Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1965, Side 13

Samvinnan - 01.12.1965, Side 13
í hægindastól víð hliðina á eldavélinni, svo að við séum vissir um að vakna ef einhver kemur . . .“ „Mamma segir að Hann komi ekki, nema maður sofi . . .“ Það sló bjarma frá sýni- gluggunum út yfir gangstétt- irnar, sem voru blautar af þoku. Það voru sölubúðir um- hverfis skólann. Bjarmi gas- ljósanna féll á rauðan brjóst- sykurinn, sem okkur langaði í, af því að hann var of óhollur tilað við mættum kaupa hann. „Við gætum látist sofa . . .“ ,.Hann kæmist strax að því, því að Hann veit allt . . .“ „Já, en ef það væri nú mamma manns, þá gæti maður leikið á hana • . .“ En Jean de Blaye sagði: „Það er ekki mamma manns!“ Við vorum komnir að götu- horni einu, þar sem leiðir okk- ar skyldu skiljast í síðasta sinn í bráðina, því næsta morg- un átti Jean að fara uppí sveit. Ég minnti hann á að reyna að halda sér vakandi. Ég fyrir mitt leyti hafði harð- ákveðið að halda augunum opnum. Svo gætum við sagt hvor öðrum, hvað við hefðum séð . . . Hann lofaði að reyna að vaka. Ég horfði á eftir honum. Um örskotsstund sá ég hrokkna stúlkulokkana, sem dönsuðu á herðum hans — og svo hvarf smávaxinn líkami hans útí þokuna. II. Húsið okkar var í nánd við kirkjuna. Á jólanótt ómaði voldugur .hljómur stóru klukk- unnar í turninum allt til morg- uns. Rúmið mitt var skips- rekkja, og stormhljóðin báru mig með sér og byltur þeirra vögguðu mér. Náttlampinn fyllti herbergið skuggaverum, sem höfðu trúnað minn. Gluggatjöldin, borðið, fötin mín, sem lágu í hrúgu á stól, voru hætt við að slá ógnandi hring umhverfis rúmið mitt — mér hafði tekizt að temja þess- ar villtu verur. Þær vernduðu mig sofandi einsog frumskóga- búarnir, sem vöktu yfir Máglí litla. Það var engin hætta á því að ég sofnaði — stóra kirkju- klukkan hjálpaði mér tilað vaka. Ég hélt um rúmrimlana og kreisti þá af slíku aíii, að svo virtist sem ég væri alger- lega á valdi vinveitts storms, sem ekki vildi mér nema gott eitt. Mamma lauk upp dyrun- um. Ég hafði augun lokuð, en ég þekkti hana á skrjáfinu í silkikjólnum- Væri það hún, sem legði leikföngin við hliðina á stígvélunum mínum, hlaut hún að gera það nú þegar áð- ur en hún færi til miðnætur- messu, hugsaði ég og fór að draga andann reglulega, líkt og ég svæfi. Mamma laut yfir mig, og ég fann andardrátt hennar. Það kollvarpaði öllum mínum fyrri ákvörðunum: Ég greip báðum handleggjum um háls hennar og þrýsti mér að henni af ofsalegri ákefð. „Ertu frá þér, ertu frá þér,“ sagði hún milli kossa minna. „Hvernig heldur þú að Hann geti komið, ef þú sofnar ekki? Farðu nú að sofa, elsku bezti Yves minn; farðu nú að sofa, drengurinn minn; unginn hennar mömmu, farðu nú að sofa . . .“ „Mig langar tilað sjá Hann, marnrna." „Hann vill að fólki þyki vænt um Hann, án þess að sjá Hann. . . . Þú veist, að þegar Hann svífur niður yfir altarið þeg- ar messað er, þá lúta allir höfði . . .“ „Mamma, þú mátt ekki verða reið — en einu sinni laut ég ekki höfði, og þá sá ég Hann, ég sá Hann . . .“ „Hvað segirðu? Sást þú Hann?“ „Já, það er alveg satt . . . lítinn hvítan væng . . .“ „Það má ekki hafa augun opin í nótt. Þú sérð Hann bezt ef þú ert sofandi. Þegar við komum heim frá kirkjunni, verður þú að vera sofnaður ...“ Hún lokaði dyrunum og fóta- tak hennar fjarlægðist. Ég kveikti á kertinu mínu og sneri mér að eldavélinni, þar sem síðasti glóðarvotturinn var að kulna út. Stígvélin stóðu þarna milli hlóðagrindanna á jaðri þeirrar leyndardómsfullu um- gerðar, sem opnaðist einsog hleri inní sótið og öskuna. Þessa leið kom cmurinn frá stóru klukkunni og fyllti her- bergið mitt ógnvekjandi söng sínum, sem hafði, áður en hann náði til mín, flökt yfir þökin og mjólkurhvíta vegi, sem þúsundir engla og stjarna svifu um á jólanótt. Ég hefði ekki orðið verulega undrandi þótt lítið barn hefði birst í djúpu myrkri arinsins; mig furðaði miklu fremur á hinu, að ekkert skyldi gerast. En í raun og veru gerðist eitthvað: stígvélin mín, sem enn voru tcm, aumingja þunglamalegu stígvélin mín, sem voru svo nátengd daglegu lífi mínu, ummynduðust í einu vetfangi á undarlegan og óraunveruleg- an hátt, líkt og þau væru ná- lega utansviðs við tímann, líkt og stígvél lítils drengs mættu í einu vetfangi verða lostin ljósi frá veröld, sem fólk ekki skynjar. Svo nærri var undrið, að ég slökkti ljósið, tilað það hræddi ekki frá mér það ó- sýnilega fólk, sem heyrir til nótt allra nótta. Mér virtist tíminn líða fljótt, en það var áreiðanlega vegna þess að ég var utan hans. Ein- hver lauk upp dyrunum og ég lokaði augunum. Af skrjáfi í silkikjól og pappír gat ég þess til, að þar væri móðir mín á ferð. Það var hún og það var ekki hún: mér virtist það frem- ur vera einhver, sem tekið hefði á sig mynd móður minn- ar. Ég hafði aldrei hlýtt mið- næturmessu, en engu að síð- ur vissi ég, að í nótt hefðu móð- ir mín og bræður meðtekið litlu oflátuna og snúið frá altarinu með spenntar greipar og augun svo lokuð, að ég spurði sjálf- an mig sem oft fyrr, hvernig þau gætu ratað í sætin. Vissulega var það móðir mín, sem gekk frá eldavélinni að rúminu mínu. En Hann var í henni — ég gat ekki greint þau að — andardrátturinn sem hrærði hár mitt steig frá brjósti, sem enn var bólstaður Guðs. Og einmitt í þeirri svip- an hvarf ég samtímis í arma móður minnar og á vit svefns- ins. III. Þann morgun, sem skólinn hófst á ný, fór ég í þau stíg- vél, er átt höfðu hlutdeild í kraftaverkinu, en voru nú á ný aðeins venjuleg og lítilmót- leg stígvél, sem minntu á asnahófa; ég skrefaði í þeim á flísalagða blettinum um- hverfis hlyninn, meðan ég beið þess að klukkan slægi átta. Ég svipaðist um eftir Jean de Blaye og lokkunum hans í barnaskaranum, þar sem allir æptu og hlupu um, en Framh. á bls. 43. SAMVINNAN 13

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.