Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1959, Blaðsíða 16

Samvinnan - 01.12.1959, Blaðsíða 16
LYOF TOLSTOY ■y ® © -<s • Heimili * I borg nokkurri bjó Mar- tin Avdyeeich, skósmiður að atvinnu. Hann bjó í kjallara, lítilli, fátæklegri kytru með einurn glugga. Glugginn sneri tit að strætinu, og gegnum liann gat Martin séð vegfar- endum bregða fyrir, er þeir gengu framhjá. Að vísu sá hann lítið annað en stígvél þeirra, en það nægði. Því að séreinkenni hvers einstaklings ltirtust Martin Avdyeeich ljóslega í ástandi stígvéla hans. Hann liafði búið lengi í þessari borg og var þar þaul- kunnugur. Flest stígvél, sem til voru þar í nágrenninu höfðu farið í gegnum liendur hans fyrr eða síðar. Sum þeirra hafði hann sólað, límt bætur á hliðar annara, nokk- ur hafði hann bætt rækilegar, jafnvel saumað á þau nýja boli, ef það reyndist nauðsyn- legt. Og oftsinnis sá hann sitt eigið handaverk út um glugg- ann. Hann hafði alltaf ærið að starfa, því hönd hans var lagin og leður hans gott; hann okraði ekki á viðskiptavinum sínum og hélt orð sín ævin- lega. Hann lofaði að ljúka verkinu á ákveðnum tíma, ef þess var kostur, væri slíkt ekki fyrir hendi, gaf hann það strax til kynna, og blekkti engan. Allir þekktu Avdyeeich, enda skorti hann aldrei at- vinnu. Hann hafði alltaf ver- ið sómamaður, en er aldur- inn tók að færast yfir hann, fór hann að leiða hugann í vaxandi mæli að sinni eigin sál, og nálgaðist þannig guð sinn. Kona Martins hafði dá- ið meðan hann var enn að kærleikans er hús Drottíns nema iðn sína, en hún liafði látið honum eftir lítinn dreng, þriggja ára gamlan. Öðrum börnum þeirra varð ekki langrar ævi auðið. Öll hin eldri höfðu snemma látizt. Martin liugðist í fyrstu senda litla barnið sitt út í sveit til systur sinnar, en síðar tók liann málið til nánari athug- unar. „Hann Kapitoshka minn,“ hugsaði hann, „kann ef til vill ekki við sig í hús- um ókunnugra. Því er bezt að hann verði hjá mér.“ Síð- an yfirgaf Avdyeeich meist- ara sinn, tók húsnæði á leigu, og settist þar að ásamt litla syni sínum. En Guð veitti Avdyeeich ekki barnalán. Þeg- ar Kapitoshka litli hafði náð þeim þroska, að hann var far- inn að verða föður sínum til aðstoðar og ánægju, sýktist liann og lagðist rúmfastur. í beila viku lá hann með háan liita, og dó síðan. Fullur ör- væntingar fylgdi Martin syni sínum til grafar — sorg hans var slík, að hann hóf að mögla gegn Guði. Hann varð svo leiður á lífinu, að oftar en einu sinni bað liann Guð þess, að liann mætti deyia; og hann álasaði Guði fyrir að taka hann ekki til sín, roskinn mann, en hrífa bess í stað á brott augastein hans og einka- son. Og síðan hætti Avdyeeich að sækia kirkju. Dag einn bar svo við, að aldraður kotbóndi kom í heimsókn til Avdyeeich á leið sinni frá Troitsaklaustrinu. Var hann í pílagrímsför, og hafði þegar verið sii') ár í þeim leiðangri. Avdyeeich sökkti sér niður í að ræða við hann og sagði hontnn frá hinni miklu sorg sinni. „Guðsmað- ur,“ sagði hann, „ég kæri mig ekki um að lifa lengur. Ef ég aðeins mætti deyja! Sú er mín einasta bæn til Guðs. Því að nú er ég vonlaus maður." Og gamli maðurinn sagði við hann: „Martin, þér mælist ekki vel. Hvernig getum við dæmt gerðir Guðs? Dómar Hans eru ekki hugsanir okk- ar. Vilji Guðs var sá, að sonur þinn dæi, en þú lifðir. Þess- vegna hentaði það ykkur báð- um betur en nokkuð annað. Nú ert þú örvæntingarfullur sökum þess, að þú hugðist lifa fyrir þína eigin ánægju.“ „En fyrir hvað á maður þá að lifa?“ spurði Avdyeeich. Og gamli maðurinn svaraði: „Fyrir Guð, Martin! Hann gaf þér líf þitt, og fyrir Hann verður þú því að lifa. Og þegar þú hefur byrjað að lifa fyrir Hann, mun ekkert liryggja þig framar, og allir Iilutir verða þér auðveldir viðfangs.“ Martin var þögull eitt and- artak. og sagði síðan: „Og hvernig á maður að lifa fyrir Guð?“ .. Kristur hefur vísað okkur veginn. Keyptu guðspjöllin og lestu þau. Þar er allt út- skýrt.“ Þessi orð tendruðu eld í hjarta Avdyeeich, og hinn sama dag keypti hann sér Nýja testamentið með mjög stóru letri, og hóf lesturinn. Hann byrjaði með þeirri á- kvörðun. að lesa einungis á helgidögum, en svo góð áhrif hafði lesturinn á hjarta lians, 16 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.