Samvinnan - 01.02.1954, Side 9
StóIIinn er úr eik með lausri sessu og baki.
sem fæst við að safna húsgögnum og
húsbúnaði frá ýmsum tímum, sem
tekið hefur húsgögn þessi til varð-
veizlu. Mætti að vissu leyti líkja þess-
ari deild við hyggðasöfnin, sem nú er
verið að koma hér á fót víða um land.
Því hefur stundum verið haldið fram,
að vinnubrögð fornleifafræðinga og
safnvarða bæru þess ljósan vott, að
þeir gerðu ráð fyrir miklu nánari
söguþekkingu og auðugra ímyndun-
arafli hjá alþýðu manna en þar væri
til að dreifa; þeir gættu ekki ávallt
eðlilegs samhengis, er þeir kæmu hlut-
um fyrir til sýningar og létu svo á-
horfendur um að geta í eyðurnar.
Ef gert er ráð fyrir, að þessi stað-
hæfing hafi að einhverju leyti við rök
að styðjast, mun óhætt að fullyrða,
að byggða- og híbýlasöfn eru einkar
vel til þess fallin að draga úr þessum
takmörkunum hinna venjulegu forn-
gripasafna. Þar eru hlutirnir í sínu
eðlilega umhverfi, þar er „hver hlut-
ur á sínum stað“, og þar er þess gætt,
að ekkert það falli undan, sern verða
mætti til að auka heildaráhrif mynd-
arinnar. Pað er kannske full sterklega
að orði kveðið, að andblær horfinna
daga leiki manni um vanga, þegar
gengið er unt hin gömlu híbýli, en
flestir munu þó játa, að þessir gömlu
munir eru betur til þess fallnir en
flest annað að töfra fram „svipi lið-
innar tíðar“ fyrir hugskotssjónum
vorum.
Danska Samvinnusambandið hlýtur
viðurkenningu fyrir húsgagnagerð sína
Þjóðminjasafn Dana hefur keypt húsgögn af sambandinu
sem sýnishorn þess bezta
Danir hafa lengi verið frægir af
húsgagnagerð sinni, sem borið hefur
hróður danskra iðnaðarmanna víða
um lönd. Hefur útflutningur hús-
gagna aukizt hröðum skrefum eftir
stríðið, og gætir áhrifa frá húsgagna-
gerð Dana víða um heim. Hafa þeir
haft við orð, að húsgögn, sem unnin
eru í fjöldaframleiðslu í Bandaríkj-
unum og seld í ýmsum stórverzlun-
um New York, séu svo lík dönskum
húsgögnum, að jaðri við hreinar eft-
irlíkingar. Er þeim að sjálfsögðu ekki
sársaukalaust að sjá fram á slíka
eyðileggingu markaðsins, og munu
þeir hafa krafizt rannsóknar í mál-
inu.
Húsgögn þau, sem hér birtast
myndir af, eru framleidd af danska
úr nútíma húsgagnagerð
samvinnusambandinu, og er sú stað-
hæfing engan veginn úr lausu lofti
gripin, að þau séu sýnishorn hins hezta
í danskri húsgagnagerð í dag. Þannig
er mál með vexti, að þjóðminjasafn-
ið danska hefur keypt allmikið af
húsgögnum af samvinnusambandinu
og tekið til sýningar, og sýna mynd-
irnar nokkur af þessum húsgögnum.
Með þessu hyggjast forráðamenn
safnsins ekki aðeins sýna komandi
kynslóðum það bezta úr húsgagna-
gerð nútímans, heldur vilja þeir og
gera sitt til að hafa göfgandi og bæt-
andi áhrif á smekk núlifandi kynslóð-
ar og leggja áherzlu á menningar-
gildi góðra og vandaðra húsgagna við
alþýðu hæfi.
Það er sú deild þjóðminjasafnsins,
Skápurinn er einnig úr eik, en borðið og stólarnir úr mahogny.