Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1954, Blaðsíða 11

Samvinnan - 01.02.1954, Blaðsíða 11
ar, sem enginn hafði gengið um, síð- an Emily hætti að kenna postulíns- málun tæplega tíu árum áður. Gamli negrinn hleypti þeim inn í skugga- legt anddyri, en þaðan lá stigi upp í það, sem virtist vera óendanlegt myrkur. Þarna var rykmettað inni- lokunarloft. Negrinn vísaði þeim inn í móttökuherbergi, sem búið var þungum leðurhúsgögnum. Þegar hann dró tjöldin frá glugganum, sáu þeir, að leðrið var sprungið, og þegar þeir settust, stigu rykský upp frá stólun- um; þau liðuðust upp í loftið og tóku allskonar myndbreytingum í sólar- geislanum frá glugganum. A arinhill- unni var blýantsteikning af föður Emily í gylltum ramma. Þeir risu á fætur, þegar hún kom inn. Hún var lítil og feitlagin, svart- klædd. Um hálsinn bar hún langa og granna gullkeðju, sem hvarf undir beltið. Hún studdist franr á íbenholt- viðarstaf, gullbúinn. Hún var beina- smá, og ef til vill var það þess vegna, að það, sem nefnt hefði verið góð hold á öðrum, varð offita á henni. Það var engu líkara en að hún væri uppbleytt í vatni; útlínur líkamans og hörunds- liturinn bentu hvort tveggja til þess. Augun, sokkin í fitu, líktust rúsínum í kökudeigi, þar sem þau hvörfluðu frá einum þeirra til annars, meðan þeir báru upp erindi sitt. Ekki bauð hún þeim sæti. Hún stóð þögul og hlustaði, unz sá, sem orð hafði fyrir þeim, hafði lokið máli sínu. Þá varð svo hljótt, að tifið í ósýnilega úrinu, sem hékk í gullfestinni, heyrð- ist greinilega. Rödd hennar var þurr og kaldrana- leg, þegar hún tók til máls. „Ég greiði enga skatta hér í Jefferson. Sartoris ofursti hefur útskýrt það mál fyrir mér. Þið ættuð að leita í skjalasafni bæjarins. Þar munuð þið finna þær upplýsingar, sem ykkur vanhagar um.“ „Þetta höfum við gert. Við erum yfirvöld bæjarins, ungfrú Emily. Fenguð þér ekki bréf undirritað af borgarst jóranum ? “ „Víst fékk ég bréf,“ sagði fröken Emily. „Hann telur sig kannske vera borgarstjóra-------en ég greiði eng- in gjöld hér í Jefferson.“ „Það er ekkert í skjölunum, sem heimilar það, sjáið þér til. Við verð- um að fara eftir . . „Talið við Sartoris ofursta. Mér ber ekki að greiða nein gjöld í Jeff- erson.“ „En ungfrú Emily . . .“ „Talið við Sartoris ofursta.“ (Þeg- er þetta bar til, hafði Sartoris legið 10 ár í gröf sinni). „Ég á ekki að greiða nein gjöld í Jefferson. Tobbi!“ Negrinn birtist. „Vísaðu þessum herrum út.“ II. Þannig rak hún þá af höndum sér eins og hún hafði rekið feður þeirra af höndum sér þrjátíu árum áður. Það var út af ólyktinni. Það var tveim árum eftir andlát föður hennar og rétt eftir að unnustinn yfirgaf hana, það er að segja sá, sem við héldum, að mundi ganga að eiga hana. Eftir að faðir hennar lézt, fór hún lítið út, og eftir að unnustinn fór frá henni, sást hún alls ekki. Nokkrar konur voru svo hvatvísar að heimsækja hana, en þeim var ekki hleypt inn. Eina lífs- markið, sem í húsinu sást, var negr- inn. Hann var þá ungur og fór dag- lega í búðir. „Eins og nokkur maður geti hugs- að almennilega um eldhús,“ sögðu konurnar. Þær voru ekki hissa, þegar fór að bera á ólyktinni. Hún varð annar tengiliðurinn milli hinnar stóru veraldar annars vegar og heimili Griersonfjölskyldunnar hins vegar. Nágrannakonan kvartaði við borg- arstjórann, Stevens dómara, sem þá var áttræður. „En hvað ætlizt þér til, að ég geri, frú mín?“ spurði hann. „Auðvitað verðið þér að skipa henni að koma í veg fyrir þetta,“ sagði konan. „Eru ekki til nein lög, sem kveða á um þvílíkt?“ „Ég er ekki viss um, að þess gerist þörf,“ sagði dómarinn. „Það er senni- lega snákur eða rotta í garðinum, sem negrinn hefur drepið. Ég ætla að tala um það við hann.“ Daginn eftir komu tvær kvartan- ir í viðbót. Onnur var borin fram af uppburðarlitlum manni með van- þóknunarsvip. „Ég er hræddur um, að við verðum að gera eitthvað í mál- inu. Sízt af öllu vildi ég verða til að hryggja fröken Emily, en eitthvað verður að gera.“ Sama kvöldið hélt bæjarráðið fund. I því áttu sæti þrír gamlir menn og gráskeggjaðir og einn fulltrúi yngri k}mslóðarinnar. Hann sagði: „Þetta er mjög einfalt. Við gerum henni þau orð, að hún verði að láta hreinsa húsið og veitum henni ákveðinn frest. Ef hún ekki . . .“ „Nei, andskotinn,“ sagði Stevens dómari. „Ætlið þér að halda því fram við konu, að það sé ólykt af henni?“ Eftir miðnætti næstu nótt gengu fjórir rnenn y^f i r grasflötina fyrir framan hús fröken Emily. Þeir lædd- ust um húsið eins og innbrotsþjófar, snuðruðu um kjallarann og dreifðu sóda um allt. Þegar þeir fóru aftur yf- ir flötina, var búið að kveikja ljós í einum glugganum, og þeir sáu skugg- ann af fröken Emily, þar sem hún sat grafkyrr og tignarleg. Mennirnir læddust á brott. Eftir þetta tóku menn að kenna í brjósti um hana. Þeir bæjarbúa, sem mundu eftir gömlu frú Wyatt, frænku Emily, sem á endanum varð brjáluð, voru ekki frábitnir þeirri skoðun, að Griersonfólkið fyndi kannske ofur- lítið meira til sín en góðu hófi gegndi. Enginn ungu mannanna var samboð- inn fröken Emily, og annað var eftir því. Areiðanlega réði faðir hennar miklu um þessar sífelldu neitanir. Þó að brjálsemi væri í ættinni, var það næsta ólíklegt, að hún neitaði hverj- um einasta biðli. Þegar faðir hennar dó, fréttist að húsið væri það eina, sem hann hefði eftirlátið henni, og á vissan hátt gladdi þetta fólkið. Loksins gat það vorkennt fröken Emily. Það gerði hana mannlega að verða svona allt í einu fátæk. Nú hlaut hún að kynn- ast þeirri tilfinningu að verða að velta hverjum peningi í lófa sér, áður en hún léti hann frá sér. Daginn eftir dauða föður hennar ætluðu nokkrar konur að heimsækja hana, votta henni samúð og bjóða að- stoð sína. Hún kom til móts við þær á tröppunum og sagði, að faðir sinn væri alls ekki dáinn. Svona gekk það í þrjá daga, þó að prestarnir og lækn- arnir gengju á hana. Að lokum gafst hún upp, þegar átti að beita hana hörðu. Faðir hennar var grafinn í skyndingu. Við héldum ekki þá, að hún væri brjáluð. Við héldum, að hún hefði orðið að gera þetta. Við minntumst allra ungu mannanna, sem faðir hennar hafði rekið á brott, og við 11

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.