Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1965, Qupperneq 44

Samvinnan - 01.12.1965, Qupperneq 44
ins. Sá eini, sem mundi sálm- inn gamla, sem fjallar um auðmýkt Guðs og niðurlæg- ing. Þótt ég enn væri ungur að árum, leiftruðu þessir logar í fortíð, sem var jafnfjarri og ég væri þúsund ára. Og ég fann ilm þessara loga. Nei, ég hafði enga afsökun, því ég var skáld, og í huga skálds lýkur aldrei neinu. Hvert var ég kominn með bernsku mína þetta kvöld, hvert hafði ég dirfst að fara með hana, fyrst hún hafði ekki yfirgefið mig. Ég reyndi að drekkja /it- neskjunni um þetta afbrot í áfengi. Því meir sem ég drakk, því meir fjarlægðist ég félaga mína. En mér grömdust hlátr- ar þeirra. Ég stóð upp frá borð- inu og tók stefnu á bar úti í horni, þar sem ljósin voru daufari en annarsstaðar. Ég hallaðist framá borðið og pantaði vískí. í sömu svipan og ég hugsaði um lítinn dreng, sem hét Jean de Blaye, þá sá ég Jean de Blaye sjálfan, þar sem hann sat á næsta barstól. Ég var ekki í neinum vafa um að þetta var hann. Sömu gleymméreiaugun, sem ljómuðu við minni innri sjón, leiftruðu í þessu unga útþvælda anöliti, sem ég hefði getað snert með því að rétta út hendina. Ég sagði við hann: „Þú hefðir ekki átt að klippa af þér .hrokknu lokkana." Hann sýndi engin undrunar- merki, en spurði fremur óskýrri röddu: „Hvaða lokka?“ „Þá, sem voru klipptir af þér í jólafríinu 1898.“ „Þú ferð víst mannavilt, en það skiptir varla máli . . . Ég er hvort eð er ekki með sjálf- um mér í kvöld.“ „En ég veit að þú ert de Blaye.“ „Hvernig veist þú hvað ég heiti?“ Ég andvarpaði, fann til létt- is — það var hann, í raun og sannleika var það hann. Ég greip hönd hans: „Jean, manstu eftir hlyn- inum?“ Hann hló: „Hlyninum, hvaða hlyn? Og svo mættirðu gjarn- an vita, að ég heiti ekki Jean, heldur Philippe. Stóribróðir minn hét Jean . . . Þú tekur mig fyrir hann, er ekki svo?“ Þetta var leiðinlegt. Hann var þá bara litli bróðirinn, sem Jean de Blaye hafði talað um í gamla daga . . . Hvernig gat ég hafa villst á þeim? XfNOHaO - HlltVS SMITH - CORONA DROTTNING RITVÉLANNA, TROMPIÐ Á HENDI YÐAR. FULLKOMIN AMERÍSK RAF- MAGNSRITVÉL Á AÐEINS KR.12.600.oo. ÚRVAL LITA OG LETURGERÐA. SÍS VÉLADEILD N Það hafði ekki lifnaö yfir andliti Philippes. — Hann sagði snögglega: „Lokkarnir hans . . . hrokknu lokkarnir hans Jeans . . . Það minnir mig á dálítið . . .“ Hann sagði mér, að móðir þeirra hefði geymt lítið silfur- skrín í herbergi sínu, og það var alltaf læst. Jean fullvissaði Philippe um, að það innihéldi fjársjóð. Þeir bjuggu sér til 44 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.