Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1964, Síða 14

Samvinnan - 01.10.1964, Síða 14
KAPUSNIÐ ''ti '■/ /A \ Bryndís Steinþórsdóttir húsmædrakennari heimilisþáttur Nú er kominn tími til að sauma skólakápuna eða úlpuna, séu þær ekki fyrir hendi. Nýlega kom ég auga á snið, sem eru bæði hentug og falleg og geta átt við margskonar efni, t. d. ullarefni, kápupopplin eða flauel. En ef til vill eiga marg- ar húsmæður heillegar notaðar flíkur sem má sauma upp úr góða flík á þá sem yngri eru. Sniðin eru frá „Butterick", no. 2925 og stærð 4—12 ára. Þau á að vera hægt að panta í gegn um verzlanir sem hafa þessi snið til sölu en annars með því að skrifa til „Heim- ilisþáttarins." Nokkur orð til þeirra, sem ætla að hraðfrysta matvæli Hraðfrysting matvæla er talin bezta og öruggasta geymsluaðferðin sem við eigum völ á. Margskonar frystikistur og skápar eru nú á markaðnum og einnig hafa margir aðgang að frystihólfum í nálægu frystihúsi. Nokkur atriði verðum við alltaf að hafa í huga við hrað- frystingu. 1. Farið nákvæmlega eftir leiðarvisi sem fylgir kistuami eða skápn- um í sambandi við kuldastillingu og meðferð. 2. Frystið aldrei nema fyrsta flokks matvæli ný og óskemmd. 3. Skiptið matvælunum niður og búið um þau til einnar eða tveggja máltíða, bæði vegna þess að frystingin gengur betur ef pakkam- ir eru litlir og einnig vegna þess að ekki er ráðlegt að frysta aftur það sem einu sinni hefur þiðnað. 4. Hafið í huga að innri umbúðir verða að vera loft og gufuþéttar og þurfa einnig að fálla vel að matvælunum. Góðar innri umbúðir eru t. d. aluminíumpappír, hæfilega þunnt plast (beztir eru plast- hólkar af mismunandi breiddum, sem hægt er að kaupa í metra- tali) eða þar til gerður sellofan. (Plast og sellofan er strauað eða límt saman). 5. Ytri umbúðir eiga að vera þannig að þær vami ofþomun og fari ekki í sundur þó að pakkarnir séu færðir úr stað eða blotni. Beztar eru vaxbornar pappaöskjur, sem lögun innihaldsins er þá miðuð við. Vaxborinn pappír er einnig ágætur eða þykkur brúnn pappír. 6. Séu matvælin fljótandi eru beztar aluminíumdósir eða plastílát, en þá verður að hafa í huga að ílátin mega ekki vera alveg full, 2—3 cm borð á þeim og einnig að lokið sé vel þétt. 7. Allt verður að vera vel merkt með innihaldi, þunga, dagsetningu og ártali. Um leið er þetta skrifað inn í sérstaka bók til að hafa hugmynd um birgðirnar. 8. Frystið matvælin strax og þau eru tilbúin. Raðið pökkunum sem næst hliðum frystisins og athugið að bil sé milli frosinna og ófros- inna matvæla. Allskonar matvæli em fryst með góðum árangri, t. d. kjöt, fiskur, grænmeti, ávextir, egg, einnig tilbúnir kjöt og fiskréttir, brauð, kök- ur og ábætisréttir. Hagsýnar húsmæður kaupa matvælin meðan þau eru ódýrust, t. d. kjöt og grænmeti og útbúa í frystingu. Margir frysta tilbúna rétti til miðdegis- og kvöldverðar — einnig brauð og kökur. Sem dæmi um það má nefna húsmóður sem þurfti að vera að heiman í 2—3 mánuði. Hún undirbjó flestar máltíðir fyrir fólk sitt þannig að þær þurftu aðeins upphitunar við og ef til vill að jafna sósuna. 14 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.