Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1965, Side 26

Samvinnan - 01.12.1965, Side 26
Þórustöðum. Nefndin skipti með sér störfum og var Snorri Sigfússon formaður hennar en Vigfús Friðriksson ritari. Unnu þessir menn allir mjög ötul- lega að björgun þjóðlegra verð- mæta undir forustu Snorra. Mununum var komið í geymslu til bráðabirgða í her- bergi í nýju heimavistarhúsi Menntaskólans á Akureyri. Miðaði byggðasafnsmálinu vel áfram og voru ýmsar áætlan- ir og .hugmyndir á prjónunum. Árið 1954 flutti Snorri Sig- fússon alfarinn til Reykjavíkur. Tók þá varamaður hans í nefndinni við formennsku hennar, Jónas Kristjánsson samlagsstjóri. Hefur hann síð- an verið ótrauður forustumað- ur safnmálsins. Nokkru síðar flutti Vigfús Friðriksson einn- ig suður og er Sverrir Pálsson skóiastjóri nú ritari nefndar- innar. Húsnæðismál safnsins og staðsetning var stöðugt til um- ræðu. Kom fljótt fram sú hug- mynd að byggðasafn fyrir Eyjafjarðarsýslu og Akureyri væri hvergi betur sett en í „Fjörunni", þ. e. hinum gamla syðsta hluta Akureyrar. Þar voru fyrir nokkur gömul og merkileg hús, svo sem Nonna- húsið. Kom til tals að flytja þangað gamlan sveitabæ og fleiri gömul hús og eru þær hugmyndir mjög vakandi enn. Ýmsir urðu til þess að leggja málefninu lið á þessum árum. Árið 1961 kom hingað tii lands forstjóri byggðasafnsins í Lille- hammer, Fartein Valen-Sand- stad. Fór hann víðs vegar um landið í fylgd með Jónasi Kristjánssyni og Sveinbirni Jónssyni forstjóra, sem var fórnfús og ötull stuðningsmað- ur byggðasafnsmálsins. Skoð- uðu þeir byggðasöfn og gömul hús, sem safnlegt gildi hafa. Mætti Valen-Sandstad á fundi í byggðasafnsnefndinni og lýsti áliti sínu á málinu. Taldi hann að „Fjaran“ væri tilvalinn staður fyrir byggðasafn, bæði vegna þeirra gömlu húsa er þar voru fyrir og vegna aðstöðu allrar. Taldi hann að þar væri auðvelt að koma fyrir gömlum sveitabæ, gamalli kirkju og fleiri gömlum húsum. Var koma þessa norska, góða gests málinu öllu hin mesti styrk- ur. Eins og fyrr er sagt hafði vaxið upp fagur trjálundur sunnan við gömlu kirkjuna á Akureyri. Eftir að kirkjan var fjarlægð eignuðust hjónin Baldvin og Gunnhildur Ryel, sem stundað höfðu verzlun á Akureyri í mörg ár, lundinn og meðfylgjandi lóð og byggðu fallegt og myndariegt íbúðar- hús í brekkurótunum, það hið sama og fyrr er frá sagt. Nú gerðist það, að hjónin vildu selja eign sína, og varð það að ráði, að safnnefndin festi kaup á henni og leysti með því brýna þörf fyrir húsnæði og skapaði sér aðstöðu í hinu fyrirheitna landi í „Fjörunni". Fóru kaup- in fram 1962. Þá var jafnframt ráðinn safnvörður eins og fyrr er sagt og hafist handa um lagfæringar á húsinu og flutn- ingi munanna þangað. Þá var og safninu valið nafn: Minja- safnið á Akureyri. Hús Minjasafnsins á Akur- eyri er tveggja hæða hús með háum kjallara. Eru vistarver- ur margar og hefur safninu verið komið fyrir í þeim öllum á smekklegan og snyrtilegan hátt. Búið er að skrásetja n.l. 2800 muni og allmargir eru óskrásettir. — Enda eru safn- inu alltaf að berast munir — segir Þórður Friðbjarnarson. — Þeir eru sendir til safnsins, stundum langar leiðir að. Eink- um hafa því borizt margir dýr- gripir, eftir að það eignaðist fast heimili og var opnað til sýnis. Næstum hver einasti hlutur var gefinn safninu og hafa menn sýnt því mikinn skilning og velvild. Enda er það svo með marga hluti, sem eru raunverulegir dýrgripir og ættu þess vegna að geta orðið ættargripir, að einn góðan veðurdag blasir við sá vandi, hver á að hljóta gripinn, ef til vill úr hópi margra erfingja. Til þess að sneiða hjá þeim vanda kjósa margir að láta hlutinn fremur á minjasafnið, þar sem þeir vita að hann verður varð- veittur og engum til ágrein- ings. Það er bæði gleðilegt og fróðlegt að ganga með Þórði safnverði um húsið. Hann kann utan að deili á næstum hverj- um hlut og vel er haldið til haga því, sem vitað er um hann. — Hér á efstu hæðinni — segir Þórður — er eins og þú sérð einkum komið fyrir ljós- myndasafni. Það er þó ekki mannamyndir heldur ljós- myndir, sem hafa sögulega þýðingu, einkum hér frá Ak- ureyri. Þarna er þó eitt her- bergi með persónulegum mun- Borff og stóll Jóns A. Hi.altalíns skclameistara á Möffruvöllum. Viff hliff borffsins er orgei Björgvins Guðmundssonar og á vegg langspil, fiðla, bi'affaslíffra, kíkjar o. fl. um ýmsra manna, svo sem skrifborði, stól og bókaskáp Ingimars Eydals kennara og ritstjóra, svo og silfurbúið horn, sem nemendur hans gáfu honum. Hér er skrifborð Odds Björnssonar bókaútgefanda og prentsmiðjustjóra, og þarna er einnig göngustafur hans, silf- urbúinn og gerður úr hryggjar- liðum úr hámeri. Einnig er hér skrifstofubúnaður Jóns Sveins- sonar, fyrsta bæjarstjóra Akur- eyrar og aðrir munir og myndir úr hans eigu- — Hér við stigann niður á neðri hæðina er komið fyrir „Heklufánanum“, en eins og þú veizt hefur stjórn Söngfé- lagsins Heklu afhent safninu hann. Fáninn var upphaflega gjöf til karlakórsins Heklu, sem fór sína frækilegu söng- för til Noregs 1905 undir stjórn Magnúsar Einarssonar organ- ista og söngstjóra. Þarna sérðu gjafabréfið innrammað. Það er dagsett í ágúst 1906, en þá var kórnum sendur fáninn. Þarna er líka ljósmynd af bakhlið fánans, en á hana er letrað: „Fra borgere i Haugasund til minde om den förste islandske sangerferd i Norge 1905“. Þegar Söngfélagið Hekla var stofnað skömmu eftir 1930, en það er samband karlakóranna í Norðlendingafjórðungi hinum gamla, afhentu þeir gömlu „Heklungar“, sem þá voru á lífi söngfélaginu fánann með þeim fyrirmælum, að ef minja- safn yrði stofnað á Akureyri, færi fáninn þangað. Og nú er hann þarna. — Hér á neðri hæðinni eru safngripir í fjórum herbergj- um. Og þarna sérðu elzta hlut safnsins, sem vitað er um ald- ur á, því ártalið stendur á honum. Þetta er skápur, fagur- lega útskorinn með ártalinu 1672. Hann var í kirkjunni á Hrafnagili í Eyjafirði, en sú kirkja var sóknarkirkja Akur- eyrar, þar til hún var flutt til bæjarins og endurreist þar 1863. Skápurinn fylgdi kirkj- unni þangað. Hann er eflaust íslenzkt smíði og hinn mesti kjörgripur. Hér er einnig messuhökull með ísaumað ár- 26 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.