argentínu. Þær hafa
barizt gegn skordýrum í Pakistan, í
' skógum Svíþjóðar, á döðluekrum Ir-
ak. Þær eru notaðar við vegagerð á
Kúbu, til að ferja menn til olíulinda
úti fyrir ströndum, og til eftirlits á
rafmagns- og símalínum. Loks má
nefna björgunarstarfið, þar sem heli-
koptervélarnar hafa reynzt ómetan-
legar, hafa bjargað konu úr Niagara-
fljóti rétt ofan við fossana miklu og
hvaðeina.
I Kóreustyrjöldinni hafa flugvélar
þessar reynzt ómetanlegar við sjúkra-
flutninga, ekki sízt vegna þess, að þær
geta lent hvar sem er á vígvöllunum
og bjargað flugmönnum úr sjó eða
lent á þilförum flestra skipa.
Islendingar hafa þegar haft nokkur
kynni af helikoptervélum. Fyrir
nokkru síðan vildi Slysavarnafélag
íslands kaupa slíka vél til björgun-
arstarfs og fékk hana hingað til lands
í tilraunaskyni. Að vísu reyndust ein-
hverjir annmarkar á notkun vélar-
innar, sérstaklega í verstu veðrum, en
samt hefðu átt að vera augljós hin
margvíslegu not, sem af henni mátti
hafa. Um það urðu þó deilur, hvort
kaupa ætti vélina, og bárust þær
deilur inn á alþingi, þar sem þing-
heimur skiptist í tvær öndverðar fylk-
ingar: Helikoptersmenn og fjand-
menn heLEoptersins. Fór svo, að
fjandmenn þessa „jeppa loftsins“
báru sigur af hólmi, og flugvélin var
ekki keypt. Það verður án efa dóm-
ur framtíðarinnar, að þetta hafi ver-
ið misráðið.
Bandaríkjaher hefur litið öðrum
augum á þetta mál og talið sjálfsagt
að hafa hér á landi helikoptervél, og
hefur hún öðru hvoru sézt sveima yf-
ir suðvesturhorni landsins.
Helikopterfluguélar eru til af mörgum gerfíum
og hafa verifí smiðaðar sérstaklega til afí ieysa
hin óliklegustu verkefni. Myndirnar til hregri
sýna þrjár mismunandi vélar vinna þrjú mis-
munandi verk. Efst er stór lielikopter mefí tvo
hreyfla, og sést hún lyfta jeppa á loft. Nœst er
svokallafíur „fljúgandi krani“, sem gerfíur var
til þess afí lyfta þungum byrfíum. Tvœr bifreið-
ar sjást á milli hjóla hans og gefa þrer nokkra
hugmynd um stœrfíina. Loks sýnir neðsta
myndin algengustu tegund helikoptervéia, og
þá sem hlotið hefur nafnifí „jeþpi háloftanna".
Er hún afí bjarga flugmanni úr sjó sliammt frá
stórborg, og getur verið nálega kyrr i loftinu,
nieðan flugmaðurinn klifrar upp kaðalstigann.
17