Samvinnan - 01.02.1958, Síða 2
Útgefandi: Samband ísl.
samvinnufélaga.
Ritstjóri: Benedikt Gröndal.
Blaðamaður: Gísli Sigurðsson.
Ritstjórn og afgreiðsla í
Sambandshúsinu, Reykjavík.
Ritstjórnarsími: 17080.
Kemur út mánaðarlega.
Verð árgangsins kr. 90.00
Verð í lausasölu kr. 9.00
Prentsmiðjan Edda.
Sannleikurinn eltir lyg-
ina uppi ............... bls. 3
Byggingarsýningin í
Berlín, eftir Ormar
Guðmundsson ....... — 4
Frá Islandsför Camp-
bells 1862, eftir Her-
mann Pálsson, lektor — 8
Skipulagsbreyting í út-
flutningsdeild SÍS . . — 10
Úr íslenzkri skurðstofu,
ljósmyndir eftir Guðna
Þórðarson ................ — 11
Vandi vopnlausrar þjóð
ar, eftir Gunnar Gunn-
arsson ................... — 14
Efnisyfirlit yfir árgang-
inn 1957 ................. — 15
Gildi skólaíþrótta, eftir
Kristján Jóhannsson , — 19
Vaðlaklerkur, ný frarn-
haldssaga eftir Sten
Blicher ................. — 23
FEBRÚAR 1958
Lll. árgangur 2.
1 SÍÐASTA hefti Samvinnunnar var
getið um málverkasýningu Bjarna Guð-
mundssonar frá Höfn í Hornafirði. Um
svipað leyti hafði starfsmaður hjá Kaup-
félagi Árnesinga málverkasýningu í sam-
komusal kaupfélagsins. Hann heitir
Benedikt Guðmundsson og er búinn að
starfa að kjötiðn hjá Kaupfélagi Árnes-
inga síðan 1952. Benedikt hefur lagt
gjörva hönd á margt, meðal annars kera-
mik og ljósmyndun.
Á sýningu Benedikts voru um 80 mynd-
ir. Aðsókn var góð og fjórðungur mynd-
anna seldist. Þar kenndi margra grasa.
Þar voru olíumyndir, vatnslitamyndir og
teikningar. Benedikt málar mest ab-
strakt, en mikið af því er þó hlutlægt.
Benedikt lærði kjötiðn í Kaupmanna-
höfn og þó notaði hann tómstundir sín-
ar til myndlistarnáms. Hann hélt sýn-
ingu í Reykjavík 1944 og síðar hefur hann
tekið þátt í samsýningum.
Sýningar þeirra Benedikts og Bjarna
eru merkilegur hlutur. Þar koma menn,
sem hafa getið sér orðstír fyrir listsköp-
un við hliðina á brauðstritinu. En þeir
hafa gert meira. Þeir hafa notað tóm-
stundir sínar skynsamlega og vafalaust
átt margar ánægjustundir við þetta
hugðarefni sitt. Væri betur að fleiri fet-
uðu í fótspor þeirra, þó að ekki væri nema
til þess að hafa meira gagn af tómstund-
unum en menn almennt gera.
Benedikt hjá einu verka sinna.
Stefán í Stakkahlíð 75 ára.
ÞANN 9. janúar átti Stefán bóndi Bald-
vinsson í Stakkahlíð í Loðmundarfirði 75
ára afmæli. Stefán er landskunnur sam-
vinnufrömuður. Hann hefur um langt
skeið verið stjórnarformaður Kaupfélags
Austfjarða á Seyðisfirði og unnið því fé-
lagi vel. Stefán dvaldist á heimili dóttur
sinnar í Reykjavík á afmælinu og heim-
sóttu hann margir. Meðal þeirra var for-
stjóri Sambandsins, Erlendur Einarsson,
og afhenti hann Stefáni málverk að gjöf
frá Kaupfélagi Austfjarða. Málverkið var
eftir Eggert Guðmundsson, listmálara og
var af Stefáni sjálfum. Stefán er síkátur
og skemmtilegur og ber hann ekki merki
um svo háan aldur. Samvinnan óskar
honum til hamingju með afmælið.
Erlendur ajhendir Stejáni málverkið.
Guðni Þórðarson.
MÖRGUM munu þykja athyglisverðar
ljósmyndirnar af uppskurðinum hér i
blaðinu og ekki veit Samvinnan til þess,
að hliðstæðar myndir hafi áður birzt í
blaði hérlendis. —
Guðni Þórðarson er
landskunnur Ijós-
myndari og blaða-
maður. Hann byrj-
aði kornungur að
fást, við Ljósmynda-
gerð og innan við
tvítugt varð hann
blaðamaður hjá
Tímanum. Guðni
byrjaði snemma að
taka myndir úr at-
virniulífinu ogbirta
með greinum það-
an. Mun það vera
upphaf að slíkri blaðamennsku hérlend-
is.
Frá og með síðustu áramótum varð
Guðni framkvæmdastjóri Tímans.
Guðni er fæddur í Hvítanesi á Akra-
nesi 25. maí 1923. Hann nam við Reyk-
holtsskóla og lauk síðan verzlunarprófi
frá Samvinnuskólanum. Guðni hefur
ferðast mikið, m. a. um Ameríku, flest
lönd Evrópu, austur til Pakistan og um
Norður-Afríku. Á næstunni munu birt-
ast ferðasöguþættir frá Grikklandi og
Tyrklandi eftir Guðna hér í blaðinu.
2 SAMVINNAN