Samvinnan - 01.02.1954, Qupperneq 5
endunum. Fer þetta eftir gerð mót-
orsins. Rafstraumi, venjulega, rið-
straumi, er hleypt á sáturvafningana,
og myndast þá segulsvið í járni raf-
mótorsins. Hér á landi hafa allar al-
mennar rafveiticr 50 riða riðstraum.
Það þýðir, að rafstraumurinn breytir
um stefnu 50 sinnum á sekúndu.
Segulsviðið í járni rafmótorsins
breytist eins og riðstraumurinn. Eru
sáturvafningarnir vafðir þannig, að
segidsviðið myndar norðurpóla og
suðurpóla, og er ávallt norðurpóll við
hliðina á suðurpól.
Segulsviðið fer í gegnum járnið i
sátrinu og yfir í járnið í snúðnum. I
vafningum eða stöngum snúðsins
myndar segulsviðið aftur rafstraum.
Þessi straumur hefur þann eiginleika
að reyna ávallt að koma í veg fyrir
allar breytingar í segulsviðinu. Þann-
ig eru það í raun og veru hreyfing-
arnar í segulsviðinu, sem myndu
þennan straum.
Ef við gcetum virt fyrir okkur sátr-
ið frá föstum stað í snúðnum, mundi
okkur virðast segulsvið þess hlaupa í
hringi um snúðinn, og stafar þetta af
hinum sífelldu breytingum t rið-
straumnum. Er segulsviðið 1/50 úr
sekúndu að fara frá einum pól yfir á
ncesta pól af sömu gerð. Rafstraum-
urinn í snúðnum hefur tilhneigingu
til að stöðva þessar breytingar á seg-
ulsviði sátursins. Það er þó ekki á
hans valdi og tekur hann þá þann kost
að elta segulsviðið.
M.ö.o. sátrið er kyrrt, en innan í
því hleypur segulsviðið í hringi. Snúð-
urinn, sem er hreyfanlegur, líkir eft-
ir þessari hreyfingu, hann eltir segul-
sviðið á svipaðan hátt og járn eltir
segul. Snúðurinn snýst því með sama
hraða og segulsvið sátursins, aðeins
örlítið á eftir, og með honum snýst öx-
ull mótorsins.
A hinu nýja rafmótoraverkstæði
S.Í.S. verða til að byrja með aðal-
lega framleiddir mótorar, sem eru frá
14 ha. og upp í 20 hö., en það eru
mest notuðu stærðirnar hér. Verk-
smiðjan getur þó framleitt mótora
allt upp í 100 hö. Mótorarnir verða
einfasa og þrífasa. Einnig verður
hægt að framleiða rafala.
Til að gefa mönnum hugmynd um
þessa nýju iðngrein, verður hér að
nokkru skýrt frá gangi framleiðsl-
unnar.
Það má segja, að hún byrji í málm-
steypunni, þar sem aluminium er
brætt og hellt fljótandi í mót. I þess-
ari deild verksmiðjunnar eru tveir
rafmagnsbræðsluofnar, báðir smíðað-
ir hér, og munu vera fyrstu bræðslu-
ofnarnir, sem hér eru í notkun og nota
rafmagn við bræðsluna. Hitastiginu
og bræðslutímanum er stjórnað með
sjálfvirkum mælum. Næturrafmagn
er mest notað við bræðsluna. I húsið,
sem er utan um rafvélina, er notað
aluminium, sem er létt og talið miklu
heppilegra en þyngri málmar, sem áð-
ur voru notaðir í húsin. I landinu fell-
ur til nokkurt magn af aluminium,
sem hægt er að bræða upp og nýta
aftur í húsin og aðra hluta rafhre}Al-
anna. Húsið er steypt í þrennu lagi,
og fer síðan á renniverkstæðið, þar
sem það er rennt af mikilli nákvæmni.
Húsin eru öll nákvæmlega eins fyrir
sömu tegund og stærð af rafvélum,
og er það mikill kostur; ef hús bilar
á rafvél, er strax hægt að fá annað
hús af réttri stærð. Þegar búið er að
renna húsið og ganga frá því að öðru
leyti, er þrýst inn í það mörgum
kranslöguðum rafalstálblöðum. Innri
brún blaðanna er alsett raufum fyrir
sáturvafið. Plöturnar eru mjög þunn-
ar og er bver plata einangruð frá
næstu plötu. Húsið með plötunum,
sem kallað er sátur, fer nú inn á
vafningsverkstæðið. Þar eru vafning-
arnir vafðir í þar til gerðri vél. Vafn-
ingarnir eru síðan baðaðir í lakki, sem
einangrar, og síðan eru þeir þurkað-
ir í ofni, sem bitaður er upp með raf-
magni. Þessi hluti rafvélarinnar er nú
tilbúinn til samsetningar. Frá renni-
verkstæðinu koma ásar rafvélanna,
en þeir eru úr mjög góðu stáli. Á ás-
ana er þrýst stálblöðum, svipuð-
um þeim, sem þrýst er inn í húsið, en
þær eru með rauf á ytri brún. Til þess
að þrýsta plötunum á ásana þarf
kraftmikla pressu, og er notuð við
það 400 tonna hydraulisk pressa, og
mun hún vera kraftmesta pressa sinn-
ar tegundar í landinu.
Ásinn með plötunum, sem kallaður
er snúður, fer nú aftur inn í málm-
steypuna, og þar er brætt í raufarnar
hreint aluminíum. Eftir að alumini-
umsteypan hefur verið löguð til á
renniverkstæðinu eru settar kúlulegur
á ásinn og síðan fer snúðurinn á sam-
(Fratnh. d bls. 20)
Þessi 400 tonna pressa er hin stcersta sinnar teg-
undar hér á landi.
Sérhver mótor er þrautreyndur og niceldur, áð-
ur en verksmiðjan sendir hann frá scr.
Sjálfvirkir rafmagnsbrccðsluofnar. Geta brcett
200 kg. af aluminium i einu. Hámarkshitastig
900° C.
5