Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1959, Blaðsíða 20

Samvinnan - 01.12.1959, Blaðsíða 20
HJÖRLEIFUR SIGURÐSSON Móðir og barn Madonna í hásæti er eftir Cimabue. Hann hefur stund- um verið nefndur faðir ítalskrar málaral istar. Cimabue bjó í borginni Flórens á Ítalíu á síðari helmingi þrett- ándu aldar og við upphaf þeirra fjórtándu. Hann mál- aði aðeins nokkrar myndir og menn eru ekki einu sinni öruggir um, að þær séu allar eftir hann. Samt sem áður var hann mjög dáður af samborgurum sínum og talinn bera höfuð og herðar yfir listamenn samtíðarinnar. Skáld- ið Dante lýsti afrekum hans með mörgum, fögrum orð- um. Sú saga hefur verið sögð, að þegar Cimabue hafði lokið við að mála eina af Maríumyndum sínum, liafi borgararnir í Flórens orðið svo hrifnir af listaverkinu, að þeir sóttu það heim til hans og gengu síðan með það fylktu liði til kirkjunnar undir blaktandi fánum og lúðra- þyt. Síðari tíma menn hafa orðið til að draga afburða- hæfileika Cimabues í efa. Flestir eru þó sammála um, að hann hafi jafnan snert kjarna listarinnar og undirbúið jarðveginn fyrir Giotto, hinn mikla meistara Gótíkurinn- ar. Það er hreint ekki svo ómerkilegt þegar tillit er tekið til umhverfis og aðstæðna. f myndum Cimabues er guðsmóðirin harla torkenni- leg í augum okkar. Hún er ekki manneskja nema að hálfu leyti. Hún er fremur tákn en lýsing á gyðinga- stúlkunni, sem fékk það óviðjafnanlega hlutverk í hend- ur að fæða og ala upp frelsara heimsins. Rafael fór öðru- vísi að. Hann málaði Maríu mey sem hina fullkomnu jarðnesku konu, þá, sem aldrei hefur verið til og aldrei mun birtast okkur holdi klædd. Fagrir og grannir litir, klassísk hlutföll á gríska vísu og hátíðlegur blær var keppi- kefli hans. Það munaði oft ekki nema hárbreidd, að tilfinn ingasemi bæri listaverkin ofurliði. Ansideimadonnan er ein þessara mynda Rafaels. Hann málaði hana fyrir ríka fjölskyldu í Perugia um 1507. Hún átti að hanga í San Fiorenzo kirkjunni og hefur að líkindum gert það í ára- tugi eða aldir. En nú er hún eign Ríkislistasafnsins í Lundúnum. Rafael málaði margar aðrar madonnumynd- Cimbue: Madonna í hásæti. 20 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.