Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1965, Síða 30

Samvinnan - 01.12.1965, Síða 30
SITT AF HVERJU TAGI - Reikningsþrautir 1. Raðaðu tölunum þannig, að allsstaðar komi fram 10 hvort sem lagt er saman lóðrétt, lárétt eða í skakk- horn. 4 1 3 1 3 3 2 2 2 4 4 1 4 1 3 2 2. Kaupmaður nokkur lét járnsmið járna fyrir sig hest. Bað hann smiðinn að gera það vel og kvaðst borga það vel á eftir. Smiðurinn setti upp 1 eyri fyrir fyrsta naglann, 2 fyrir hinn næsta og svo alltaf tvöfalt fyrir hvern nagla, en þeir voru 24. Kaupmaðurinn hló að hve lítið þetta væri og sagði bókhaldara sínum að borga. En hann hætti brátt að hlæja, þegar hann sá hver upphæðin var. — Hver var hún? 3. Ykkur finnst þetta kann- ski hálfskrítið reiknings- dæmi en ef þið reiknið það rétt komist þið að raun um að útkoman er ekki síður skemmtileg. 1X9+ 2 = 12X9+ 3 = 123X9+ 4 = 1234X9+ 5 = 12345X9+ 6 = 123456X9+ 7 = 1234567X9+ 8 = 12345678X9+ 9 = 123456789X9+10 = 4. 1) Hvernig getur helming- urinn af 11 orðið 6? 2) Hvernig geta 11 frá 11 orðið 90? Nafnagáta í auðu reitina eigið þið að setja stafi, svo að úr orðun- um verði: 1) karlmanns- nafn, 2) karlmannsnafn, 3) kvenmannsnafn, 4) karl- mannsnafn, 5) gata, 6) dauði. 3) Takið þrjátíu eldspýtur og raðið þeim eins og hér er sýnt. Takið 12 af þess- um eldspýtum svo að eft- ir verði 11. Getur þetta staðist? Lesið eftirfarandi frá- sagnir með athygli. Finnst ykkur ekki eitthvað bogið við þær? 1) Það var barið að dyrum hjá séra Bjarna. Dóttir hans kom til dyra. Roskin kona stóð fyrir utan dyrnar og spurði hvort séra Bjarni væri heima. Dóttir hans kvað það ekki vera, en spurði hvort hún gæti ekki skilað neinu til hans. — Jú, svaraði konan, biddu prestinn að líta inn hjá mér einhvern næstu daga. — Hvar er það og hvað heitið þér? spurði dóttir prestsins. — Presturinn þekkir mig svo vel, sagði konan, og veit hvar ég á heima að ég þarf ekki að útskýra það nánar. 2) Maður nokkur lauk sendibréfi til kunningja síns með þessum orðum: . . . en ef þú færð ekki þetta bréf, þá láttu mig bara vita og ég verð að skrifa þér aftur. Þinn Jón. Samvinnuhreyfingin Framh. af bls. 15. þessum söluaðferðum megi ekki koma við, enda verði þá sérstök áherzla á það lögð að láta kaupfélögin fylgjast vel með þeim breytingum, sem verða á vörulistum birgða- stöðvarinnar. Slíkar breytingar á verzlun- arskipulaginu eru að sjálf- sögðu málefni heildarsamtak- anna en ekki til úrlausnar á vettvangi byggðarlaganna. Eigi að síður snertir þetta ná- ið ýmis önnur atriði, sem úr- lausnar bíða á þeim vettvangi. Þannig opna aukin viðskipti við birgðastöð nýja möguleika til samstarfs nágrannakaupfé- laga um flutningamál. Flutn- ingar landleiðis til fjarlægra staða hafa farið mjög vaxandi og þeir eru afar kostnaðarsam- ir. Þegar nágrannakaupfélög sækja vöru sína til sama stað- ar verður enn ríkari ástæða til að sameinast um flutninga- tækin og fráleitt er að láta mörg hálftóm sendast sömu leiðina. Ennfremur eru ýms- ar leiðir fyrir kaupfélögin til að hafa samvinnu um og jafn- vel sameinast um verzlun í ýmsum sjaldgæfari og erfiðari vöruflokkum. En það er á mörgum fleiri sviðum, sem grundvöllur er fyrir nánara samstarfi. Við- fangsefni og vandamál kaup- félaganna mótast af mismun- andi aðstæðum og staðháttum, og af því leiðir að nágranna- kaupfélög eiga oft við sams- konar viðfangsefni að etja. Það er þess vegna eðlilegt að ná- grannafélög eigi oft samleið í úrlausn viðfangsefna sinna, sem eru oft önnur en við er að etja á öðrum landshornum. Vaxandi kröfur eru gerðar ár frá ári um bætta meðferð afurðanna. Þær kröfur kalla á vandaðri sláturhús, fullkomn- ari mjólkurbú, betri vinnslu- stöðvar. Þær kröfur verða ekki uppfylltar án óhæfilegs kostn- aðar, ef vinnslustöðvarnar eru allt of smáar. Þess vegna er á því vaxandi skilningur, að í framtíðinni verða kaupfélögin að standa að rekstri þeirra sameiginlega fyrir allstór svæði. Bættar samgöngur inn- an héraðs og milli héraða gera þá þróun eðlilega og sjálfsagða. Að þessu sinni verða ekki rakin hér fleiri svið þar sem nánari samvinna er eðlileg og nauðsynleg. Þó má rétt nefna að það er ekki sízt á sviði fjár- mála og félagsmála, sem hér- aðasamstarfsins bíða stórfelld verkefni, samvinna í stað sam- keppni um reglur um útlán, verðlagningu o. fl. og ný átök til að efla skilning á félags- legum hliðum samvinnustarfs- ins. í hraðri atvinnu- og búsetu- þróun þessara ára á strjál- býlið mjög í vök að verjast. 1 fámenninu eru félagslegar einingar fólksins víða að verða vanmegna til þess að halda sínum hlut. Ef fólkið út í byggðarlögunum horfist ekki sjálft í augu við þennan vanda, getur það varla vænzt þess að aðrir geri það. Það verður sjálft að taka höndum saman og efla félagsleg samtök sín. Byggðarlögin verða að snúa bökum saman. Birgðastöð SÍS Framh. af bls. 34. Birgðastöðina á annan hátt en hvað snertir afgreiðslu til kaupfélaganna innanlands. Til fróðleiks má geta þess, að það tekur 10 vikur að fá vörur, sem pantaðar eru frá vesturstrónd Ameríku og sem fluttar eru með skipum í gegn um Pan- amaskurðinn. Þá tekur 3 mán- uði að fá vörur frá Ástraiíu, en frá báðum þessum stöðum eru keyptir ávextir til Birgða- stöðvarinnar. Forstöðumenn hennar mega því vera vel á 30 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.