Samvinnan - 01.12.1965, Blaðsíða 5
Ryamottur - nýjung í íslenzkum iðnaði
Handhnýttar ryamottur eru skemmtilegt verkefni fyrir alla fjölskyld-
una. Ullarverksmiðjan Gefjun á Akureyri framleiðir fallegt og gott
garn til ryahnýtingar „Grettisgarn“, sem er auk þess mun ódýrara
en það garn sem áður hefur verið völ á. Botnarnir eru einnig ofnir
í verksmiðjunni. Húsmæðrum og þeim öðrum sem hafa áhuga á að
búa til fallega mottu, gefst kostur á að kaupa efni, garn og munstur
í næsta kaupfélagi, einnig nálar og trélista, sem notaðir eru við
hnýtinguna. Munstrin eru teiknuð af Helgu Sveinbjörnsdóttur og
hefur hún einnig valið litina.
VINNUAÐFERÐ:
Leggið efnið á borð eða grind. Leggið garn-
ið sem næst ykkur svo þægilegt sé að ná
í nýja enda. Festið garnendana og leggið
listann þannig að þynnri brúnin snúi að
gatröðinni sem sauma á. Byrjið síðan að
hnýta eins og meðfylgjandi myndir sýna.
1. Hver ryalykkja er saumuð undir tvo fern-
inga í efninu. Þegar fyrsti hluti hnútsins er
hnýttur, hangir þráðurinn undir breiðari
enda listans. Stingið nálinni undir annan
ferninginn frá miðju til vinstri. Styðjið vel
við listann og hnútinn.
2. Þá liggur garnið fyrir ofan listann og
nálinni er stungið undir hinn ferninginn
frá hægri að miðju. Takið í þráðinn og
styðjið við lykkjuna. Athugið að hnútur-
inn verði ekki of fastur.
3. Þræðinum er brugðið undir trélistann
og byrjað á nýrri lykkju smbr. mynd 1.
Þegar umferðinni er lokið eru lykkjurnar
klipptar í' raufinni neðan á listanum.
Þegar skipt er um lit er saumað á sama
hátt og áður er nefnt. Athugið að halda
fast við garnendana við neðri brún list-
ans meðan lykkjan er hnýtt.
Að síðustu eru ójöfnurnar klipptar og
stykkinu brugðið yfir gufu ef vill.
SAMVINNAN 5