Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1959, Blaðsíða 22

Samvinnan - 01.12.1959, Blaðsíða 22
Við eigum heiminn Við eigum heiminn eigum heiminn Jólaleikir Nú styttist óðum til jóla. Jólafríið nálgast og áður en nokkur veit af, er það komið. Það er gaman að geta varpað frá sér bókum og námi um sinn, og þurfa ekkert um það að hugsa næstu vikur. En svo fer gjarnan, að tíminn verður nokkuð langur og tilbreytingarsnauður, þegar dagsins önn og erfiði er að mestu frávikið, þá sannast hið fornkveðna, að það er illt að vanta nudd- ið sitt. Og liggur þá ekki beinast við að taka sér eitthvað annað fyrir hendur, eitthvað, sem fyllir rúm og tíma, eitthvað, sem gaman er að? Maðurinn er í eðli sínu fullur leiks. Ýmist leikur hann til þess að villa á sér heimildir, til þess að auðvelda sér samgang við aðra menn eða einfald- lega til þess að skemmta sér og öðrum. Börn leika sér ýmist eitt og eitt eða fleiri saman, og þótt leikirnir sjálfir breytist, fylgir leikurinn manninum fram á grafarbakkann í ýmiss konar formi. N ýlega barst mér í hendur bók, sem hefur inni að halda nokkra þeirra sam- kvæmisleikja, sem Ameríkumenn leggja stund á um jólaleytið. Sumir þeirra eru að vísu þess eðlis, að þeir eiga lítt við skap og kímnigáfu íslendinga, aðr- ir eru orðaleikir, sem missa gildi sitt við þýðingu, en nokkrir geta gert sér ganran af þeim, og gert jólafríið þar með ennþá skemmtilegra en ella: Búðarmannsleikur. Viðstöddum er skipt í tvo hópa, annar er kaup- endur, hinn brúður, en einum þátttakanda hald- ið eftir, til að gegna störfum verzlunar- manns. Svo hefst verzl- unin: Einn úr kaup- endahópnum kemur til verzlunarmannsins og segist vilja kaupa brúðu. Þá sýnir verzlunarmað- urinn brúðuhópinn, allt fyrsta flokks vöru. Þær eru náttúrlega raun- verulegar brúður, með stífa limi og starandi augu. Væntanlegur kaupandi vill nú fræðast 22 SAMVINNAN issa spurninga í því sam- bandi, svo sem: Lokar hún augunum? Segir hún mamma? o. s. frv. Verzlunarmaðurinn er náttúrlega áfjáður í að selja sína vöru og sýnir kaupanda allar þær kúnstir, sem brúðan get- ur gert. Hallar henni aftur á bak svo hún loki augunum, ýtir á mag- ann á henni til þess að láta hana segja mamma o. fl. Geti brúðan ekki haldið sínum tjáningar- lausa svip og brosi eða hlægi, eru kaupin um garð gengin. Markmið leiksins er því að brúð- an haldi virðingu sinni sem lengst. Þessi leikur getur orðið býsna skemmtilegur. Sömuleiðis. Þátttakendur sitja í hring, utan einn, sem stendur í miðjunni. Miðjumaðurinn bendir á einhvern í hringnum og segir: Gleðileg jól. Sá sem bent er á verður að segja: sömuleiðis, áð- ur en hinn hefur lokið hátíðaóskum sínum. Ef það nær ekki fram að ganga, verður sá sem bent var á að fara í hringinn, en hinn má taka sæti hans. Sama skeður, ef sá ábenti seg- ir: sömuleiðis, áður en hinn hefur sagt nokkuð, en það er alltítt, ef miðjumaðurinn bendir snöggt á einhvern án þess að segja neitt. Jólabjöllur. Hverjum gesti er gefinn viss fjöldi af jólabjöll- um, sem klipptar hafa verið úr pappa. Þeir skulu síðan verzla með bjöllurnar, þannig að spyrja hver annan spjör- unum úr, og sá sem getur fengið einhvern til að segja já eða nei, skal fá eina bjöllu fyrir hvert

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.