Samvinnan - 01.02.1958, Page 12
Séð yfir skurðborðið, meðan á hinum fjögurra klst. uppskurði stóð. Áhöldin, sem líkjast skærum,. eru æðaklemmur.
Erlendis er það algengt, að blöð og tímarit
birti myndir sem þær, er hér gefur að líta.
Meira að segja er stórum uppskurðum sjón-
varpað og ekkert dulið. Allt þetta hafa lækn-
ar leyft í þeirri trú, að það mundi auka skiln-
ing almenmngs á starfi þeirra og traust manna
til læknavísindanna.
Það er í þessari sömu trú, sem Samvinnan,
fyrst allra rita á Islandi, birtir myndfrásögn
af uppskurði á íslenzku sjúkrahúsi með leyfi
viðkomandi yfirlæknis. Það er ekki oft, sem
læknar og hjúkrunarlið hljóta á opinberum
vettvangi viðurkenningu og þakkir fyrir störf
sín, þótt allir þeir, sem til þeirra hafa leitað,
Hjúkrunarkonur stjórna stöðugri blóðgjöf til sjúklingsins. óski þeim guðlauna.
12 SfiMVINN.W