Samvinnan - 01.12.1986, Blaðsíða 13
# Dómur reynslunnar
Það er því harla auðvelt að færa rök fyrir því,
að reynslan sýni, að sú stefna, sem fylgt
hefur verið lengst og tvívegis horfið til aftur
eftir tilraunir í aðrar áttir, hljóti að teljast
happasælust. Umfjöllun um samvinnumál á
að sitja í fyrirrúmi, en hún eingöngu er
leiðigjörn til lengdar. Þess vegna er krafan
um að hverfa aftur til upphafsins og gera
Samvinnuna að „sérriti um samvinnumál“
varhugaverð að dómi undirritaðs og
vænlegast að blanda saman við
samvinnumálin almennu efni til fróðleiks og
skemmtunar.
Og einu atriði er vert að vekja athygli á: I
tíð allra ritstjóranna sjö, að hinum fyrsta
undanskildum, hefur bókmenntum verið
gerð skil að einhverju leyti og birt ljóð og
sögur eftir innlenda og erlenda höfunda.
Þannig leit Samvinnan út á árunum 1960-63, en þá hafði Örlvgur Hálfdanarson
veg og vanda af útgáfunni. Örlvgur var jafnframt um langt skeið ritstjóri starfs-
mannablaðsins Hlyns.
1
1964
Samvinnan
í byrjun ársins 1964 tekur Páll H. Jónsson frá Laugum við ritstjórn Samvinnunn-
ar og fyrsta blaðið undir hans stjórn birti litmynd af Surtseyjargosinu.
# Langt og heilladrjúgt samstarf
Vagga samvinnuhreyfingarinnar stóð á
Norðurlandi, og þess vegna var eðlilegt, að
málgagn hennar hæfi göngu sína þar.
Fyrstu tíu árgangar Samvinnunnar eru
prentaðir í Prentsmiðju Odds Björnssonar á
Akureyri. En um leið og Jónas frá Hriflu
tekur við ritstjórninni 1917, flyst ritið suður
og er fyrst prentað í ísafold hjá Ólafi
Björnssyni, en síðan nýrri prentsmiðju, sem
hét Acta og var stofnuð af nokkrum
prenturum í ísafoldarprentsmiðju.
Þegar Samvinnan varð mánaðrrit og
stækkaði í broti 1935, var hún prentuð
skamman tíma í Ríkisprentsmiðjunni
Gutenberg. Nokkru síðar kaupa
samvinnumenn prentsmiðjuna Acta og
stofna á grundvelli hennar nýja prentsmiðju,
sem hlaut nafnið Edda. Hún var stofnuð
haustið 1936 og átti því fimmtugsafmæli fyrr
á þessu ári, sem minnst var með ýmsum
hætti. í nóvember 1937 er Samvinnan fyrst
unnin í hinni nýju smiðju samvinnumanna,
Eddunni - og þar hefur hún verið prentuð
13