Samvinnan - 01.12.1986, Síða 27

Samvinnan - 01.12.1986, Síða 27
Nú haföi gerst sá atburður, er fyllti hjörtu Islendinga ást á málstað sínum, vakti þá að fullu af löngum dvala. komu að Latínuskólanum 4. júlí, var húsið lokað og eng- inn maður sjáanlegur. Póttist Trampe ekki hafa fengið skipun sem konungsfulltrúi, en setti þó fundinn næsta dag. Verður gangur mála þar ekki rakinn hér, en fundar- gerð síðasta fundarins, sem birt er með grein þessari, gefur nokkra hugmynd um anda fundarins undir lok hans. íslendingar höfðu fyrir þjóðfundinn frétt á skotspón- um um frumvarp dönsku stjórnarinnar, en þegar þeir sáu það, reyndist það stórum verra en þeir höfðu gert sér í hugarlund. Það var þegar augljóst að um samkomulag yrði ekki að ræða, enda taka fulltrúarnir hina skelegg- ustu afstöðu og mótmæla harðlega forsendum hins danska frumvarps. Trampe hefur fylgzt vel með gangi málsins, því að hann slítur fundinum, áður en aðalum- ræður um stjórnarskrármálið hefjast, en þær hefðu væntanlega orðið eftir að nefnd hafði skilað málinu til fundarins. Það hefur verið einmanaleg og döpur veizla, sem Trampe greifi hélt kvöldið 9. ágúst. Hafði hann boðið öllum fundarmönnum til fagnaðarins, en aðeins fjórir af fimm konungkjörnum fulltrúum mættu, enginn hinna. Hinir fulltrúarnir komu saman í klúbbnum og ræddu við- burði dagsins. Byrjuðu þeir á því að skrifa alvarlegt ávítubréf til Páls Melsteð, sem þeir höfðu kjörið forseta fundarins, fyrir afstöðu hans í því embætti. Gleðíleg jól og farsælt bomandí ár þökkum viðskiptin á liðnum árum. KAUPFÉLAG KRÓKSFJARÐAR Króksfjarðarnesi • Þjóðin sameinaðist Það má nærri geta, að hvert mannsbarn í landinu fylltist gremju við fréttirnar af fundinum. Nú hafði gerzt sá at- burður, er fyllti hjörtu íslendinga ást á málstað sínum, vakti þá að fullu af löngum dvala. Nú vissu þeir, hvert stefna bar, nú þekktu þeir leiðtoga sína - og fjandmenn sína í sjálfstæðisbaráttunni. Það er einmitt þetta, sem telja má mikilsverðasta ávöxt þeirra atburða, sem hér hefur verið greint frá. Því miður fékk þjóðin engar réttarbætur, en hún lærði að' þekkja sinn vitjunartíma og sameinaðist í baráttu sinni. Vel mætti rita langt mál um eftirköst þjóðfundarins, en hér er ekki rúm til þess. Hefur verið lögð aðaláherzla á að rekja aðdraganda fundarins, og leiða í ljós, hverjum stökkbreytingum viðhorf þjóðarinnar tók á þessu tíma- bili, hversu skilningssljóir og áhugalitlir landsmenn voru á þessum málum 1848, og hvernig þjóðin fylkti sér full áhuga og eldmóðs 1851. Ef íslendingar hefðu ekki tekið gagnsókn dönsku stjórnarinnar 1851 með þeirri festu og framsýni, sem þeir gerðu á þjóðfundinum, getur vel verið, að öll sjálf- stæðisbaráttan eftir það hefði orðið lengri og erfiðari. Hefðu þeir brugðizt þá og gengizt undir þau lög af fúsum vilja, sem Danir óskuðu eftir, hefði getað reynzt örðugt að vekja réttlætiskröfur þjóðarinnar á nýjan leik. + Óskum starfsfólki og viðskiptamönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Þökkum viðskipti á liðnu ári KAUPFÉLAG SKAFTFELLINGA Vík í Mýrdal 27

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.