Samvinnan - 01.12.1986, Síða 32

Samvinnan - 01.12.1986, Síða 32
AF SÍÐUM SAMVINNUNNAR Þjóðskáld og þrjú dæmi EFTIR PÁL H. JÓNSSON Einar Benediktsson — Frændi haföi fundið sitt skáld og þaö átti við hann brj'nt erindi. Það var í þá daga, er lampi hékk á bita og baðstofan var full af lífi ljóss og skugga. Rokkarnir voru þagnaðir og kvöldlestri nýjustu skáldsögunnar hætt í bili, því kvöldverkum þurfti að sinna. Það var í þá daga, er kvöldvaka á sveitabæ var raun- veruleg, áður en hún varð þjóðsaga og ævintýri. Hríð buldi á þekju. Frostrósir á rúðum. Geigur myrkurs í göngum og skúmaskotum. En baðstofan var gróðurland og skjóldalur, kvöldvakan ævintýri hirðingjans. # Til þín er mín heimþrá - í þá daga voru bækur dýrgripir, næstum eins og helgur dómur. Með hverri nýrri bók sem barst, kom andblær ókunnra heima. Að bókarlestri loknum höfðu opnast nýjar dyr. Margar hinna nýju bóka voru vanþroska barnshuga hulinn leyndardómur, torráðinn og ofviða, en allar vöktu þær spurula löngun og þrá. Líka Skírnir, þegar hann var leystur úr krossbandinu og upp úr honum skor- ið æfðri smiðshendi með hárbeittum hnífi, svo að hvergi sæi á musk eða misfella. Rokkarnir voru þagnaðir um sinn. Það var leyfilegt að skrafa og skvaldra. En frændi sat á stóli sínum, studdi hönd að kinn og las, lágri djúpri bassarödd, meir fyrir sjálfan sig en aðra. Pó mátti vel greina orðaskil, sem fyrr en varði drógu til sín athygli, því það voru stór orð og sterk, hreimmikil og hrynjandi, torskilin ungum dreng, en með óravíddir veraldarinnar að bakgrunni. „Til þín er mín heimþrá, eyðimörk ógna og dýrðar, ásýnd af norðursins skapi í blíðu og stríðu. Hjá þér eru yngstu óskir míns hjarta skírðar. Útsær- þú berð mér lífsins sterkustu minning. - Ég sé þig hvíla í hamrafanginu víðu; ég heyri þig anda djúpt yfir útskaga-grynning. Ofsinn og mildin búa þér undir bránni; þú bregður stórum svip yfir dálítið hverfi, þar lendingarbáran kveðst á við strenginn í ánni, en upplit og viðmót fólksins tekur þitt gervi.“ 32

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.