Samvinnan - 01.12.1986, Side 30

Samvinnan - 01.12.1986, Side 30
Hátíðir á hausti hins dulræna og hugað að dýpri rökum. Kannski voru margar hugmyndir manna barnalegar, eins og alltaf, þegar maðurinn reynir að kanna hið óþekkta og gera sér grein fyrir hinu yfirskilvitlega. En sú er þó einasta leið manns til þroska og barnsleg einfeldni hans er úthverfa djúprar þrár að leita þess, sem æðra er og fullkomnara. • Veröld úr skorðum með veðrum vetrar Svo mjög sem uppskeran tók hugann fanginn á haust- dögum var hitt ekki síður íhugunarefni, að veður gerð- ust þá válynd og Vetur konungur undurbjó komu sína í mannheim. Þótti mönnum sem þá gengi heimur allur úr skorðum og lífi þeirra og tilveru ógnað. Var þá til ýmissa ráða gripið að tryggja farnað. Oftast var til þess gripið að halda einhvers konar hátíð eða hafa um hönd vígslur, ef verða mætti til árs og friðar. Ekki voru hátíðir þessar all- ar á sama árstíma, enda misjafnt, hvenær vetur leggst að í hinum ýmsu löndum. Sameiginíegt þeim öllum eða flestum var hugmyndin um átök við hin illu og ótömdu öfl tilverunnar. # Óvætturin Sedna Á norðurheimskautaslóðum leggst haustið að með mikl- um stormum og stórviðrum. Það er trú manna, að þá æði óvætturin Sedna í vígaham. Takmark hennar er að eyða byggð og veiði. Er þá það ráð upp tekið, að spáprestar hefja særingar miklar og ógnþrungnar vígslur. Hafa þeir reipi mikið, sem vafið er upp, þó þannig, að op myndast efst og skal tákna öndunarholu sela, því hér er selveiðin í veði, ef ófögnuði þessum verður ekki komið fyrir katt- arnef. Prestur hefur spjót í hendi og beinir oddi þess að holunni, en þar mun illvætturin leita útgöngu. Upphefst nú söngur mikill og hávaði. Er talið, að Sedna renni á hljóðið. Stingur spáprestur spjótinu niður um reipishol- una ótt og títt. Lýsir hann atlögunni og árásunum. Geng- ur svo langa stund. Finnst mönnum sem drunur miklar heyrist. Að lokum fer þó svo, að sigur vinnst. Sedna hverfur til Helheima, veðurhamurinn hefur verið yfir- unninn. Þó má um stund gæta fyllstu varúðar. Skal hver íbúi hafa verndargrip. Er þeim komið fyrir í höfuð- búnaði. Verndargripirnir eru búnir til úr dulum fyrstu klæðanna, búnaði reifabarna. • Draumatíminn mikli Þannig mæta nágrannar okkar, Eskimóarnir, hausti. Upphaf vetrar er sumsstaðar á jörðunni nefnt „drauma- tíminn mikli“. Er myrkrið leggst að og veður spillast, breytist sálarlíf mannsins, er talið. Menn verða þá næm- ari fyrir draumum og sýnum. Skapið breytist líka, að því er talið er, og nokkra stund eru menn jafnvel ekki álitnir FlOlVITTC VÖRUHÚSIÐAÐ U vJlrl U LAUGAVEGI91 KAUPFELAG REYKJAVIKUR OG NAGRENNIS Á BOÐSTÓLUM Á EINUM STAÐ LEIKFÖNG GJAFAVARA FATNAÐUR SKÓR BÚSÁHÖLD HEIMILISTÆKI LEITIÐ EKKI LANGT YFIR SKAMMT 30

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.