Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1964, Blaðsíða 22

Samvinnan - 01.10.1964, Blaðsíða 22
Nýr framkvæmdastjóri hjá Nordisk Andelsforbund Lars Lundin Daninn Mogens Efholm, sem síðan 1951 hefur gegnt störfum fram- kvæmdastjóra hjá Sam- vinnusambandi Norður- landa (Nordisk Andelsfor- bund), lætur af þeim störfum á þessu hausti, en við tekur Svíinn Lars Lundin. Á aðalfundi sam- takanna, sem haldinn var nýlega í Karlstad í Sví- þjóð, voru hinum fráfar- andi framkvæmdastjóra vottaðar þakkir fyrir störf hans í þágu þeirra. Jafnframt lætur Ef- holm af störfum sem framkvæmdastjóri Sam- vinnusambands Norður- landa um útflutning (Nordisk Andels-Eksport), en því starfi hefur hann gegnt síðan 1954, er það samband var stofnað að frumkvæði hans. Hinn nýi framkvæmda- stjóri er 41 árs að aldri og hefur um nærri tveggja áratuga skeið gegnt ýms- um ábyrgðarstöðum hjá sænska samvinnusam- bandinu (Kooperativa Förbundet), og einnig hjá sænska ríkinu. Síðan 1961 hefur hann verið for- stöðumaður Lundúnaskrif- stofu NAF. Mega sam- vinnumenn á Norðurlönd- um vænta sér hins bezta af honum í hinu nýja starfi. Frá Kaupfélagi Króksfjarðar Slátrun sauðfjár hófst 15. þ. m. í sláturhúsi kaupfélagsins í Króksfjarðarnesi. Slátrað er á dag að meðaltali um 600 f jár. Vænleiki f járins virðist tæplega jafn mikill og s.l. ár. Alls er áætlað að slátra 12 til 13 þús. fjár. Næstum allt sláturfé er flutt á bifreiðum til sláturhúss- ins og ganga þeir flutningar vel. Nú í fyrsta sinn er fláning greidd eftir afköstum, 9,00 kr. fyrir kind, miðað við að flán- ingsmaður risti fyrir og taki kindina á skurðarborði. Það sem af er, hefur þetta fyrir- komulag gefist mjög vel. Enn- fremur var nú hætt að vigta gærur og slátur, hvorttveggja tekið inn eftir kjötþunga, þessi breyting gefur möguleika til þess að slátrunin gangi mun greiðar, enda hefur það sýnt sig. Fyrir jólin 1962 flutti kaup- félagið aðalverzlun sína í ný- byggt verzlunarhús við þjóð- veginn, en í ár var lokið við að byggja vörugeymsluhús við verzlunina. Alls er grunnflötur þessara húsa um 380 ferm. 1 vörugeymsluhúsinu er komið fyrir frystihólfageymslu með yfir 60 hólfum til geymslu á matvælum fyrir viðskipta- menn. Skammt frá olíudælun- um hefur verið byggð bíla- þvottastöð, um 100 ferm. Er hún vinsæl og var mikið notuð þegar umferðin var mest, en yfir mánuðina júlí og ágúst er mikil umferð, enda eru bygg- ingar þessar við aðalþjóðveg- inn til Vestfjarða. Allar teikningar eru unnar á teiknistofu Sambandsins und- ir yfirumsjón Gunnars Þor- steinssonar, sem hefur sýnt þessum verkum mikla um- hyggju og veitt góða fyrir- greiðslu. Kjörbúðir samvinnufélaganna Sumarið 1955 gerðust sam- vinnufélögin á íslandi braut- ryðjendur í nýjum verzlunar- háttum í landinu. Það ár voru opnaðar fyrstu kjörbúðirnar. Tóku þær til starfa svo til sam- tímis hjá Kaupfélagi Hafnfirð- inga Hafnarfirði, Kaupfélagi Árnesinga á Selfossi og S.Í.S. í Austurstræti. Vinsældir þessa verzlunar- forms urðu slíkar, að síðan 1955 hefur það verið tekið upp meira og minna um allt land, bæði hjá kaupfélögunum og einkaverzlunum. Árið 1958 voru kjörbúðir sam- vinnufélaganna orðnar 21, árið 1960 voru þær 30, árið 1962, 54 og 1964 eru þær 65. Árið 19-58 var fólksfjöldi á íslandi, miðað við 1. des. 170.155. Hinn fyrsta des. 1963 var hann 186.912. KJÖRBÚÐARVAGNAR Á ÍSLANDI Kaupfélag Hafnfirðinga gerðist brautryðjandi um notkun kjörbúðarvagna hér á landi. Fyrsti vagninn var tekinn í notkun hinn 22. marz 1963. Síðan hefur kaup- félagið bætt við vögnum og á nú þrjá. Þeir hafa reynzt mjög vel og fólkið í þeim hverfum Hafnarfj arðar og í Garðahreppi og Álftanesi, sem óhægasta aðstöðu hefur til verzlunar, telur þá vera til hinnar mestu þj ónustu og að það geti ekki án þeirra verið. Enda eru vagnarnir hin ágætustu tæki. Þeir eru innréttaðir sem kjörbúð og í þeim fæst brauð, mjólk, smjör, ostar, fiskur, kjöt og kjötvörur, svo og alls konar matvörur aðrar, sem hús- mæður þurfa daglega að kaupa, samtals meira en 300 tegundir. í þeim er djúp- frystir og kælir. Vagninn er mjög vel einangraður, svo að hitabreytinga gætir þar sem allra minnst. f þeim er vatns- geymir og handlaug úr ryð- fríu stáli til afnota fyrir starfsfólkið. Búðarvagnar hafa verið í notkun um langt skeið í öðrum löndum og fer þeim sífjölgandi. Þegar far- ið var að breyta venjulegum verzlunum í kjörbúðir, náði sú breyting einnig til vagn- anna. Enginn efi er á því, eftir reynzlu þeirri að dæma, sem fengin er, að hér á landi geta kjörbúðarvagnar komið að notum á mörgum stöðum. Vagninum er ekið á ákveð- inn stað á ákveðnum tíma, þar sem hann dvelur nokkra hríð á meðan verzlað er. Síð- an er honum ekið á næsta stað. Nú hefur KRON feng- ið sinn fyrrta vagn og tekur hann í notkun í Kópavogi. 22 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.